Veftré    
Fara á forsíðu
 
Forsíða
Veftré
Leit

 Tengdar greinar
26.8.2008: Sumarvinnukrakkarnir sestir á skólabekk
25.8.2008: Jökulsárgöng að verða tilbúin
21.8.2008: Jökulsárgöng safna nú þegar vatni að hluta
20.8.2008: Leiðin um stíflurnar lokuð með öllu næstu 10 daga
18.8.2008: Kárahnjúkafoss
16.8.2008: Hálslón orðið fullt
13.8.2008: Fyllt í stíflur allan sólarhringinn
14.8.2008: Leiðin um stíflurnar opin til mánudagsins 18. ágúst!
14.8.2008: Gert ráð fyrir að Hálslón yfirfyllist í byrjun næstu viku
8.8.2008: Hálslón fyllist í lok næstu viku
30.7.2008: Steypt í kappi við lónið
30.7.2008: Íslenskir sigmenn og klifrarar tóku við af þeim austurrísku í gljúfrinu
29.7.2008: Á sjötta hundrað ferðamanna við Kárahnjúka um síðustu helgi!
28.7.2008: Ferðamenn áhugasamir um virkjunina
23.7.2008: Búðir Impregilo að hverfa
21.7.2008: Helgarferð um Hálslón
17.7.2008: Fyrsti steypuáfanginn í gljúfrinu neðan Kárahnjúkastíflu+
15.7.2008: Ökuleiðin um Kárahnjúkastíflu opnuð almenningi
14.7.2008: Fimm tugir á vegum Ístaks við Kárahnjúka
9.7.2008: Vígslugerð í Valþjófsstaðarkirkju

 Skráarsafn
 Stíflumyndir
 Stiflumyndir3-5agust

Fljótsdalsstöð
 
Sjálfbærniverkefni á Austurlandi
 
Kárahnjúkasýning í Végarði
 
Jökulsár- og Hraunaveitur
 
Myndasafn
 
Veður við Kárahnjúka
 
Fossar á áhrifasvæði virkjunarinnar
 

 16.12.2008: Hreinsað úr gljúfrinu
Þriðjudagur 16. desember 2008
Prenta textann
Starfsmenn Ístaks hf. keppast við að flytja grjótmulning til á botni Hafrahvammagljúfurs eftir að sprengd var bergfylla gegnt enda yfirfalls Hálslóns neðan við Kárahnjúkastíflu. Ef ekkert óvænt kemur upp lýkur verkinu fyrír jól.
Þetta er lokaverkefnið á virkjunarsvæðinu í ár. Frá upphafi framkvæmda var vitað að djúp sprunga væri í bergi á austurbakka gljúfursins neðan stíflu, samsíða gljúfrinu. Stöðugt var fylgst með hreyfingum í berginu með mælitækjum og í ágúst 2008 víkkaði sprungan umtalsvert eftir að vatn fór að renna á ný á yfirfallinu. Snemma í október hrundi bergfyllan að hluta og þá lá fyrir að sprengja þyrfti afgang hennar til að tryggja öryggi þeirra sem ættu eftir að vinna í gljúfrinu sumarið 2009.
 
Það sem eftir stóð af bergfyllunni var sprengt í vetur í tveimur áföngum, alls 20.000 rúmmetrar. Fyrri sprengingin var í byrjun nóvember en sú síðari núna um miðjan desember. 
 
Byrjað var að flytja efnið upp úr gljúfrinu 11. nóvember og á vöktum fra 25. nóvember. Afköstin eru 5.000-7.000 rúmmetrar á sólarhring. Núna um miðjan desember höfðu um 75.000 rúmmetrar verið fjarlægðir og fluttir til um 400 metra, niður fyrir stæði stíflunnar sem reist verður í gljúfrinu.
 
Sumarið 2009  verður steypt í botn gljúfursins, undir yfirfallsrennunni, og sett upp grjóthleðsla eða stífla skammt þar fyrir neðan til að vatn safnist í einskonar þró og dragi úr afli í Kárahnjúkafossi sem til verður að jafnaði síðsumars þegar Hálslón er fullt.
 
Vinna í Hafrahvammagljúfri í desember 2008.

Myndir: Jón Egill Sveinsson