Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2006 desember-október

21.12.2006: Tíföld hækkun vatnsborðs miðað við síðustu viku

Vatnsborð Hálslón var í dag komið í 562,2 metra og hafði hækkað um tæplega 60 sentimetra á sólarhring, sem er tífalt meira en að jafnaði í síðustu viku. Skýringin er að sjálfsögðu asahlákan á landinu öllu með tilheyrandi vatnavöxtum.

Lesa meira >>
 

20.12.2006: Góður gangur í framkvæmdum í Fljótsdalsstöð

Byggingarvinnu er nú að heita lokið í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal og vinnu við vél- og rafbúnað miðar vel áfram. Prófanir eru þegar hafnar á ýmsum hjálparbúnaði og stjórnbúnaði í bæði stöðvarhúsinu og stjórnstöðinni í þjónustubyggingu Fljótsdalsstöðvar.

Lesa meira >>
 

19.12.2006: Fyrsta mannvirki Kárahnjúkavirkjunar afhent orkusviði Landsvirkjunar

Merkur áfangi náðist fyrir helgi þegar orkusviði Landsvirkjunar var afhent fyrsta fullbúna mannvirki Kárahnjúkavirkjunarinnar en það er þjónustubygging, eða hlaðhús, Fljótsdalsstöðvar.

Lesa meira >>
 

18.12.2006: Gestum í Végarði fjölgaði um 35% frá því sumarið 2005!

Gestir í kynningarmiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal voru yfir 16.000 talsins í sumar og fjölgaði um hátt í 35% frá sama tímabili árið 2005. Dæmi eru um að skipuleggjendur ferða um Ísland hyggjast gera virkjunarsvæðið að föstum áningarstað sumarið 2007.

Lesa meira >>
 

15.12.2006: Aðgerðir við öryggiseftirlit og öryggisfræðslu hafa verið efldar

Undanfarnar vikur hefur átt sér stað fjölgun vinnuslysa hjá ítalska verktakanum Impregilo sem annast framkvæmdir við tvo stærstu verkþætti virkjunarinnar, byggingu Kárahnjúkastíflu og gerð aðrennslisganga.

Lesa meira >>
 

14.12.2006: Vatnsborðshæð Hálslóns
Vatnsborð Hálslóns var í dag komið í 561,2 metra yfir sjávarmáli. Það hækkaði um 40 sentimetra frá því á fimmtudaginn var eða um tæplega 6 sentimetra á sólarhring að jafnaði.
Lesa meira >>
 

13.12.2006: Fjölþjóðleg laufabrauðsgerð

Starfmenn framkvæmdaeftirlitsins við Kárahnjúka tóku sig til eina kvöldlstund núna í vikunni og skáru laufabrauð af miklum móð. Í hópum eru fulltrúar margra þjóða og það kom að sjálfsögðu í hlut Íslendinganna að kenna hinum réttu handtökin.

Lesa meira >>
 

13.12.2006: Síðasta áfanga vatnskápunnar frestað til vors

Stóð ég úti í tungsljósi við Hálslón... Mynd: Þórhallur Árnason.Lokið er við að steypa vatnskápu Kárahnjúkastíflu við hlíð Fremri-Kárahnjúks. Þá er ekki annað eftir af þeim verkþætti en bláendi kápunnar efst á hinum enda stíflunnar.

Lesa meira >>
 

11.12.2006: Slitsterk málning í fallgöngunum

Sérhæfður undirverktaki vinnur að því að grunnmála fallgöng Kárahnjúkavirkjunar og ber síðan á þau slitsterka málningu. Að því verki loknu verða göngin tilbúin til notkunar.

Lesa meira >>
 

8.12.2006: Vatnshæð Hálslóns

Vatnsborð Hálslóns var í dag komið í 560,8 metra yfir sjávarmáli. Mesta dýptin næst Kárahnjúkastíflu er um um 107 metrar.

Lesa meira >>
 

8.12.2006: Botnlokurnar útskrifaðar með hæstu einkunn

   Prófun á botnlokum Hálslóns gekk samkvæmt áætlun í dag og búnaðurinn reyndist í alla staði eins og ráð var fyrir gert. Lokunum var rennt frá í fyrsta sinn frá því byrjað var að safna vatni í Hálslón 28. september og nú verða þær ekki hreyfðar aftur fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar, ef talið verður nauðsynlegt að hægja þannig á hækkun lónborðsins í vatnavöxtum.

Lesa meira >>
 

5.12.2006: Wu Xao Chun fagnar stærsta áfanga virkjunarframkvæmdanna!

Kínverski borstjórinn á bor 3 við Kárahnjúka var að vonum innilega glaður þegar hann hafði skriðið út um gat á borkrónunni, eftir að hafa stýrt þessu risavaxna tæki gegnum síðasta haftið í frárennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar. Hann hafði reyndar tvöfalt efni til að fagna því í gærkvöldi mistókst að opna göngin en í morgun gekk allt eins og í sögu.

Lesa meira >>
 

4.12.2006: Rafmótor brann yfir og gegnumbrot frestast til morguns

Gegnumbroti bors 3 í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar var í dag frestað til morguns þegar ljóst varð að starfsmenn Impregilo þyrftu lengri tíma til að gera við bilun í bornum. Tugir starfsmanna og gesta höfðu þá beðið í þrjá tíma inni í göngunum eftir að borinn yrði ræstur.

Lesa meira >>
 

4.12.2006: Ölduveggur í tjaldi

Starfsmenn Impregilo eru búnir að slá upp tjöldum yfir brún Kárahnjúkastíflu að hluta og ætla að nota skjólið þar til að hefja framkvæmdir við að reisa svokallaðan ölduvegg.

Lesa meira >>
 

30.11.2006: Lónhæðin 30. nóvember

Vatnsborð Hálslón var í dag komið í 560,1 metra yfir sjávarmáli. Það þýðir að vatnsdýptin næst Kárahnjúkastíflu var 106 metrar.

Lesa meira >>
 

29.11.2006: Bor 3 ,,slær í gegn" í næstu viku

Ætla má að aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar opnist til fulls fljótlega eftir helgina úr Hálslóni alla leið niður í Fljótsdal. Bor 3 átti 84 metra ófarna í lok síðustu viku og við blasir að hann ,,slái í gegn" fljótlega eftir helgi.

Lesa meira >>
 

29.11.2006: Botnlokurnar prófaðar 8. desember

Gert er ráð fyrir að prófa botnlokur Hálslóns föstudaginn 8. desember næstkomandi. Botnlokurnar hafa ekki verið hreyfðar frá því byrjað var að safna vatni í Hálslón í lok september.

Lesa meira >>
 

29.11.2006: Eftir að bora innan við 200 metra

Bor 3 þokast áfram og skilaði 75 metrum í síðustu viku. Þá voru eftir nákvæmlega 200 metrar í aðrennslisgöngunum og allt útlit fyrir að þessum áfanga verði ekki lokið fyrr en í jólamánuðinum. Áætlað var að ,,slá í gegn" núna í nóvember en bergþéttingar og bergstyrkingar hafa reynst meiri og tímafrekari á leið borsins en gert var ráð fyrir.

Lesa meira >>
 

26.11.2006: Einn lést og annar þungt haldinn eftir slys á virkjunarsvæðinu

Starfsmaður króatísks verktakafyrirtækis á vegum Landsnets lést í vinnuslysi á Fljótsdalsheiði í gærmorgun þar sem verið var að leggja byggðalínuna að norðan á nýjum stað áleiðis að tengivirki í Fljótsdal. Í gærkvöldi slasaðist svo kínverskur starfsmaður Impregilo alvarlega á Kárahnjúkastíflu og liggur þungt haldinn á Landspítala-háskólasjúkrahúsi í Reykjavík.

Lesa meira >>
 

24.11.2006: Ómar fær 8 milljónir króna frá Landsvirkjun

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti í dag að veita Ómari Ragnarssyni 8 milljónir króna til stuðnings kvikmyndar sem hann er að gera um Hálslón.

Lesa meira >>
 

23.11.2006: Vatnið hækkar um 13 sentimetra á sólarhring

Hálslón er komið í 559,4 metra yfir sjávarmáli. Mesta dýpið næst Kárahnjúkastíflu er þá 105,4 metrar.

Lesa meira >>
 

18.11.2006: Lónhæðin 16. nóvember

Vatnsborð Hálslóns var komið í 558,5 metra yfir sjávarmál í gær, 16. nóvember 2006 og hafði þá einungis hækkað um 1,2 metra á einni viku eða um 17 sentimetra á sólarhring að jafnaði. Þetta segir allt um veðráttuna á svæðinu nú um stundir: það er hörkuvetur á hálendinu norðan Vatnajökuls!

Lesa meira >>
 

16.11.2006: Lokið við að bora þrýstijöfnunargöngin

Lóðrétt þrýstijöfnunargöng við Hálsufs á Fljótsdalsheiði hafa verið boruð og næstu vikurnar verður unnið að því að styrkja bergið í þeim. Þá verður göngin stálfóðruð neðst.

Lesa meira >>
 

16.11.2006: Bleikjuvatn og griðastaður gæsa?

,,Hálslón verður griðastaður heiðagæsa í sárum og lónið fengsælt veiðivatn þegar fram í sækir," segir Sverrir Scheving Thorsteinsson, jarðfræðingur og jöklafræðingur á Höfn í Hornafirði, í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að öll umræða um Hálslón og Kárahnjúkavirkjun hafi verið neikvæð og að ósekju megi því skjóta inn jákvæðum punktum til að ,,skoða með opnum huga án þess að láta fordóma vera í vegi fyrir sér."

Lesa meira >>
 

10.11.2006: Tvíbreið akstursleið komin alla leið yfir Kárahnjúkastíflu

Starfsmenn Impregilo hafa lokið við að fylla í topp Kárahnjúkastíflu næst Fremri-Kárahnjúki og því er nú komin tvíbreið akstursleið stífluenda á milli. Þessi vegur er einungis opinn starfsmönnum á virkjunarsvæðinu en almenningi verður heimiluð umferð um hann næsta sumar.

Lesa meira >>
 

10.11.2006: Vatnsborð Hálslón

Vatnsborðið í Hálslóni er komið í ríflega 557 metra hæð yfir sjávarmáli (tölur frá því í gær, fimmtudag 9. nóvember). Þar með er mesta dýpt næst Kárahnjúkastíflu um 103 metrar.

Lesa meira >>
 

8.11.2006: Bor 1 kominn út undir bert loft

Starfsmenn Impregilo hafa nú dregið stærstu hluta bors 1 út úr aðrennslisgöngunum aðgöngum við Axará. Borinn verður nú tekinn í sundur og fluttur úr landi þegar þar að kemur.

Lesa meira >>
 

7.11.2006: Lónhæðin 556 metrar

Vatnsborð Hálslóns var í dag komið í rúmlega 556 metra hæð yfir sjávarmáli.

Lesa meira >>
 

5.11.2006: Starfsmenn ánægðir með mikilvæga þætti vinnuumhverfis síns í viðhorfskönnun

Starfsmenn á framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar eru yfirleitt ánægðir með marga mikilvæga þætti vinnumhverfis síns, meðal annars öryggismál, samskipti á vinnustað og samskipti við yfirmenn. Þetta kemur fram í niðurstöðum umfangsmikillar viðhorfskönnunar frá síðastliðnu sumri.

Lesa meira >>
 

2.11.2006. Vatnsborðið komið í 555 metra

atnsborð Hálslóns er komið í 555 metra hæð yfir sjávarmáli. Rennsli Jöklu hefur verið nokkuð umfram það sem gerist í meðalári sem sést best á því að upphaflega var búist við að lónið næði núverandi hæð í byrjun desember.

Lesa meira >>
 

1.11.2006: Refir í fuglaskoðun í boði Suðurverks

Þrír refir sýndu á sér nýja hlið í morgun þegar þeir birtust óvænt á hlaðinu hjá Suðurverki í þeim tilgangi einum að sýna sig og sjá aðra. Þeir fylgust áhugasamir með fuglum fá sér í gogginn af fóðri sem stráð hafði verið í snjóinn og sýndu ekki af sér neinn ótuktarskap.

Lesa meira >>
 

31.10.2006: Bor 1 á förum að verki loknu

Bor 1 hefur nú verið tekinn í sundur inni í aðrennslisgöngunum og verður nú dreginn út undir bert loft þar sem hann verður búinn undir flutning úr landi.  Hann lauk við að bora sinn hluta ganganna 9. september síðastliðinn.

Lesa meira >>
 

31.10.2006: Kuldalegt en fagurt á fjöllum

 Veturinn er genginn í garð á hálendinu og það svo um munar. Í dag var 14 gráðu frost og snjór yfir öllu, stillt og fallegt um að litast.

Lesa meira >>
 

30.10.2006: Vatnsborðið 10 metrum hærra en það væri í meðalári rennslis

Vatnsborð Hálslóns er komið í 554 metra hæð yfir sjávarmáli og þar með er mesta dýpi næst Kárahnjúkastíflu nákvæmlega 100 metrar.

Lesa meira >>
 

27.10.2006: Botnrás Ufsarstíflu

Framkvæmdum við botnrás Ufsarstíflu hefur miðað vel eins og sjá má á myndum sem Þorvaldur Konráðsson tók á vinnusvæðinu núna í vikunni. Verktakafyrirtækið Arnarfell annast þennan verkþátt og marga fleiri sem tengjast Jökulsárveitu Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira >>
 

26.10.2006: Lónið komið í 552 metra

Vatnsborð Hálslóns var í dag komið í rúmlega 552 metra yfir sjávarmáli. Mesta dýptin næst Kárahnjúkastíflu er þar með orðin 98 metrar og flatarmálið yfir 10 ferkílómetrar.

Lesa meira >>
 

25.10.2006: ,,Tappinn" í hjáveitugöngunum langt kominn

Önnum kafinn vegprestur! Mynd: Þórhallur Árnason.Verkinu við að steypa 25 metra langan tappa í hjáveitugöngin undir Kárahnjúkastíflu miðar vel. Engar óvæntar breytingar mælast í stíflunni eða í berginu undir henni og vatnsleki gegnum stífluna er afar lítill.

Lesa meira >>
 

24.10.2006: Þrýstijöfnunargöngin orðin 130 metra há

Heilboruðu þrýstijöfnunargöngin við Hálfsufs á Fljótsdalsheiði voru orðin 130 metra há í lok síðustu viku. Þau verða alls 200 metrar, lóðrétt og 5 metrar í þvermál, þannig að þar er einungis eftir um fjórðungur leiðarinnar úr aðrennslisgöngunum upp á yfirborð jarðar.

Lesa meira >>
 

24.10.2006: Vatnsborðshæðin komin yfir 550 metra - rebbi fylgist með

Vetur við Kárahnjúka. Mynd: Þórhallur Árnason.Vatnsborð Hálslóns var í dag komin í rúmlega 550 metra hæð yfir sjávarmáli. Rennslið inn í lónið mælist um 120 rúmmetrar á sekúndu og fer minnkandi, enda komið frost á hálendinu með tilheyrandi skæni á lónið.

Lesa meira >>
 

21.10.2006: Lónið brátt 10 ferkílómetrar

Vatnsborð Hálslóns er komið í 549 metra hæð yfir sjávarmáli og stefnir í að ná 550 metrum á morgun eða mánudag.

Lesa meira >>
 

19.10.2006: Nótt við Kárahnjúka

Það er unnið víða á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka allan sólarhringinn. Alltaf er eitthvað um að vera víðast hvar hvort sem er nótt eða dagur.

Lesa meira >>
 

18.10.2006: Vatnsborðið hækkar um einn metra á sólarhring

Vatnsborð Hálslóns var í morgun komið í 546 metra yfir sjávarmáli, sem þýðir að mesta dýpi næst Kárahnjúkastíflu er um 92 metrar. Vatnsborðið hækkaði um 2 metra á sólarhring að jafnaði í síðustu viku en nú hefur kólnað á hálendinu og vatnið hækkar um einn metra á sólarhring að jafnaði.

Lesa meira >>
 

17.10.2006: Haustmyndir Þórhalls

Fátt gleður augað eins mikið og ljósmynd þegar sá er á myndavélinni heldur hefur lag á að horfa á hlutina frá óvæntum sjónarhornum eða fanga rétta augnablikið. Vandalaust væri að setja upp  sýningu á ljósmyndum starfsmanna við Kárahnjúka, eins og vanagestir þessarar heimasíðu geta borið vitni um. 

Lesa meira >>
 

17.10.2006: Grannar Jöklu í heimsókn á virkjunarsvæðinu
Prinsessan á Merki á Jökuldal, Guðný Halla Sóllilja Björnsdóttir, var í sunnudagshópnum.

Smáskjálftamælanet Veðurstofu Íslands við Kárahnjúka er svo næmt fyrir umhverfi sínu að umferð tækja í tengslum við framkvæmdirnar greinist þar sem einskonar „suð“ sem svo hverfur í matartímum á vinnusvæðinu! Engar hræringar af neinu tagi hafa hins vegar komið fram sem rekja má til stíflumannvirkja eða Hálslóns.

Lesa meira >>
 

17.10.2006: Vetrarlegt við Hálslón

Vatnsborð Hálslóns var í morgun komið í 544 metra hæð yfir sjávarmáli. Dýptin við Kárahnjúkastíflu er þar með orðin réttir 90 metrar.

Lesa meira >>
 

16.10.2006: Veðrabrigði við Kárahnjúka

Fljótt skipast veður í lofti, ekki síst á hálendinu. Við Kárahnjúka skein sól í hægviðri í gær, í morgun var þar hvítt yfir að líta og hrollkalt.

Lesa meira >>
 

14.10.2006: Lónið orðið ríflega 6 ferkílómetrar

Vatnsborð Hálslóns er í dag (föstudag) komið upp í 537 metra hæð yfir sjávarmáli, sem jafngildir um 80 metra dýpi næst Kárahnjúkastíflu. Lónið er yfir 6 ferkílómetrar að flatarmáli.

Lesa meira >>
 

12.10.2006: Kárahnjúkavirkjun á Alþingi

Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, flytur Alþingi í dag munnlega skýrslu um framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.

Lesa meira >>
 

11.10.2006: Sjö metrar í að Desjarárstífla nái fullri hæð

Desjarárstífla er nú komin í 623 metra hæð yfir sjávarmál og vantar 7 metra upp á að stíflan nái fullri hæð. Unnið er af krafti við báðar hliðarstíflur Hálslóns enda hefur viðrað afar vel til útiverka undanfarnar vikur.

Lesa meira >>
 

10.10.2006: Vatnið komið að lokum inntaks aðrennslisganganna

Hálslón er orðið yfir 5 ferkílómetrar að stærð. Vatnið er nú komið upp fyrir neðri brún aðrennslisganganna sem liggja úr lóninu niður í Fljótsdal.

Lesa meira >>
 

10.10.2006: Byrjað steypa upp í hjáveitugöngin

Lokið er við að steypa fyrsta hluta ,,tappans" í hjáveitugöngin undir Kárahjúkastíflu, innan við lokurnar sem rennt var fyrir að morgni 28. september þegar byrjað var að safna vatni í Hálslón. Tappinn verður um 25 metrar, þar af er búið að steypa 8 metra.

Lesa meira >>
 

4.10.2006: Hálslón orðið 3,5 ferkílómetrar

Hálslón teygir sig nú inn að Kringilsá, hálfa leið inn að jökli, og er orðið hálfur fjórði ferkílómetri að flatarmáli. Brátt flýtur yfir botnrásaropið á vesturbakkanum.

Lesa meira >>
 

6.10.2006: Botnrásaropið á kaf

Vatnið í Hálslóni steig i gærkvöld upp fyrir op botnrásar lónsins á vesturbakkanum.

Lesa meira >>
 

3.10.2006: Þrýstijöfnunargöng við Hálsufs boruð

Byrjað er að bora nær 200 metra há þrýstijöfnunargöng við Hálsufs á Fljótsdalsheiði, úr aðrennslisgöngunum frá Hálslóni upp á yfirborðið. Gert er ráð fyrir að verkið taki um tvær vikur.

Lesa meira >>
 

2.10.2006: Bor 2 lauk sínum áfanga, byrjað á göngum við Kelduárlón

Bor 2 var stöðvaður í aðrennslisgöngunum um helgina og þar með hefur hann lokið sínu hlutverki í þeim þætti virkjunarframkvæmdanna. Bor 3 heldur áfram og lýkur því sem eftir er í heilboruðu göngunum milli Hálslóns og Fljótsdals.

Lesa meira >>
 

1.10.2006: Bátsferð á Hálslóni 1. október-myndir

Hálslón stækkar og stækkar. Í dag var bjartara yfir en verið hefur frá því hjáveitugöngunum var lokað á fimmtudagsmorguninn. Starfsmenn framkvæmdaeftirlitsins brugðu sér í sunnudagssiglingu um lónið og sendu nokkrar myndir.

Lesa meira >>
 

1.10.2006: Hálslón sunnudaginn 1. október 2006

Þokan, sem grúft hefur yfir á hálendinu norðan Vatnajökuls dögum saman, er loksins á förum og þá viðrar betur til að taka myndir af nýju landslagi sem verður til með Hálslóni.

Lesa meira >>