Gert er ráð fyrir að hefjast handa eftir áramót við að grafa einskonar þró á botni Hafrahvammagljúfurs, undir enda rennunnar sem flytur vatn af yfirfalli Hálslóns niður í gljúfrið. Þessari framkvæmd verður flýtt vegna þess að lítill snjór er á svæðinu og því vel gerlegt að athafna sig við verkið.Grafnir verða um 50.000 rúmmetrar úr gljúfurbotninum og komið fyrir neðan við væntanlega gljúfurstíflu sem reist verður sumarið 2009 . Steypt verður í botn þróarinnar og síðan myndast þarna djúpur hylur sem tekur við yfirfallsfossi síðsumars ár hvert og dregur úr afli hans. Ef tíðarfar verður nógu hagstætt í janúar til að unnt sé að grafa vatnsþróna flýtir það fyrir verkum sem ætlunin er að ljúka áður en Hálslón fyllist og vatn tekur að renna á yfirfalli, sem að líkindum gerist snemma í ágúst.
Starfsmenn Ístaks hafa undanfarnar vikur unnið að því að flytja ríflega 100.000 rúmmetra af grjóti til í gljúfrinu, eftir að bergfylla á austurbakkanum neðan Kárahnjúkastíflu hrundi að stórum hluta. Það sem eftir stóð af bergfyllunni var síðan sprengt niður.
Áætlað var að flytja þyrfti allt að 110.000 rúmmetra efnis úr stæðri vatnsþróarinnar fyrrnefndu niður fyrir væntanlega gljúfurstíflu. Það tókst að flytja 80-90.000 rúmmetra fyrir jól og eftir eru þá 10-20.000 rúmmetrar, sem færðir verða eftir áramót.
|