 |
|
 |
30.6.2007: Mótorhjólamenn í Végarði |
Hátt í fjörtíu skandínavískir mótorhjólamenn á vélfákum riðu í hlað í Végarði í Fljótsdal fyrir helgina, nýkomnir úr Smyril Line á Seyðisfirði og voru að leggja upp í hálfsmánaðar ferð um landið. Þeir voru áhugasamir um Kárahnjúkavirkjun og voru þarna drjúga stund til að kynna sér framkvæmdirnar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
29.6.2007: Botnrásarlokur opnar frá þriðjudegi 3. júlí til föstudags 6. júlí |
Botnrásarlokur Kárahnjúkastíflu verða opnaðar kl. 10:00 að morgni 3. júlí. Litlum spýjum verður hleypt út fyrsta hálftímann og kl. 10:30 verða botnlokur svo opnaðar til hálfs. Um miðjan dag verður opnað að þremur fjórðu hlutum og til fulls kl. 18 sama dag. Lokurnar verða síðan opnar nánast óslitið til kl. 20 að kvöldi 6. júlí. |
| Lesa meira >>
|
|
|
29.6.2007: Brúargólf steypt |
Starfsmenn Impregilo byrjuðu núna fyrir helgina á að steypa gólf brúarinnar á yfirfalli Hálslóns, vestan Kárahnjúkastíflu. Á mynd Þórhalls Árnasonar blasir lónið við í bakgrunni.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
28.6.2007: Vatnsborðshæð Hálslóns |
Vatnsborð Hálslóns var komið í 596,5 metra yfir sjávarmáli í dag, 28. júní, og hafði hækkað um tæplega 63 cm á sólarhring að jafnaði síðastliðna viku. |
| Lesa meira >>
|
|
|
27.6.2007: Sandfell að verða eyja |
Eftir því sem vatn hækkar í Hálslóni styttist í að Sandfell verði að eyju í lóninu. Á myndum Ólafs Þ. Rafnssonar frá í dag sést að vatn er komið vel upp á Desjarárstíflu og meðfram Sandfellinu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
27.6.2007: Heimsmetið staðfest |
Það hefur verið staðfest með óyggjandi hætti að bor 2 setti heimsmet í aðrennslisgöngum Jökulsárveitu á laugardaginn þegar hann boraði 106,12 metra á einum sólarhring. Fyrra metið var ástralskt. |
| Lesa meira >>
|
|
|
27.6.2007: Júníhret við Kárahnjúka! |
Vetrarlegt var um að litast á hálendinu norðan Vatnajökuls í morgun, þó komið sé fram yfir sumarsólstöður. Verkamenn þurftu að klæðast kuldagöllum og meira að segja varð að ræsa út tæki til að ryðja sjó af efsta hluta Kárahnjúkavegar! Þetta er sem sagt Ísland í dag - að minnsta kosti á þessum slóðum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
25.6.2007: Banaslys í Fljótsdalsstöð |
Portúgalskur starfsmaður Stálsmiðjunnar ehf. sem er undirverktaki fyrirtækisins VA-Tech lést á níunda tímanum í morgun af völdum áverka sem hann fékk við fjögurra metra fall niður á steingólf í Fljótsdalsstöð, stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. |
| Lesa meira >>
|
|
|
24.6.2007: Heimsmet í gangaborun á laugardaginn! |
Bor 2 setti heimsmet í borun jarðganga í gær, laugardaginn 23. júní. Hann boraði þá 106,12 metra á einum sólarhring og engin önnur dæmi munu vera um slíkan árangur í heiminum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
22.6.2007: Ný þjónustumiðstöð og nýr útsýnispallur |
Steindór Jónsson veitingamaður hefur opnað þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn skammt frá Desjarárstíflu. Spölkorn þar frá hefur verið útbúinn útsýnisstaður þar sem sést vel til Kárahnjúkastíflu, Desjarárstíflu og yfir neðsta hluta Hálslóns.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
22.6.2007: Úrbætur skiluðu árangri, lýsing læknisins orðum aukin |
Matthías Halldórsson landlæknir kemst að þeirri niðurstöðu, í greinargerð sinni ,,um veikindi starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun í apríl 2007 og viðbrögð heilbrigðisstarfsmanna við þeim", að á annan tug manna hafi ,,líklega eða örugglega" veikst af völdum mengaðs lofts í jarðgöngum virkjunarinanr í apríl. Í fjölmiðlum á þessum tíma mátti hins vegar skilja af ummælum yfirlæknis á virkjunarsvæðinu að um væri að ræða allt að 180 manns. |
Lesa meira >>
Greinargerð landlæknis í heild sinni
|
|
|
22.6.2007: Vaktmaður við veginn að Desjarárstíflu |
Vaktmaður tók sér í dag stöðu við hlið á veginum sem liggur í framhaldi af Kárahnjúkavegi út á Desjarárstíflu. Þetta þótti nauðsynlegt til að verja framkvæmdasvæðið fyrir ágangi ferðafólks!
|
| Lesa meira >>
|
|
|
21.6.2007: 70 cm hækkun á sólarhring |
Vatnsborð Hálslóns var í dag komið í 592 metra hæð yfir sjávarmáli og hafði hækkað um 70 cm að meðaltali undanfarna viku. Flatarmál Hálslóns er núna um helmingur þess sem það verður við þegar fyllist eða um 26 ferkílómetrar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
20.6.2007: Vatn komið að Desjarárstíflu |
Vatnsborð Hálslóns hækkar dag frá degi og lónið stækkar jafnframt að flatarmáli. Nú er vinnuvegur Suðurverks vestan Desjarárstíflu að hverfa undir vatn. Síðustu bílunum var ekið um hann um kl. 14 í gær, 19. júní.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
20.6.2007: Bor á blússi, brú á yfirfalli |
Bor 2 gengur afar vel í aðrennslisgöngum Jökulsársveitu. Hann lengdi göngin um 215 metra í síðustu viku og hafði þar með borað um 1.900 metra, tæplega fjórðung leiðarinnar sem honum er ætlað að bora. |
| Lesa meira >>
|
|
|
12.6.2007: Yfirfallið brúað |
Öflugir kranar lyftu núna í vikubyrjun stálbitum upp á undirstöður brúar sem steyptar hafa verið beggja vegna yfirfalls Hálslóns, við vesturenda Kárahnjúkastíflu. Það er enn ein sýnilegt vísbending um að framkvæmdirnar séu á lokakaflanum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
14.6.2007: Mikið rennsli inn í lónið |
Vatnsborð Hálslóns hækkaði um ríflega hálfan metra að jafnaði á sólarhring í síðastliðinni viku. Það er nú komið í 587 metraog vantar innan við 40 metra upp á að ná fullri hæð. |
| Lesa meira >>
|
|
|
13.6.2007: Kárahnjúkastífla komin í kápuna |
Starfsmenn Impregilo náðu merkum áfanga í virkjunarframkvæmdunum í kvöld. Þeir luku við að steypa þéttikápuna sem þekur hlið Kárahnjúkastíflu vatnsmegin.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
13.6.2007: Tappað af Hálslóni í sumar til að hægja á fyllingu þess |
Hálslón fyllist að óbreyttu fyrr en æskilegt þykir, enda ráð fyrir því gert að halda fyllingarhraðanum niðri í öryggisskyni. Því hefur verið ákveðið að ,,tappa af lóninu" í sumar með því að opna botnrásarlokur Kárahnjúkastíflu af og til næstu vikur og mánuði. |
| Lesa meira >>
|
|
|
12.6.2007: Rýmingaræfing á Jökuldal |
Efnt var til svokallaðrar rýmingaræfingar á Jökuldal síðastliðinn laugardag í því skyni að láta reyna á nýja viðbragðsáætlun almannavarnakerfisins á áhrifasvæði Hálslóns. Í viðbragðsáætluninni er fjallað um hvernig bregðast skuli við ef varð yrði leka í stíflum Hálslóns og hætta yrði talin á að stífla þar rofnaði með tilheyrandi flóðahættu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
7.6.2007: Yfirborð Hálslóns 7. júní |
Vatnsborð Hálslóns var í dag komið í 583,1 metra yfir sjávarmáli og hafði hækkað um tæplega þrjá metra á hálfum mánuði eða um 20 cm á sólarhring að meðaltali. |
| Lesa meira >>
|
|
|
6.6.2007: Flýtt fyrir með því fylla neðri hluta aðrennslisganganna af grunnvatni |
Ákveðið er að vinna að hluta upp tafir í frágangsvinnu í frárennslisgöngunum með því að forgangsraða þar verkum. Frágangi verður fyrst lokið í neðsta hluta ganganna (norðan aðganga 2 og Axarár).
|
| Lesa meira >>
|
|
|
5.6.2007: Tilboð í handrið á Kárahnjúkastíflu |
Tilboð voru í dag opnuð í handrið á ölduvarnaveggnum sem verið er að reisa ofan á Kárahnjúkastíflu. Þetta er verkþáttur KAR-55. |
| Lesa meira >>
|
|
|
5.6.2007: Ísjakar á Hálslóni |
Myndarlegir ísjakar eru á floti á Hálslóni. Tveir þeirra eru komnir niður undir Kárahnjúkastíflu. Þórhallur Árnason hjá framkvæmdaeftirlitinu VIJV tók meðfylgjandi myndir af jökunum í dag.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.5.2007: Viðhald tefur borinn |
Borinn mikli fór innan við hundrað metra í síðustu viku, sem telst hóflegt mjög miðað við framgang mála hjá honum sumar vikurnar þar á undan. Skýringin er viðtaldsvinna, einkum stopp á meðan skipt var um skera í borkrónunni. |
| Lesa meira >>
|
|
|
30.5.2007: Af litlu lóni og stóru |
Vatn er farið að seytla í gegnum berglög í mjóum kambi á milli Hálslóns og efnisnámu fyrir Desjarárstíflu. Brátt fer að renna úr Hálslóni inn í námuna um skarð sem rofið var í kambinn. |
| Lesa meira >>
|
|
|
30.5.2007: Á fjórða hundrað manns hjá Arnarfelli í sumar |
Ráðamenn verktakafyrirtækisins Arnarfells búast við að þarna starfi allt að 330 manns þegar mest verða umsvifin hjá þeim í Jökulsárveitu í sumar. Um þriðjundur mannaflans verður íslenskur. |
| Lesa meira >>
|
|
|
30.5.2007: Inntakslokubúnaði komið fyrir |
Á annað hundrað manns hafa unnið undanfarið við að koma fyrir stálfóðringum og öðru tilheyrandi í inntakslokahvelfingu Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. Verktaki þessa framkvæmdaþáttar er DSB-Stahlbau. |
| Lesa meira >>
|
|
|
30.5.2007: Yfirfallsrennan tekur á sig mynd |
Steypuvinna í rennunni frá yfirfallsþró Hálslóns er langt komin. Þarna vinnur fjöldi manna við lokaáfanga verksins. |
| Lesa meira >>
|
|
|
25.5.2007: Vatnsborðshæðin 24. maí |
Vatnsborð Hálslóns var komið í 580 metra hæð yfir sjó í gær, 24. maí. Það hafði þá hækkað um 7 sentimetra á sólarhring að jafnaði undanfarnar tvær vikur. |
| Lesa meira >>
|
|
|
22.5.2007: Suðurverksmenn byrjaðir á ný við Desjarárstíflu |
Verktakafyrirtækið Suðurverk er byrjað af krafti við frágang Desjarárstíflu, að loknu óhjákvæmilegu vetrarhléi við framkvæmdirnar. Ýmsum frágangsverkum er ólokið, þar á meðal gerð varanlegrar akbrautar eftir stíflunni endilangri. |
| Lesa meira >>
|
|
|
22.5.2007: Góður gangur á bornum |
Borinn snerist mikið og örugglega í Jökulsárveitunni í síðustu viku. Afköstin urðu hátt í 250 metrar, sem telst gott og tvöfalt meira en í vikunni þar á undan. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.5.2007: Lokið við að þétta bergið við Kárahnjúkastíflu |
Þéttingu bergs til beggja enda Kárahnjúkastíflu og undir stíflunni er nú lokið. Þar með er stórum og mikilvægum áfanga náð í virkjunarframkvæmdunum. ,,Þéttingartjaldið" var útskrifað síðastliðinn þriðjudag, 15. maí. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.5.2007: Á athafnasvæði Arnarfells |
120-150 manns starfa að jafnaði um þessar mundir á vegum Arnarfells við Jökulsárveitu, bæði ofan- og neðanjarðar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
16.5.2007: Lokið við að steypa þriðju grjótgildruna |
Steypuvinna hófst við grjótgildruna 10. mars og henni lauk í síðustu viku. Þessi gildra er 78 metrar að lengd, efst í frárennslisgöngunum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.5.2007: Girðir ehf. bauð lægst í girðingar í Fljótsdal |
Girðir ehf. átti lægsta tilboð í girðingar í Fljótsdal í sumar. Þrjú tilboð bárust í verkið, öll yfir kostnaðaráætlun.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
11.5.2007: Lóðhæðin 10. maí |
Vatnsborð Hálslóns var komið í 579,2 metra yfir sjávarmáli fimmtudaginn 10. maí og hafði hækkað um liðlega tvo metra á einni viku. |
| Lesa meira >>
|
|
|
11.5.2007: Starfsmenn HSA í heimsókn |
Starfsfólk Heilbrigðistsstofnunar Austurlands (HSA) fóru um framkvæmdasvæðið á dögunum og kynntu sér gang mála. |
| Lesa meira >>
|
|
|
11.5.2007: Lagarfljótsormur skapaður í Végarði |
Hollenskur listamaður, Hanni Stolker að nafni, stendur að því þessa dagana að skapa Lagarfljótsorminn í sal upplýsingamiðstöð Kárahnjúkavirkjunar í Végarði í Fljótsdal. Stolker dvelur annars að Skriðuklaustri og vinnur að list sinni.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
10.5.2007: Góð vika á stíflu og í yfirfallsskurði |
Steypuvinna í rennunni frá yfirfalli Hálslóns niður í gljúfrið gekk afar vel í síðustu viku og framgangur verksins var sá mesti í einni viku frá áramótum. Sömuleiðis var góðum áföngum náð við að steypa upp ölduvarnavegginn á Kárahnjúkastíflu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
3.5.2007: Ölduvarnaveggurinn rís á stíflunni |
Vel miðar að steypa upp ölduvarnavegginn mikla eftir Kárahnjúkastíflu endilangri. Lokið er sem svarar til 65% af verkinu. Veggurinn verður 6 metra hár.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
3.5.2007: Lónshæðin 3. maí |
Vorvindar bræða snjó á hálendinu og nú snareykst vatnsrennsli inn í Hálslón. Vatnsborðið hækkaði um heila þrjá metra undanfarna viku eða vel yfir 40 sentimetra á sólarhring að jafnaði.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
2.5.2007: Harkan sex í berginu |
Risaborinn í Jökulsárveitu var stopp í tvo sólarhringa í síðustu viku á meðan skipt var um skera í borkrónunni. Jafnframt var bergið styrkt með stálboltum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.4.2007: Vinna hafin að nýju undir Þrælahálsi |
Vinna hófst að nýju um helgina við frágang í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar undir Þrælahálsi, á hluta þess svæðis sem Vinnueftirlit ríkisins stöðvaði starfsemi á vegna loftmengunar í síðustu viku. Áfram er unnið að því að auka við loftræsibúnað á hinum hluta svæðisins. |
| Lesa meira >>
|
|
|
28.4.2007: Vatnsborðshæðin 26. apríl |
Vatnið í Hálslóni var komið í rúmlega 574 metra yfir sjávarmáli fimmtudaginn 26. apríl og hafði hækkað um tvo metra á hálfum mánuði. Rennslið inn í lónið eykst með vori og hækkandi sól. Merki nýrrar árstíðar sjást reyndar nú þegar við stífluna þar sem ísinn á lóninu brotnar og bráðnar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
26.04.2007: Loftmengun og veikindi í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar |
Því fer fjarri að 180 manns hafi veikst í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar eins og fram kom í samtali við yfirlækni heilsugæslunnar á virkjunarsvæðinu í hádegsfréttum Útvarpsins í gær. Þetta kom fram á fundi um málið í dag og í framhaldinu sendi Landsvirkjun eftirfarandi yfirlýsingu til fölmiðla: |
| Lesa meira >>
|
|
|
24.4.2007: Vinna stöðvuð í aðrennslisgöngunum |
Vinnueftirlit ríkisins stöðvaði síðdegis í dag vinnu, vegna loftmengunar, á um 12 kílómetra kafla í aðrennslisgöngunum á milli aðganga 2 og 3. Verktakafyrirtækinu Impregilo er gert að skila áætlun um úrbætur fyrir hádegi á morgun. |
| Lesa meira >>
|
|
|
23.4.2007: Bornum sækist betur |
Betur gekk að bora í síðustu viku en í vikunni þar áður í aðrennslisgöngum Jökulsárveitu. Þar er við hart basalt að eiga. |
| Lesa meira >>
|
|
|
23.4.2007: Fjórðungi framkvæmda ólokið við yfirfallsskurðinn |
Um 67% framkvæmda við yfirfallskurðinn vestan Kárahnjúkastíflu er lokið. Þar hefur verið unnið meira og minna undanfarið, nema í mestu vetrarhörkunum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
23.4.2007: Tugir starfsmanna á virkjunarsvæðinu magaveikir |
Um 40 starfsmenn við aðgöng 2 í aðrennslisgöngunum voru óvinnufærir síðastliðinn föstudag vegna magaveiki sem grunur leikur á að rekja megi til hreinlæti hafi verið ábótavant. Fulltrúi heilbrigðisyfirvalda fór á vettvang og lagði fyrir verktakann, Impregilo, að bæta úr þegar í stað. |
| Lesa meira >>
|
|
|
21.4.2007: Upplýsingamiðstöðin í Végarði opnuð 27. apríl |
| Upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal verður að nýju á föstudaginn kemur, 27. apríl, og verður opin daglega kl. 9:00-17:00 til 15. október. |
| Lesa meira >>
|
|
|
19.4.2007: Gleðilegt sumar! |
Gleðilegt sumar og þökk fyrir veturinn! Að vísu blésu ekki sérlega sumarlegir vindar víða á landinu í dag og frekar vetrarlegt var um að litast á virkjunarsvæðinu norðan Vatnajökuls. Sumar og vetur frusu rækilega saman þar eystra og það veit á gott. Þórhallur Árnason hjá framkvæmdaeftirlitinu fór á stjá með myndavélina sína í morgun og sendi okkur fína sumarstemningu af vettvangi! |
| Lesa meira >>
|
|
|
18.4.2007: Jóhann G. Bergþórsson til liðs við Arnarfell í Jökulsárveitu |
Einn af reynsluboltum landsins í virkjunarframkvæmdum, Jóhann G. Bergþórsson, verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri Hagvirkis, er kominn til tímabundinna starfa hjá verktakafyrirtækinu Arnarfelli og ætlar að leggja því lið við stíflugerð vegna Jökulsárveitu. Hann hefur með sér gamalreynda samstarfsstarfsmenn sem verða í stjórnunarstörfum við jarðvinnu og stíflugerð. |
| Lesa meira >>
|
|
|
18.4.2007: Borað í hörðu bergi |
Borinn 2 glímdi við afar hart basalt í síðustu viku. Nokkrir skerar í borkrónunni játuðu sig sigraða og skipta þurfti um þá. Þessi harka í berginu skýrir það að borinn skilaði ekki meiru en tæplega 115 metrum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.4.2007: Stálrör híft niður í þrýstijöfnunarstrokk |

Allt gekk eftir áætlun þegar stærðar rörstykki úr stáli var híft á dögunum á sinn stað niðri í lóðréttum göngum eða strokki við Hólsufs á Fljótsdalsheiði. Þetta er hluti af þrýstijöfnunarbúnaði aðrennslisganganna úr Hálslóni. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.4.2007: Ný jarðlest í tækjasafnið |
Starfsmönnum hefur verið fjölgað í frágangsverkum í aðrennslisgöngunum til að flýta fyrir verklokum. Tækjum fjölgar líka í sama tilgangi, meðal annars flutningalestum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
13.4.2007: Vatnsborð Hálslóns 12. apríl |
Vatnsborð Hálslóns var komið í ríflega 572 metra yfir sjávarmáli í gær, 12. apríl. Það hafði þá hækkað um tæplega tvo metra frá síðustu mælingu fyrir tveimur vikum. Við tókum nefnilega ekki ,,sólarhæðina" í þessum efnum á föstudaginn langa og því líður nú hálfur mánuður milli mælinga. |
| Lesa meira >>
|
|
|
10.4.2007: Borinn fer vel af stað |
Bor 2 byrjar vel í göngunum að Ufsarlóni austan Snæfells. Hann skilaði ríflega 230 metrum í síðustu viku, sem teljast ágæt afköst. |
| Lesa meira >>
|
|
|
6.4.2007: Harður árekstur á Kárahnjúkavegi |
Mildi var að ökumenn tveggja bíla sluppu með minniháttar meiðsl eftir afar harðan árekstur á Kárahnjúkavegi. Slysið átti sér stað í blindaþoku við Laugafell, skammt vestan við afleggjarann að Eyjabökkum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
4.4.2007: Virkjunarsvæðið er lokað og vaktað! |
Ástæða er til að ítreka, nú í aðdraganda páskahátíðar og tilheyrandi ferðalaga, að virkjunarsvæðið er lokað almenningi. Gæsla verður þar fram yfir páska og bílum verður snúið við, ætli menn sér að aka inn á vinnusvæðið. |
| Lesa meira >>
|
|
|
3.4.2007: Bor 2 kominn á blað |
| Risabor 2 fer vel af stað í göngum Jökulsárveitu. Boraðir voru 7 metrar á fimmtudaginn, 14 á föstudag og 38 metrar á laugardag eða alls tæplega 60 metrar á fyrstu þremur sólarhringunum. Arnarfellsmenn hófu sömuleiðis fyrir helgina vinnu við að sprengja hinum megin og hyggast gera um einn kílómetra ganga til móts við borinn. |
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |