Starfsmenn Íslandsgarða hafa í vetur unnið að frágangi lóðar við Fljótsdalsstöð og voru við það verk svo lengi sem unnt var. Þeir eru farnir af vettvangi en koma á ný með hækkandi sól til að ljúka verkinu.
Fljótsdælingar hnykluðu brýnnar þegar farið var að leggja grasþökur á snævi þakta jörð í nóvember. Það gerðu Íslandsgarðamenn reyndar líka í fyrravetur, með ágætum árangri að eigin sögn.