Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2006 júní-apríl

26.6.2006: Calzoni tekur við lokumannvirkjunum

Impregilo afhendir í vikunni öðrum ítölskum verktaka, Calzoni, lokumannvirkin við Hálslón. Calzoni setur upp lokubúnað og ristar í inntaki aðrennslisganganna, sem er verkþáttur KAR-33.

Lesa meira >>
 

22.6.2006: Litháískir hefilspænir umbreyttust í finnskan hrossaskít

Hugmyndaríki andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar virðast fá takmörk sett. Þannig fékk yfirdýralæknir á dögunum fyrirspurn um hvort flutt hefði verið inn hrossatað frá Finnlandi til að þétta með sprungur í bergi á Kárahnjúkasvæðinu! Forstjóri Landsvirkjunar telur að hefilspænir frá Litháen hafi í flökkusögum breyst í finnskt hrossatað.

Lesa meira >>
 

21.6.2006: Staða bora og vatnskápu

Risaborarnir þrír eiga eftir að bora um 16 kílómetrar af aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar, þar af eru 9,5 km svokölluð Jökulsárgöng í átt að Ufsarlóni. Meðfylgjandi er kort sem sýnir stöðu boranna 14. júní síðastliðinn.

Lesa meira >>
 

20.6.2006: Vinna hófst með nýjum tækjum í fallgöngum 2

Vinna í fallgöngum 2 tafðist mun minna en útlit var fyrir vegna bruna á vinnupalli þar í byrjun síðustu viku. Þar er nú allt í fullum og eðlilegum gangi.

Lesa meira >>
 

14.6.2006: Rafallinn kominn í stöðvarhúsið

Fyrsti rafall Kárahnjúkavirkjunar er kominn inn á gólf í stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Undirbúningur er hafinn að því að koma honum á sinn stað, í vélasamstæðu nr. 1.

Lesa meira >>
 

14.6.2006: Stíflan kápuklædd

Stöðugt er unnið að því að steypa svokallaða vatnskápu á Kárahnjúkastíflu.

Lesa meira >>
 

14.6.2006: Slökkviliðsmenn í vettvangskönnun í Fljótsdal

Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum á Héraði kynna sér í dag og á morgun aðstæður í fallgöngum Kárahnjúkavirkjunar, í stöðvarhúsinu og víðar á virkjunarsvæðinu. Tilefnið heimsóknarinnar var eldur sem kviknaði í fallgöngum 2 síðastliðinn mánudag.

Lesa meira >>
 

13.6.2006: Kárahnjúkastífla að ná fullri hæð

Komin eru 94% fyllingarefnis í Kárahnúkastíflu og þar með er stutt í að mannvirkið nái fullri hæð. Nú verður hægt á þessum þætti framkvæmdanna til að menn geti athafnað sig áfram uppi á stíflunni við að steypa vatnskápu stíflunnar. Kárahnjúkastífla verður 193 metra há og 730 metra löng.

Lesa meira >>
 

12.6.2006: Eldur slökktur í fallgöngum 2

Eldur kviknaði síðdegis í miðjum fallgöngum 2 í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal, á vinnupalli í um 220 metra hæð. Engan sakaði. Málið er í rannsókn og útlit er fyrir að eignatjón sé mun minna en ætla mátti af fyrstu fréttum.

Lesa meira >>
 

8.6.2006: Kröfur landeigenda komnar fram
Landeigendur á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar lögðu í gær fram kröfur sínar varðandi vatnsréttindi. Landsvirkjun gaf í dag út eftirfarandi yfirlýsingu af því tilefni. Þar kemur meðal annars fram að hæsta krafa um greiðslur fyrir vatnsréttindi, fyrir hönd 50 jarða við Jökulsá á Dal, sé upp á tæplega 96 milljarða króna og svari til alls stofnkostnaðar Kárahnjúkavirkjunar.
Lesa meira >>
 

7.6.2006: Árþúsundir þar til Hálslón fyllist af aur

Hálslón Kárahnjúkavirkjunar fyllist af aur á margfalt lengri tíma en gert var ráð fyrir í mati á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar. Þetta er mat fræðimanna við verkfræðideild Háskóla Íslands sem kynnt var á ráðstefnu í Reykjavík í gær.

Lesa meira >>
 

6.6.2006: Hálfnað verk að stálfóðra fallgöngin

Starfsmenn þýska fyrirtækisins DSD eru um það bil hálfnaðir með að stálfóðra fallgöngin svokölluðu í Valþjófsstaðarfjalli. Nýliðinn maí var næstbesti framvindumánuður risaboranna þriggja frá upphafi virkjunarframkvæmdanna.

Lesa meira >>
 

30.5.2006: Bor 1 slær í gegn eftir tæpa tvo mánuði

Vel miðaði áfram hjá öllum borunum þremur í síðustu viku og er nú gert ráð fyrir því að bor 1 „slái í gegn“ í síðari hluta júlímánaðar.

Bor 3 á að ljúka sínu verki í nóvember en bor 2 hættir eitthvað fyrr vegna frágagnsvinnu við gangamótin undir Axará þar sem Jökulsárveita tengist aðalaðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar.
Lesa meira >>
 

26.5.2006: Arnarfell komið inn í aðrennslisgöngin

Arnarfellsmenn luku um helgina við aðgöng 4 í Desjarárdal og eru nú komnir inn í sjálf aðrennslisgöngin þar sem þeir munu á næstu vikum sprengja og fjarlægja ,,tappann" sem eftir næst Hálfslóni. Þetta er um 1 kílómetri sem bor 3 skildi eftir þegar honum var snúið við í göngunum í fyrra.

Lesa meira >>
 

25.5.2006: 15% fjölgun gesta í Végarði

Gestum í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal hefur fjölgað um 15% frá sama tímabili í fyrra. Á þriðjudaginn var, 23. maí, höfðu 1.078 komið á Kárahnjúkasýninguna frá því hún var opnuð sumardaginn fyrsta en sambærileg tala frá síðasta ári er 920 gestir.

Lesa meira >>
 

24.5.2006: Maíhretið

   Þetta mikla og langvarandi hret sem gerði núna í síðari hluta maímánaðar setur mark sitt á vinnu og mannlíf við Kárahnjúka sem og víðar.

Lesa meira >>
 

16.5.2006: Sexfaldur munur á tilboðum í girðingavinnu við Jökulsá á Dal

Meira en sexfaldur munur er á lægsta og hæsta tilboði í vinnu við að girða meðfram Jökulsá á Dal, frá rúmlega 14 milljónum króna upp í tæplega 90 milljónir króna. Tilboð í verkið voru opnuð hjá Landsvirkjun í dag.

Lesa meira >>
 

15.5.2006: Góð borvika

Inntak Hálslóns 12. maí 2006.Borarnir þrír gengu allir af krafti í síðustu viku og skiluðu alls 540 metrum. Yfir 100.000 rúmmetrar fyllingarefnis bættust við Kárahnjúkastíflu.

Lesa meira >>
 

14.5.2006: Mannlíf á hátíðarstundu

Ætla má að gestir í Fljótsdalsstöð hafi verið vel á fjórða hundrað manns þegar forseti Íslands lagði hornstein að stöðvarhúsinu síðastliðinn föstudag, 12. maí.

Lesa meira >>
 

11.5.2006: Verðlaunahafar úr grunnskóla á spjöldum sögunnar

Sex grunnskólanemar aðstoðuðu forseta Íslands við að leggja hornstein að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar og komust þar með á spjöld sögunnar í orðsins fyllstu merkingu. Þeirra er getið í gögnum sem múruð voru inn í hornsteininn og á skildi yfir hornsteininum.

Lesa meira >>
 

11.5.2006: Fljótsdalsstöð skal hún heita

Foprsetinn setur blýhólkinn í hornsteininn.Stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar fékk heitið Fljótsdalsstöð í dag um leið og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lagði hornstein að því. Það kom í hlut Gunnþórunnar Ingólfsdóttur, oddvita Fljótsdælinga, að kynna á fjórða hundrað gestum nýja nafnið.

Lesa meira >>
 

11.5.2006: Gagnstæð sjónarmið um Kárahnjúkavirkjun í blýhólkinn

Skjöl með sjónarmiðum andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar annars vegar og  Landsvirkjunar hins vegar, varðandi undirbúning og ákvörðun um virkjunina, verða sett í blýhólkinn sem forseti Íslands leggur í hornstein stöðvarhússins í Fljótsdal á morgun. Forstjóri Landsvirkjunar segir að með ósk sinni um að setja skjal í hornsteininn viðurkenni náttúruverndarsamtökin sem hér um ræðir virkjunina sem staðreynd sem ekki verði breytt.

Lesa meira >>
 

11.5.2006: Virkjað til minnst tveggja alda

Jóhannes Geir í ræðustóli í Fljótsdalsstöð.Ég er ófeiminn við að fullyrða að hér er byggt til tvö hundruð ára og að virkjunin geti framleitt rafmagn á arðbæran hátt í það minnsta þann tíma, sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, meðal annars í ræðu sinni við athöfnina í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í dag.

Lesa meira >>
 

10.5.2006: Suðurverksmenn setja á fulla ferð við stíflugerðina

Verktakafyrirtækið Suðurverk hf. er að komast á fullan skrið á nýjan leik við hliðarstíflur Hálslóns, Sauðárdalsstíflu og Desjarárstíflu. Um 65 manns eru við störf þar og vinna á þrískiptum vöktum. Í júníbyrjun verða starfsmenn Suðurverks orðnir um 140 talsins.

Lesa meira >>
 

8.5.2006: Hornsteinn lagður að stöðvarhúsinu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, leggur hornstein að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar á föstudaginn kemur, 12. maí. Athöfnin hefst í stöðvarhúsinu kl. 15:00.

Lesa meira >>
 

2.5.2006: Met hjá Arnarfelli í aðgöngum 4 en slök borvika

Arnarfellsmönnum sóttist afar vel í aðgöngum 4 í 17. viku og bættu þar við 54 metrum, sem er mesti framgangur þessa verkþáttar á einni viku. Hins vegar voru afköst risaboranna þriggja aðeins 216 metrar samanlagt.

Lesa meira >>
 

26.4.2006: Steypuvinnu í stöðvarhúsinu lýkur í júní

Framkvæmdum í stöðvarhúsinu í Fljótsdal og annars staðar í Valþjófsstaðarfjalli miðar vel og flestir verkþættir eru þar á áætlun. Lokið er við að steypa plötu 2. hæðar í kringum vél nr. 6 í stöðvarhúsinu (steypuáfanginn blálitaður til vinstri á teikningunni hér fyrir neðan) og þá er einungis eftir að steypa upp tvær hæðir við vél 6 og eina hæð við vél nr. 5.

Lesa meira >>
 

26.4.2006: Samið við Arnarfell

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, og Sigurbergur Konráðsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Arnarfells ehf., hafa undirritað verksamninga um lokaáfanga Kárahnjúkavirkjunar: gerð Ufsarstíflu og Hraunaveitu. Verkið er í þremur þáttum.

Lesa meira >>
 

22.5.2006: Stíflurnar þrjár

Stíflurnar þrjár sem mynda munu Hálslón Kárahnjúkavirkjunar þokast upp á við og verða fullfrágengnar í haust.

Lesa meira >>
 

19.4.2006: Steypuvinna þrátt fyrir óhagstætt tíðarfar í páskavikunni

Starfsmönnum Impregilo tókst að steypa nokkuð í yfirfallsskurði Kárahnjúkastíflu og vatnsmegin á stífluna í páskavikunni. Veðurfar var samt ekki sérlega hagstætt til slíks.

Lesa meira >>
 

10.4.2006: Verktakar setji öryggi og vinnuvernd á virkjunarsvæðinu í fyrirrúm

Landsvirkjun beinir því til allra verktaka á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka að fara yfir öryggismál sín með það að markmiði að koma í veg fyrir fleiri alvarleg slys og fækka óhöppum svo sem verða má. Þetta kemur fram í bréfi sem Landsvirkjun sendi verktakafyrirtækjum á virkjunarsvæðinu og framkvæmdaeftirliti fyrirtækisins.

Lesa meira >>
 

10.4.2006: Forstjóri Vinnueftirlitsins telur að verktakar leggi sig fram í öryggismálunum

Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins, telur að verktakafyrirtæki á Kárahnjúkasvæðinu leggi sem fram um að hafa öryggismálin í lagi. Þetta kom fram í viðtali svæðisútvarpsins á Egilsstöðum við hann í dag.

Lesa meira >>
 

10.4.2006: Sjö milljón rúmmetrar komnir í Kárahnjúkastíflu

Veðurfar var ekki sérlega hagstætt til útiverka á virkjunarsvæðinu á síðustu viku en samt tókst að koma ríflega 60.000 rúmmetrum fyllingarefnis í Kárahnjúkastíflu. Þar með eru komnir alls sjö milljón rúmmetrar á sinn stað af átta og hálfri milljón rúmmetrum rúmmetrum sem í stífluna fara eða 83,5%.

Lesa meira >>
 

3.4.2006: Besti bormánuðurinn frá upphafi framkvæmda

Mars 2006 var besti mánuður risaboranna þriggja frá því virkjunarframkvæmdir hófust við Kárahnjúka. Borarnir skiluðu samtals 2.228 metrum af aðrennslisgöngum en fyrra metið var 2.050 metrar frá því í nóvember 2004.

Lesa meira >>
 

3.4.2006: Banaslys við Desjarárstíflu

Íslendingur lést þegar vinnuvél valt við Desjarárstíflu í gærvöld. Hann var 33 ára gamall, starfsmaður verktakafyrirtækisins Suðurverks.

Lesa meira >>