Nokkrar vinnubúðaeiningar Landsvirkjunar af virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka hafa verið fluttar suður að Búðarhálsi, á milli Sultartanga og Hrauneyjafoss. Þar er í gangi undirbúningur framkvæmda við vatnsaflsvirkjun.
Skrifstofueiningar úr aðalbúðum við Kárahnjúka og nokkrar íbúðareiningar eru þegar komnar suður. Síðar í vetur verður mötuneytið á Hvammsmel í Fljótsdal flutt sömu leið og sömuleiðis fleiri íbúðareiningar.
Hér eru myndir frá því framkvæmdir voru í fullum gangi eystra. Verið er að flytja íbúðareiningar fá Hvammsmel í Fljótsdal upp að Axará.
Smiðir að störfum við flutninga vinnubúða á virkjunarsvæðinu: Mannsi verkstjóri - Sigurmann Rafn Stefánsson og smiðirnir Hólmgeir og Einar úr Mývatnssveit.