Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2006 mars-janúar

27.3.2006: Byrjað að steypa vatnskápuna á nýjan leik

Fyrsti renningur ársins í vatnskápu Kárahnjúkastíflu var steyptur í síðustu viku, alls ríflega 1.600 fermetra flötur. Í hann fóru 850 rúmmetrar af steypu.

Lesa meira >>
 

27.3.2006: Banaslys í aðgöngum 4

Starfsmaður verktakafyrirtækisins Arnarfells lést í nótt í sprengingu á vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar. Slysið átti sér stað um fimmleytið þegar unnið var að undirbúningi sprengingar í bergi í aðgöngum 4 í Desjarárdal. 

Lesa meira >>
 

22.3.2006: Landsvirkjun ræðir við lægstbjóðendur vegna Hraunaveitu/Ufsarstíflu

Fulltrúar Landsvirkjunar eru í viðræðum við lægstbjóðendur í fjóra verkhluta Kárahnjúkavirkjunar sem boðnir voru út fyrr í vetur. Þessi verk varða Ufsarstíflu, stíflur, skurði og  og göng Hraunaveitu og framkvæmdaeftirlit á svæðinu.

Lesa meira >>
 

22.3.2006: Borað eftir drykkjarvatni í Fljótsdal

Unnið er við borun eftir drykkjarvatni á bökkum Jökulsár í Fljótsdal, innan við athafnasvæðið í dalnum. Vatnið verður leitt í hlaðhúsið sem risið er við munna aðkomuganga Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira >>
 

20.3.2006: Lokið við að dýpka farveg Jökulsárs í Fljótsdal

Snæfell í vetrarbúningi. Ljósmynd: Erla Bryndís Ingadóttir.Starfsmenn Héraðsverks hafa lokið við að dýpka og lagfæra farveg Jökulsár í Fljótsdal og vinna nú við að grafa skurð milli árinnar og munna frárennslisganga Kárahnjúkavirkjunar. Skurðurinn verður ríflega tveir kílómetrar og níu metra breiður í botninn.

Lesa meira >>
 

13.3.2006: 80% fyllingarefnis komin í Kárahnjúkastíflu

Steypustöð Arnarfells í janúar 2006. Ljósmynd: Páll Halldór Benediktsson.Tíðarfarið er hagstætt til framkvæmda utan dyra, það má meðal annars merkja á því að í síðustu viku var unnt að bæta 80.000 rúmetrum fyllingarefnis í Kárahnjúkastíflu. Þar með er fjórir fimmtu hlutar efnis komnir í stífluna og hún er óðum að taka á sig endanlega mynd eins og sjá má á teikningunum sem gjarnan fylgja vikuyfirlitinu.

Lesa meira >>
 

6.3.2006: Héraðsverk með eina tilboðið í Hólsufsarveg

Héraðsverk á Egilsstöðum átti eina tilboðið sem barst í Hólfsufsarveg Kárahnjúkavirkjunar, verkþátt KAR-04n.

Lesa meira >>
 

6.3.2006: Hálfur kílómetri boraður

Borarnir þrír skiluðu alls 490 metrum í 9. viku, sem er gott þegar á heildina er litið. Framgangur bors 3 var skínandi góður en hægast gekk hjá bor 2.

Lesa meira >>
 

5. 3.2006: Kostnaðaráætlanir standast

Yfirgnæfandi líkur eru á að kostnaðaráætlanir vegna Kárahnjúkavirkjunar standist þegar á heildina er litið. Þetta er mat Landsvirkjunar þrátt fyrir að vitað sé um að að verktakafyrirtækið Impregilo muni krefjast viðbótargreiðslna vegna tafa við borun aðrennslisganganna.

Lesa meira >>
 

3.3.2006: Slegið í gegn í sveiflugöngunum í Miðfelli

Ivan slær upp kampavínsflösku í tilefni dagskins.  Mynd:Hlynur Guðmundsson/VIJVÍ morgun var fagnað góðum áfanga virkjunarframkvæmdanna þegar ,,slegið var í gegn" í svokölluðum sveiflugöngum í Fljótsdal með sprengingu nákvæmlega klukkan 10:05. Þessi göng eru með miklum halla og voru boruð og sprengd skáhallt niður á við.

Lesa meira >>
 

2.3.2006: Þensla í hagkerfinu skrifast á húsnæðislánin en ekki stóriðjuna

Sókn bankanna inn á á húsnæðislánamarkaðinn  í ágúst 2004 er aðalástæða þenslu í hagkerfinu en ekki framkvæmdir vegna stóriðju. Þetta segir Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.

Lesa meira >>
 

28.2.2006: Montavar Metalna með lægsta tilboð í lokubúnað og stálfóðringu

Montavar Metalna átti lægsta tilboð í lokubúnað og stálfóðringu fyrir Hraunaveitu og Ufsarstíflu, verkhluta KAR-35. Verkið var boðið út í nóvember 2005.

Lesa meira >>
 

27.2.2006: Stóráfangi í Fljótsdal

Dagur Georgsson, frá framkvæmdaeftirlitinu, á lagnaleiðinni milli stöðvarhúss og spennahellis.Starfsmenn verktakafyrirtækisins Fosskrafts og Landsvirkjunar fögnuðu því í dag, ásamt gestum sínum, að Fosskraft skilaði af sér mikilvægum verkhluta í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal: uppsteyptu húsi umhverfis vélar 1, 2 og 3.

Lesa meira >>
 

27.2.2006. Ríflega hálfur kílómetri boraður á einni viku

Borarnir þrír skiluðu samtals 530 metrum í síðustu viku, þar af bor I yfir 200 metrum. Bergið var alls staðar hagstætt en nokkrar tafir urðu vegna smávægilegra bilana í færibandakerfum.

Lesa meira >>
 

20.2.2006: Dagamunur í tilefni verkáfanga í stöðvarhúsinu

Verktakafyrirtækið Fosskraft nær í dag merkum áfanga í virkjunarframkvæmdunum samkvæmt verksamningi KAR-15. Nú er lokið við að steypa umhverfis vélar 1, 2 og 3 í stöðvarhúsinu og verktakinn skilar af sér þeim verkhluta.

Lesa meira >>
 

13.2.2006: Arnarfell byrjað á aðgöngum 4

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells eru byrjaðir að sprengja og grafa aðkomugöng 4 í Desjarárdal í samræmi við samning þar að lútandi frá því í desember síðastliðnum. Arnarfellsmenn byrjuðu í janúar á því að skapa sér aðstæður til verksins og nú er sjálf gangagerðin hafin.

Lesa meira >>
 

8.2.2006: Sumarvinna um hávetur

Í stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Mynd: ARHFádæma veðurblíða flýtir útiverkum og léttir lund á virkjunarsvæðinu eins og annars staðar á landinu. Góðum áfanga var náð við að steypa í yfirfallsskurði Kárahnjúkastíflu í síðustu viku og meira að segja var unnt að flytja líka fyllingarefni í stífluna.

Lesa meira >>
 

2.2.2006: Byrjað að undirbúa fjórðu aðkomugöngin

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells grafa, sprengja og hreinsa á þeim stað þar sem verður munni væntanlegra aðkomuganga 4 í Desjarárdal. Ekki skemmir fyrir að fádæma góð tíð er á fjöllum og það flýtir að sjálfsögðu fyrir verkum.

Lesa meira >>
 

31.1.2006: Fullyrðing Hjörleifs stenst ekki

Deildarstjóri á rannsóknadeild verkfræði- og framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, vísar á bug þeirri fullyrðingu Hjörleifs Guttormssonar, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, að gróðurhúsaáhrif Kárahnjúkavirkjunar verði engu minni en frá virkjunum sem knúðar séu af jarðefnaeldsneyti. Hann vísar til greinar Hjörleifs í Morgunblaðinu 10. janúar 2006.

Lesa meira >>
 

31.1.2006: Arnarfell með lægsta tilboð í Ufsarveitu og Hraunaveitu

Í dag voru opnuð hjá Landsvirkjun tilboð í þrjá nýja verkþætti við Kárahnjúkavirkjun en þetta eru jafnframt síðustu verulega stóru útboðin vegna Kárahnjúkavirkjunar. Um er að ræða gerð Ufsarveitu og Hraunaveitu bæði vinnu við stíflur og skurði og vinnu við jarðgöng austan við Jökulsá í Fljótsdal og austan við Kelduá. Í öll verkin bárust fjögur tilboð frá íslenskum verktökum og reyndist Arnarfell ehf. frá Akureyri vera með lægsta tilboð í öll verkin, samtals rúmlega 3,6 milljarða króna með VSK en það er verulega undir kostnaðaráætlun ráðgjafa Landsvirkjunar, sem hljóðaði upp á rúma 5,3 milljarða króna.

Lesa meira >>
 

26.1.2006: Þrír af hverjum fjórum Austfirðingum jákvæðir gagnvart Landsvirkjun

76,5% Austfirðinga hafa jákvæð viðhorf til Landsvirkjunar en 10,5% hafa neikvæð viðhorf gagnvart fyrirtækinu. Þetta kemur fram í nýrri viðhorfskönnun IMG Gallups.

Lesa meira >>
 

25.1.2006: Tengivirkishús og hlaðhús risin í Fljótsdal

Tengivirkishús og hlaðhús hafa verið steypt upp í Fljótsdal og unnið er að frágangi innanhúss, einkum í því fyrrnefnda sem tilheyrir orkudreifingarfyrirtækinui Landsneti. Keflavíkurverktakar keppast við að ljúka tengivirkishúsinu fyrir næstu mánaðarmót því í byrjun febrúar mæta starfsmenn fyrirtækins AREVA til að setja upp rofa og annan búnað sem tengist flutningi á raforku Kárahjúkavirkjunar úr Fljótsdal til Fjarðaáls við Reyðarfjörð.

Lesa meira >>
 

24.1.2006: Allt á blússi í stöðvarhúsinu

Uppsetningu véla í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar miðar í samræmi við verkáætlun og reyndar rúmlega það. Lokið er að steypa fjórar hæðir í kringum þrjár af vélunum en vinna við að koma hinum þremur vélunum fyrir er komið skemmra á veg.

Lesa meira >>
 

24.1.2006: Héraðsverk grefur frárennslisskurðinn

Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum fær það verkefni að grafa frárennslisskurð Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal í kjölfar útboðs fyrr í vetur. Landsvirkjun er í þann veginn að ganga frá samningum við verktakafyrirtækið á grundvelli lægsta tilboðs í verkið.

Lesa meira >>
 

23.1.2006: Fyrstu gestir ársins á Kárahjúkasýningunni

Starfsmenn Héraðsskóga á Egilsstöðum skráðu sig á spjöld sögunnar í bókstaflegum skilningi á dögunum. Þeir voru fyrstu gestir nýbyrjaðs árs á sýningu Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun í upplýsingamiðstöðinni í Végarði í Fljótsdal og kvittuðu að sjálfsögðu fyrir í gestabók staðarins.

Lesa meira >>
 

16.1.2006: Bor 1 náði tíu kílómetra markinu og á þrjá eftir

Heilboruð göng á virkjununarsvæðinu eru orðin alls 24 kílómetrar eða ríflega fern Hvalfjarðargöng að lengd. Bor 1 hefur gengið best og skilað ríflega 10 kílómetrum.

Lesa meira >>
 

10.1.2006Allir borar sýndu samtímis hvað í þeim býr

Borarnir þrír við Kárahnjúka sýndu allir sem einn á laugardaginn var hverju þeir geta afkastað ef bergið er hagstætt. Afköst þeirra á sólarhring voru í heildina vel umfram áætlun.

Lesa meira >>
 

6.1.2006: 23 km boraðir, 15 km eftir

Starfsmenn verktaka á virkjunarsvæðinu eru komnir til starfa á nýjan leik að loknu jólaleyfi. Bormennirnir héldu samt sínu striki nema rétt um sjálf jólin og áramótin.

Lesa meira >>
 

1.1.2006: Ný aðgöng til að flýta gerð aðrennslisganganna

Strax í upphafi árs 2006 verður hafist handa við að gera ný aðgöng inn í aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar nálægt Hálslóni til að unnt sé að hraða gerð aðrennslisganganna og tryggja betur að staðið verði við tímaáætlun Kárahnjúkavirkjunar.  Gangamunninn er neðan við Desjarárstíflu að austanverðu, milli stíflunnar og yfirfallsskurðar eins og sést á meðfylgjandi loftmynd. 

Lesa meira >>