 |
|
 |
26.6.2008: Djasshátíðin opnuð í aðkomugöngum Fljótsdalsstöðvar! |
Úrvalslið listamanna frumflutti dans- og tónverkið Drauma í aðkomugöngum Fljótsdalsstöðvar í gærkvöld að viðstöddum um 300 gestum. Þetta var upphafsatriði 20. djasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi og verður lengi í minnum haft.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
25.6.2008: Góð vika í Grjótárgöngum |
Grjótárgöng lengdust um hátt í 90 metra í síðustu viku og framgangur verksins var þar skínandi góður, einkum framan af vikunni. Unnið er samtímis í stöfnum beggja vegna bæði á dagvakt og næturvakt. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.6.2008: Klettaklifrarar frá Austurríki tryggja vinnuöryggi í gljúfrinu |
Austurrískir undirverktakar Ístaks hf. síga niður veggi Hafrahvammagljúfurs, fjarlægja laust grjót og koma síðan fyrir öryggisneti til að tryggja öryggi þeirra sem vinna munu í gljúfrinu í sumar og næsta sumar. Þeir munu sömuleiðis hreinsa laust grjót utan í sjálfum Fremri-Kárahnjúki og setja upp varnarvirki vegna hruns.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
17.6.2008: Vegurinn yfir Kárahnjúkastíflu opnaður 15. júlí |
Leiðin yfir Kárahnjúkastíflu verður opin almennri umferð frá 15. júlí til 15. ágúst í sumar. Fram að því er óheimilt að fara um stífluna nema í hádeginu, kl. 12:00-13:00 í fylgd öryggiseftirlitsmanns frá verktakanum, Ístaki. |
| Lesa meira >>
|
|
|
16.6.2008: Starfsmönnum fjölgar á framkvæmdasvæðinu |
A fjórða tug manna bættust við á framkvæmdasvæði Hrauna- og Jökulsárveitu í síðustu viku til að vera þar við byggingar- og jarðvinnu í sumar. Vel viðraði við útiverka alla vikuna og snjó tók frekar rólega upp, sem er að sjálfsögðu hagstætt. |
| Lesa meira >>
|
|
|
9.6.2008: Kelduá minnti enn á sig |
Vatn jókst í Kelduá í rigningunni á föstudaginn (6. júní) og um kvöldið tók hún í sundur veginn. Rigningarveður var líka á laugardag og það tók þann dag nær allan að bæta við ræsi í veginn til að gera veginn akfæran á ný. Annars hefur snjó tekið tiltölulega hægt upp á hálendinu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
4.6.2008: Fjöldi gesta í opnu húsi |
Hátt í 300 manns komu í Fljótsdalsstöð á laugardaginn til að kynna sér starfsemina þar í opnu húsi. Fólk fékk tækifæri til að skoða sjálft stöðvarhúsið inni í Valþjófsstaðarfjalli og að skoðunarferð lokinni gerði það skil kræsingum sem starfsfólk mötuneytisins í hlaðhúsinu hafði borið á borð. |
| Lesa meira >>
|
|
|
3.6.2008: Fulltrúar grænlensku landstjórnarinnar í heimsókn |
Grænlenska landstjórnin kynnti sér Kárahnjúkavirkjun og framkvæmdirnar eystra í gær, þriðjudag, í fylgd Sólveigar Dagmar kynningarfulltrúa og þótti mikil til koma það sem bar fyrir augu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
3.6.2008: Ístak tekið við framkvæmdum við Hraunaveitu |
| Verktakafyrirtækið Ístak tók við framkvæmdum við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar síðdegis á miðvikudaginn var, 28. maí, í samræmi við nýgerðan samning fyrirtækisins og Landsvirkjunar. Reynir Viðarsson tók jafnframt við af Sveini Þórarinssyni sem staðarstjóri og mannaskipti urðu í fleiri stjórnnarstöðum á svæðinu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
2.6.2008: Hálslón á fyrsta degi júnímánaðar |
Ólafur Þ. Rafnsson, hjá framkvæmdaeftirlitinu VIJV, notaði blíðviðrið sunnudaginn 1. júní til að rölta upp í hlíð Fremri-Kárahnjúks og upp á Sandfell, sem fékk heitið Sandey eftir að það var umlukið vatni Hálslóns í fyrrahaust. Hann tók nokkrar myndir sem sýna hvernig umhorfs er á svæðinu. Enn er kuldalegt um að litast en veturinn er vissulega að missa tökin á tilverunni.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
28.5.2008: Grjótárgöng grafin frá báðum endum |
Grjótárgöng eru nú sprengd og grafin frá báðum endum. Framgangurinn þar var alls 39 metrar og 1.243 metrar eftir í lok síðustu viku þar til endar næðu saman. |
| Lesa meira >>
|
|
|
26.5.2008: Heimild gefin til samninga við Ístak |
Stjórn Landsvirkjunar hefur heimilað stjórnendum fyrirtækisins að semja við Ístak um að ljúka framkvæmdum við Hraunaveitu í samræmi við tilboð verktakafyrirtækisins. Stefnt er að því að skrifa undir verksamninga núna í vikunni. |
| Lesa meira >>
|
|
|
24.5.2008: Hálslón enn í klakaböndum! |
Vetur ríkir enn við Kárahnjúka. Hálslón er enn í klakaböndum og lítið sést til lands undan snjóbreiðunni þarí grennd. Þórhallur Árnason var við lónið í gær, 23. maí, og tók myndirnar sem fylgja hér með. |
| Lesa meira >>
|
|
|
22.5.2008: Hreindýrasund í Fljótsdal |
Sjaldgæf sjón blasti við starfsmönnum í Fljótsdalsstöð þegar þeim var litið út um gluggann nú í vorblíðunni í Fljótsdal. Hreindýr lögðu til sunds yfir Jökulsá og náðu landi eftir sprettinn í straumþungu jökulvatninu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
22.5.2008: Sumarvinnan undirbúin |
Verkstjórar vinnuflokks ungmenna í Fljótsdalsstöð eru byrjaðir að undirbúa sumarið. Jónína Brá Árnadóttir og Anton Ástvaldsson munu stjórna 16 manna hópi sem tekur til hendinni við ýmis verkefni næstu vikur og mánuði.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
21.5.2008: Snævi þakið landið blasir við nýbornum hreindýrskálfi |
Tilveran er heldur nöturleg hjá hreindýrskúnni og nýbornum kálfi hennar sem Þórhallur Árnason rakst á í dag á Fljótsdalsheiðini, skammt frá aðgöngum 2. Það sá vart á dökkal díl þar sem dýrin voru á ferð en vonir standa til þess að vorið fari nú að minna á sig.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
19.5.2008: Lokið við að steypa gólf í Jökulsárgöngum |
Starfsmenn Hraunaveitu ehf. luku fyrir helgina að steypa gólfið í Jökulsárgöngum og notuðu þá hátt í 1.200 rúmmetra af steypu í síðasta áfanga verksins. Einungis er nú eftir að steypa gólfið í svokölluðum sveiflugöngum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.5.2008: Árni Benediktsson rafmagnsverkfræðingur ársins! |
Árni Benediktsson, þróunarstjóri orkusviðs Landsvirkjunar, hefur verið sæmdur viðurkenningunni rafmagnsverkfræðingur ársins af Verkfræðingafélagi Íslands og IEEE, alþjóðasamtökum rafmagnsverkfræðinga, sem í eru um 375.000 félagsmenn í yfir 160 löndum. Hann er verkefnisstjóri vél- og rafbúnaðar Kárahnjúkavirkjunar og hlýtur viðurkenninguna einmitt fyrir afburða frammistöðu í tengslum við gangsetningu virkjunarinnar í fyrra. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.5.2008: Vatnsborð Hálslóns |
Vatnsborð Hálslón hefur lækkað í vetur um 26 metra eða úr 625 metrum yfir sjávarmáli, þegar það var fullt, niður í um 599 metra yfir sjávarmáli. Um helmingur miðlunarforðans í lóninu hefur því verið notaður til raforkuframleiðslu í Fljótsdalsstöð. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.5.2008: 50 MW framleidd í Fljótsdal fyrir landskerfið |
Fljótdsstað framleiðir nú um 600 MW, þar af 550 MW fyrir Fjarðaál við Reyðarfjörð og 50 MW sem fara um byggðalínuna til notkunar annars staðar á landinu. Heildarafl stöðvarinnar er 690 MW (allar sex vélarnar samanlagt) en til samanburðar má geta þess að uppsett afl allra virkjana Landsvirkjunar er um 1.900 MW. |
| Lesa meira >>
|
|
|
10.5.2008: Vorið lætur bíða eftir sér á hálendinu! |
Á sama tíma og höfuðborgarbúar slá gras í görðum sínu, og sunnlenskir bændur sá korni og setja niður kartöflur, geta starfsmenn á virkjunarsvæðinu verið í snjókasti. Ef þeir eru á annað borð í skapi til slíks. |
| Lesa meira >>
|
|
|
5.5.2008: Enn einn vetrarhvellurinn - nú í byrjun sumars! |
Starfsmenn á framkvæmasvæðinu þurftu enn og aftur að þola vetrarhvell í síðustu viku. Óveðrið setti strik í reikninginn og kom í veg fyrir að menn kæmust til vinnu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
5.5.2008: Fyrstu gestirnir í Végarði fjórfættir |
Fyrstu gestir sumarsins í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal í ár voru fjórfættir og komu 25 saman í hóp. Þeir höfðu áberandi minni áhuga á Kárahnjúkavirkjun en þeim mun meiri á gróðrinum á völlunum næst félagsheimilinu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
2.5.2008: Ístak bauð lægst í ljúka framkvæmdum við Hraunaveitu |
Tvö tilboð bárust í dag í verkþátt KAR-25 við Kárahnjúkavirkjun, sem er að ljúka framkvæmdum við Hraunaveitu. Ístak hf. bauð um 2.676 milljónir króna og Suðurverk hf. bauð um 3.552 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar hljóðaði upp á um 2.965 milljónir króna.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.4.2008: Vegir ófærir og frostrósir á glugga! |
Sumarið er komið - á dagatalinu að minnsta kosti. Starfsmenn á framkvæmdasvæðinu höfðu gert sér vonir um að blíðviðri á dögunum boðaði langþráð vor en svo kom enn einn stórhríðarhvellurinn.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.4.2008: Végarður opnaður - skoðunarferðir inn í stöðvarhús í sumar |
Upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal verður opnuð á morgun, fimmtudaginn 1. maí, og verður opin daglega kl. 9:00-17:00 til 15. september. Þar er Kárahnjúkavirkjun kynnt í máli og myndum en sérstaka athygli ber að vekja á þeirri nýjung aðstandenda miðstöðvarinnar að bjóða í sumar upp á skipulagðar skoðunarferðir inn í stöðvarhús virkjunarinnar frá 10. júní til 10. ágúst.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
29.4.2008: Stærstu borhlutarnir komnir út |
| Starfsmönnum Impregilo gekk vel að koma stærstu stykkjum úr bor 2 út úr Jökulsárgöngum þó einungis skeikaði sentimetrum á köflum að göngin væru nógu víð. Legan, sem borkrónan snýst á, var flutt út á miðvikudaginn var leguhúsið daginn eftir. |
| Lesa meira >>
|
|
|
24.4.2008: Borinn flysjaður í sundur |
Bor 2 leysist smám saman upp í frumeindir sínar í Jökulsárgöngum. Starfsmenn Impregilo vinna nótt og dag við að skrúfa hann og logskera í sundur til að flytja síðan út úr göngunum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
22.4.2008: Borinn bútaður niður og fluttur út |
Starfsmenn Impregilo keppast við að taka bor 2 í sundur. Fyrir helgina var byrjað að flytja einstaka hluta tækisins út úr Jökulsárgöngum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.4.2008: Framkvæmdasvæðið í vetrarskrúða - nýjar loftmyndir |
Sveinn Ingimarsson, starfsmaður Hraunaveitu ehf. og Þórhallur Árnason, hjá framkvæmdaeftirlitinu VIJV, flugu yfir allt framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar í blíðunni í gær. Sá síðarnefndi tók fjölda firnaskemmtilegra mynda sem hér eru sýnishorn af. Um þetta leyti árs í fyrra var sem næst auð jörð þarna á hálendinu en nú sér þar vart á dökkan díl!
|
| Lesa meira >>
|
|
|
14.4.2008: Borinn tekinn í sundur |
Starfsmenn Impregilo eru komnir vel af stað með að hluta bor 2 í sundur til að flytja hann síðan út úr göngunum og af landi brott. Þetta er gert í risastórum helli í Jökulsárgöngum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
14.4.2008: Enn bætti á snjóinn um helgina |
Vorið lætur bíða eftir sér á hálendinu og um helgina bætti enn verulega á snjóinn um nýliðna helgi. Á myndum frá Málfríði Guðmundsdóttur, hjá framkvæmdaeftirlitinu VIJV, sést að vinnubúðir eru svo gott sem komnar í kaf og orðnar að snjóhúsum að hluta! |
| Lesa meira >>
|
|
|
14.4.2008: Snjórinn tefur fyrir framleiðslu steypuefnis |
Snjórinn á virkjunarsvæðinu setur á ýmsan hátt strik í reikning verktaka og starfsmanna þeirra. Það er ekki nóg með að ruðningstæki þurfi stöðugt að vera á ferð til að halda opnum vegum og moka frá vinnubúðum heldur hefur þurft að fresta því að steypa gólf í Jökulsárgöngum vegna þess að malað efni til steypuframleiðslu er búið. Tíðarfarið kemur með öðrum orðum í veg fyrir eðlilega efnisvinnslu á svæðinu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
11.4.2008: Heiðursskjal heimsmetshafanna |
Áhöfnin á bor 2 tryggði sér sess í heimsmetabókum jarðgangaborana í Jökulsárgöngum Kárahnjúkavirkjunar, verkefninu sem hún lauk með stæl síðastliðinn miðvikudag, 9. apríl. Af því tilefni fékk hún skjal til staðfestingar metinu og það fengum við að birta hér á síðunni. |
| Lesa meira >>
|
|
|
10.4.2008: Samið við Ístak um frágang við Kárahnjúkastíflu og í nágrenni |
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar og Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks hf., undirrituðu núna í vikunni samning um að verkþátt KAR-29 við Kárahnjúkavirkjun. Ístak átti lægsta tilboð í verkið. |
| Lesa meira >>
|
|
|
9.4.2008: Lokabomban í Kelduárgöngum |
Síðasta berghaftið í Kelduárgöngum austan Snæfells var sprengd síðdegis, eftir að bor 2 hafði lokið sínu verki. Fjöldi starfsmanna og gesta var á vettvangi þegar aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Agnar Olsen, þrýsti á hnappinn. |
| Lesa meira >>
|
|
|
9.4.2008: Borinn braust í gegn í rykmekki |
Kröftugt lófatak og húrrahróp bergmálaði í hellinum mikla í miðjum Jökulsárgöngum Kárahnjúkavirkjunar þegar bor 2 lauk sögulegu hlutverki sínu í dag að viðstöddu fjölmenni. Þar með lauk merkilegum kafla íslenskrar framkvæmdasögu sem hófst þegar fyrsta risaborvélin kom til landsins fyrir jólin 2003 vegna Kárahnjúkavirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
8.4.2008: Gegnumbrot í tvennum göngum á morgun, 9. apríl! |
Starfsmenn Impregilo ná þeim áfanga á morgun að ljúka við síðustu metrana í þeim hluta jarðganganets Kárahnjúkavirkjunar sem gert var ráð fyrir að heilbora með risaborvélum. Svo vill til að starfsmenn Hraunaveitu ehf. ,,slá í gegn" á sama tíma í Kelduárgöngum. Tveimur áföngum verður því náð samtímis í virkjunarframkvæmdunum á morgun.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
4.4.2008: ÍSOR telur eldgos við Upptyppinga ólíklegt á næstunni |
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) ætla að halda áfram svokölluðum viðnámsmælingum við Upptyppinga í sumar, meðal annars til að kanna hvort einhverjar breytingar hafi orðið frá mælingunum sumarið 2007. Upptök jarðhræringa á svæðinu eru á óvenju miklu dýpi. |
| Lesa meira >>
|
|
|
2.4.2008: Gegnumbrot í næstu viku |
Gert er ráð fyrir að bor 2 ,,slái í gegn" í Jökulsárgöngum í næstu viku og þar með ljúki framkvæmdum við að heilbora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar. Nánari tímasetning er óákveðin vegna óhagstæðs bergs á lokakafla borsins.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |