Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2008 mars-janúar

26.3.2008: Styttist í að borinn slái í gegn!

Bor 2 átti einungis eftir 225 metra í Jökulsárgöngum í lok páskavikunnar og því hillir undir að hann ljúki verki sínu með því að ,,slá í gegn". Sjálft bergið er hagstætt á leið borsins en færiböndin, sem flytja mulninginn út úr göngunum, eru hins vegar orðin slitin og raunar veltur það á endingu þeirra hvenær áfanganum verður náð.

Lesa meira >>
 

13.3.2008: Notalegra neðanjarðar

Ólíkt notalegra var að vinna í Jökulsárgöngum í dag en á yfirborði jarðar þar sem veturinn lét til sín taka svo um munaði. Snjóruðningstæki voru stöðugt í gangi við að halda Kárahnjúkavegi og öðrum brýnum akstursleiðum opnum og dugði varla til, svo mikið var renningskófið og ofanfjúkið.

Lesa meira >>
 

12.3.2008: Borinn á innan við 900 metra eftir

Bor 2 skilaði 670 metrum í febrúar. Hann hefur því borað alls 7,6 km eða 90% af þeim kafla sem honum er ætlaður í Jökulsárgöngum. Borinn á nú einungis eftir tæplega 900 metra.

Lesa meira >>
 

12.3.2008: 214 metrar á fjórum sólarhringum

Bor 2 gekk sérlega vel í Jökulsárgöngum fyrri hluta síðustu viku. Þá skilaði hann ríflega 214 metrum á aðeins fjórum sólarhringum, frá 3. til 6. mars eða 39 til 63 metrum á sólarhring.

Lesa meira >>
 

12.3.2008: Lokið við að prófa síðustu vélina í Fljótsdalsstöð

Aflvél 1 í Fljótsdalsstöð var á ný tengd við byggðalínuna 1. febrúar síðastliðinn eftir að vatnshjól hennar hafði verið tengt og búnaður, sem notaður var við launaflsrekstur rafalans, fjarlægður.
Síðan þá hafa staðið yfir ýmsar prófanir á vélinni en þeim lauk fyrir síðustu helgi og þar með er sjötta og síðasta vél stöðvarinnar útskrifuð.

Lesa meira >>
 

7.3.2008: Skýrsla um framkvæmdakostnað lögð fyrir Alþingi

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um kostnað við Kárahnjúkavirkjun að beiðni Álfheiðar Ingadóttur og fleiri þingmanna. Skýrslan fylgir hér með sem fylgiskjal neðst í fréttinni. Þar er meðal annars fjallað um verksamninga, viðbótarsamninga, aukaverk, og kostnað við mótvægisaðgerðir. Síðast en ekki síst  er fjallað um tekjur af Kárahnjúkavirkjun.

Lesa meira >>
Skýrsla iðnaðarráðherra til Alþingis um kostnað vi
 

5.3.2008: Ekki unnt að álykta að jarðhræringar við Upptyppinga tengist Hálslóni

Tölfræðileg gögn gefa ekki tilefni til að rekja megi jarðhræringar við Upptyppinga til fyllingar Hálslóns, segja tveir vísindamenn sem könnuðu fylgni vatnssöfnunar í Hálslón og skjálftavirkni við Upptyppinga. Sérfræðinganefnd um stíflur Kárahnjúkavirkjunar hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að tengsl lóns og jarðhræringa væru hvorki líkleg né studd eðlisfræðilegum rökum.

Lesa meira >>
 

28.2.2008: Skaplegt veður aðra vikuna í röð

Úr Jökulsárgöngum. Mynd: Kevin McArdleÞokkalega viðraði til vinnu á virkjunarsvæðinu í síðustu viku, aðra vikuna í röð. Þar var samt frost alla daga og skafrenningur um tíma en það telst ekki stórvægilegt miðað við veðurlagið í janúar og framan af febrúar.

Lesa meira >>
Myndir frá Kevin McArdle úr Jökulsárgöngum
 

27.2.2008: Stóriðjubálkur í National Geographic

Tímaritið National Geographic helgar Íslandi 28 blaðsíður í nýtkomnu marshefti sínu. Meginþemað í umfjölluninni er landið, fólkið og gagnstæð viðhorf til orkufreks iðnaðar með álver við Reyðarfjörð og Kárahnjúkavirkjun sem útgangspunkt.

Lesa meira >>
 

25.2.2008: Ístak átti lægra tilboðið í KAR-29

Tvö tilboð bárust í ýmsa verkþætti við lokafrágang Kárahnjúkastíflu. Ístak bauð ríflega 829 milljónir en Héraðsverk ríflega 1.225 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á um 903 milljónir króna.

Lesa meira >>
 

25.2.2008: Fljótsdalsstöð gæðavottuð

Starfsmenn Fljótsdalsstöðvar hafa fengið formlega staðfest að vinnustaður þeirra og starfsemi sé með ISO-9001 og ISO-14001 gæða- og umhverfisvottun. Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri Landsvirkjunar og Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orkusviðs,  afhentu í dag bréf upp á þetta í Fljótsdal.

Lesa meira >>
 

23.1.2008: Arðsemi Kárahnjúkavirkjunar reynist meiri en gert var ráð fyrir

Kárahnjúkavirkjun er arðsamari en reiknað var með í mati þar að lútandi árið 2002 og 2006. Landsvirkjun birti í dag nýtt arðsemismat, sem Capasent yfirfór og telur vel grundað og skilmerkilegt. Capasent bætir við að forsendur nýja matsins séu ,,í nokkrum tilvikum óþarflega varfærnar", einkum varðandi tekjur af raforkusölu.

Lesa meira >>
Greinargerð um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar
 

18.2.2008: Borað og sprengt í lofti ganganna framan við borinn

Kínverskir bormenn við stafninn þar sem borinn er staddur í Jökulsárgöngum. Mynd: Þórhallur ÁrnasonBor 2 á eftir um 1.160 metra í Jökulsárgöngum. Hann er nú stopp í bili á meðan gengið er frá útloftunargati með tilheyrandi tilfæringum.

Lesa meira >>
 

18.2.2008: Vinna komin á skrið á ný við Jökulsárveitu

Kynningarstjórinn við stjórnvölinn! Sigurður Arnalds við stýrið á bor 2 í Jökulsárgöngum.Vinna við Jökulsárveitu komst á fullan skrið í síðustu viku eftir nokkurra vikna hægagang sem stafaði aðallega af rekstrarerfiðleikum verktakans. Nýtt félag í eigu Landsvirkjunar, Hraunaveita ehf., hefur nú tekið yfir verksamninga sem Arnarfell hafði með að gera á svæðinu.

Lesa meira >>
 

13.2.2008: Snjóhús við aðgöng 2
Vinnubúðirnar við aðgöng 2 eru eiginlega hálfgert snjóhúsaþorp nú um stundir. Glögglega má sjá hvernig umhorfs er þar á skemmtilegum myndum sem bárust frá Málfríði Guðmundsdóttur hjá framkvæmdaeftirlitinu VIJV.
Lesa meira >>
 

12.2.2008. Hjarnbúskapur hreindýranna

Hreindýrin á Austurlandi þurfa að hafa talsvert fyrir því að komast í eitthvað ætilegt undir öllum sjónum. Þórhallur Árnason var á ferð og kom að hópi dýra sem krafsaði í jörðu til að ná í eitthvað og seðja hungrið...

Lesa meira >>
 

12.2.2008: Bormenn komust ekki til vinnu vegna óveðurs og ófærðar

Bor 2 skilaði tæplega 130 metrum í síðustu viku. Það verður að teljast bærilegt miðað við aðstæður á vettvangi.

Lesa meira >>
 

12.2.2008: Hjólin farin að snúast við Hrauna- og Jökulsárveitur

Starfsmenn Hraunaveitu ehf., nýstofnaðs dótturfélags Landsvirkjunar, eru komnir á skrið við störf ofan jarðar og neðn við Jökulsár- og Hraunaveitur. Framan af þessari viku hefur meira að segja viðrað við verka, sem er meira en hægt var að segja í síðustu viku.

Lesa meira >>
 

11.2.2008: Sjúkrabíll með norðurljósum!

Blá og blikkandi ljós tilheyra sjúkrabílum þegar mikið liggur við. Þessum bíl á Kárahnjúkasvæðinu fylgdu hins vegar norðurljós svo mun munaði,þegar Þórhall Árnason þar að á dögunum!

Lesa meira >>
 

7.2.2008: Mesta vetrarríkið frá upphafi framkvæmda

Verktakar og starfsmenn þeirra við Kárahnjúkavirkjun hafa undanfarin ár notið fremur hagstæðs veðurfars vetur eftir vetur. Raunar má segja að gangur útiverka hafi á stundum verið langt framar vonum miðað við árstíma.

Lesa meira >>
 

7.2.2008: Hraunaveita ehf. tekur upp þráðinn austan Snæfells

Hraunaveita ehf., nýtt dótturfélag Landsvirkjunar, hefur tekið til starfa á framkvæmdasvæði Jökulsárveitu austan Snæfells eftir að hafa yfirtekið alla fjóra verksamninga Arnarfells ehf. þar. Langflestir starfsmenn Arnarfells við virkjunarframkvæmdirnar hafa ráðið sig til starfa hjá Hraunaveitum ehf.

Lesa meira >>
 

4.2.2008: Hörkuvetur og fannfergi á virkjunarsvæðinu

Fannfergi er á vinnustöðum Kárahnjúkavirkjunar á hálendinu og starfsaðstæður í samræmi við það. Til dæmis hefur snjór safnast í hengjur ofan aðkomugöng 2 og framkvæmdaeftirlitið hefur því í öryggisskyni bannað alla umferð gangandi fólks um gangamunnann. 

Lesa meira >>
 

4.2.2008: Vetrarríkið hefur áhrif á framkvæmdirnar

Frost í göngum!Lítið var hægt að aðhafast á framkvæmasvæðinu á  fimmtudaginn var, 31. janúar, vegna óveðurs og fannfergis. Meðal annars var bor 2 þá stopp í um sólahring.

Lesa meira >>
 

29.1.2008: Tæpir 200 metrar boraðir á einni viku

Bor 2 miðaði vel í Jökulsárgöngum í síðustu viku og skilaði tæplega 197 metrum. Afköstin á sólarhring voru einu sinni yfir 40 metrar og í tvígang um 35 metrar.

Lesa meira >>
 

24.1.2008: Myndavetur

Vetrarbirta og snjóalög eru sígild yrkisefni ljósmyndara. Þórhallur okkar Árnason var á ferð á dögunum og þannig sá hann tilveruna í gegnum linsur myndavélarinnar sinnar í það sinnið.

Lesa meira >>
 

24.1.2008: Landsvirkjun tekur yfir samninga við Arnarfell

Landsvirkjun ætlar að yfirtaka samninga verktakafyrirtækisins Arnarfells vegna framkvæmda við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar austan Snæfells. Þetta kemur fram í eftirfarandi yfirlýsingu Landsvirkjunar í dag, 24. janúar:

Lesa meira >>
 

23.1.2008: Frágangur Kárahnjúkastíflu og fleiri verk sumarið 2008 boðin út

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í ýmsa verkþætti við Kárahnjúka sumarið 2008, þar á meðal frágang Kárahnjúkastíflu, verkþáttur. Tilboðum skal skilað fyrir kl. 14 föstudaginn 22. febrúar og þá verða þau opnuð. 

Lesa meira >>
 

22.1.2008: Borað í basalti með góðum árangri

Bor 2 skilaði 145 metrum í Jökulsárgöngum síðustu viku, nákvæmlega sömu vegalengd og í vikunni þar á undan. Hann er hagstæðu bergi, hörðu basalti, og gengur vel.

Lesa meira >>
 

17.1.2008: Tilboð í mötuneyti og ræstingu

Tvö tilboð bárust í rekstur mötuneytis og ræstingu í Fljótsdalsstöð. Landsvirkjun bauð þessa þjónustu út í desember 2006 og tilboð voru opnuð í dag.

Lesa meira >>
 

17.1.2008: Fljótsdalsstöð sendir 50 megavött suður með Byggðalínunni

Kárahnjúkavirkjun hefur undanfarnar vikur framleitt um 50 megavött umfram þarfir álvers Alcoa við Reyðarfjörð. Þessi raforka úr Fljótsdal fer inn á landskerfið með Byggðalínunni og kemur sér vel þann tíma sem orkuvinnsla liggur niðri í Sultartangavirkjun vegna bilunar  í spennum.

Lesa meira >>
 

16.1.2008: Borinn að komast á skrið

Bor 2 skilaði 145 metrum í síðustu viku, sem eru mestu afköst á einni viku frá því í lok september.

Lesa meira >>
 

9.1.2008: Borinn undir Laugarfelli

Bor 2 fór hægt í Jökulsárgöngum í fyrstu viku ársins. Hann er staddur undir Laugarfelli og skilaði alls 24 metrum á fjórum sólarhringum.

Lesa meira >>
 

9.1.2008: Betri gangur hjá bornum í síðari hluta desember

Bor 2 miðaði afar hægt í Jökulsárgöngum í desember en sýnu betur samt í síðari hluta jólamánaðarins en hinum fyrri. Á leið borsins var sprunga með lausum efnum og mikinn tíma tók að styrkja bergið með stálbogum og sprautusteypu.

Lesa meira >>