Kaflaskipti verða í sögu heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar núna um áramótin. Hún verður ekki uppfærð frekar, enda virkjunarframkvæmdum að mestu leyti lokið. Síðuna verður samt áfram að fnna á Vefnum og nýtist áfram sem heimild um gang framkvæmdanna en nýjar fréttir um Fljótsdalsvirkjun verður eftirleiðis að finna á heimasíðu Landsvirkjunar, landsvirkjun.is.Heimasíða Kárahnjúkavirkjunar var upphaflega sett á laggir til að vera kynningartæki við mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar. Síðan var opnuð 4. maí 2001 og fyrsta fréttin fjallaði einmitt um matið og ferli þess. Upphaflega var Kárahnjúkasíðunni ekki hugað lengra líf en þar til mati á umhverfisáhrifum yrði lokið með tilheyrandi kæruferli og úrskurðum sem búast mátti við. Þegar svo farið var að undirbúa framkvæmdir ákvað Landsvirkjun að hafa síðuna virka áfram á verktímanum til að upplýsa þá sem áhuga hefðu á gangi mála og halda til haga á einum stað ýmsum fróðleik um mat á umhverfisáhrifum, um framkvæmdirnar sjálfar, um helstu verksamninga, verktaka, stjórnskipulag framkvæmdanna og fleira.
Frá því í maí 2001 til loka árs 2008 hafa birst alls 1.054 fréttir hér á Kárahnjúkasíðunni eða meira en tvær og hálf á viku að jafnaði frá upphafi til enda. Eðli máls samkvæmt var mest um að vera á síðunni þegar framkvæmdir voru í hámarki eystra 2006 og 2007. Þannig birtust að jafnaði meira en fjórar fréttir á viku á árinu 2007 og í sumum tilvikum margar á dag þegar mest gekk á.
Dagblöð og ljósvakamiðlar notuðu heimasíðuna óspart sem heimild í fréttaflutningi og vitnuðu til hennar, sama gerðu bæði stuðningsmenn og andstæðingar framkvæmdanna og aðrir sem tjáðu sig í ræðu eða riti. Þegar Geir H. Haarde forsætisráðherra kom í heimsókn á virkjunarsvæðið 4. september 2006 vakti það athygli þeirra sem fylgdu honum um vettvanginn hve fróður hann var um marga hluti þar og vel að sér um gang mála. Skýringuna gaf ráðherrann sjálfur, hann kvaðst fylgjast vel með heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar.
Heimasíðunni var ritstýrt í Reykjavík en fréttalindirnar voru auðvitað að stærstum hluta á Austurlandi. Margir lögðu ritstjórninni lið við upplýsingaöflun, einkum starfsmenn ber þar að nefna starfsmenn við framkvæmdaeftirlit og upplýsingafulltrúar Kárahnjúkavirkjunar. Þá liðveislu alla ber að þakka nú þegar komið er á leiðarenda. Ekki er á neinn hallað með því að nefna til sögunnar sérstakan vildarvin heimasíðunnar og sjálfskipaðan hirðljósmyndara hennar um árabil: Þórhall Árnason, starfsmann framkvæmdaeftirlitsins VIJV við Kárahnjúka. Hann var óþreytandi með myndavélina sína að fanga mikilvæg augnablik í framkvæmdunum sjálfum en ekki síður minnast margir gestir heimasíðunnar magnaðra mynda af náttúrufari á fjöllum og af fuglum, refum og hreindýrum sem urðu á vegi Þórhalls. Þess vegna á vel við að birta fáeinar mynda hans hér að skilnaði. Þær eru flestar frá árinu 2007.
|