Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2005 des.-október

28.12.2005: Borfrí báða jóladagana

Bormennirnir við Kárahnjúka fengu frí á jóladag og annan dag jóla sem að sjálfsögðu hefur áhrif á framvindutölurnar.

Lesa meira >>
 

19.12.2005: Allir borarnir þrír loksins í gangi samtímis

Loftmynd Emils Þórs af Kárahnjúkastíflu frá miðjum september 2005. Fremri-Kárahnjúkur til vinstri.Bor 3 var gangsettur í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar núna á mánudaginn, 19. desember. Hann hefur verið stopp frá því 8. júlí eða í tæplega hálft ár.

Lesa meira >>
 

19.12.2005: Björgunarsveitarmenn í heimsókn hjá Arnarfelli

Félagar úr Björgunarsveitinni Héraði á Egilsstöðum komu fyrir nokkru í heimsókn á framkvæmdasvæði verktakafyrirtækisins Arnarfells ehf. þar sem unnið er að jarðgangagerð og fleiru vegna Jökulsárveitu Kárahnjúkavirkjunar. Arnarfell og Björgunarsveitin Hérað hafa með sér samstarfssamning til fjögurra ára.

Lesa meira >>
 

16.12.2005: Fjórðungur vatnskápunnar hefur verið steyptur á Kárahnjúkastíflu

Lokið er við að steypa yfir 25.000 fermetra af svokallaðri vatnskápu Kárahnjúkastíflu, sem svarar til ríflega 27% af verkinu í heild. Enn tókst að bæta við í síðustu viku þrátt fyrir vetrarríkið á hálendinu.

Lesa meira >>
 

16.12.2005: ,,Hægan nú" í Hallormsstaðarskógi

Foreldrafélag Hallormsstaðaskóla, Landsvirkjun, Vegagerðin og sveitarstjórnir Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps tekið höndum saman um að bæta umferðarmenningu og auka öryggi í Hallomrsstaðarskógi vegna aukins umferðarþunga þar.  Frumkvæðið kom frá foreldrum skólabarna sem höfðu samband við Landsvirkjun.  Í kjölfarið var komið á samstarfshópi um átak í umferðarmálum.

Lesa meira >>
 

7.12.2005: Kínverskur liðsauki í heilsugæslu við Kárahnjúka

Xie Hai Yan, kínverskur hjúkrunarfræðingur í heimsókn hjá heilsugæslunni við Kárahnjúka.„Hér er gott að vera og gaman að geta orðið að liði við að aðstoða landsmenn mína sem fyrir eru. Ég bjóst við að hér yrði mun yfirleitt kaldara og verra veður en þetta er bara fínt!“ segir Xie Hai Yan, kínverskur hjúkrunarfræðingur við heilsugæsluna við Kárahnjúka í samtali við heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira >>
 

7.12.2005: Styttist í að bor 3 fari að snúast á ný

Enn er steypt vatnskápa á Kárahnjúkastíflu þrátt fyrir vetrarríkið.Ætla má að bor 3 verði tekinn í gagnið á nýjan leik um jólin og þá verði allir þrír borarnir í gangi samtímis. Samsetning borsins er langt komin.

Lesa meira >>
 

2.12.2005: Stöðvarhellirinn kynntur á norrænni jarð- og bergtækniráðstefnu
Unnið við að grafa stöðvarhellinn í Fljótsdal í október 2004.

„Ætli mönnum þar ytra hafi ekki helst komið á óvart hve vel gekk að grafa stöðvarhellinn í Fljótsdal þrátt fyrir ýmis vandamál sem upp komu,“ segir Matthías Loftsson á Hönnun hf. Hann er nýlega kominn heim af norrænni jarð- og bergtækniráðstefnu í Osló þar sem meðal annars var fjallað var um virkjunarframkvæmdirnar í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal.

Lesa meira >>
 

30.11.2005: Tilboða óskað í Hraunaveitu og Ufsarstíflu

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í fjóra verkþætti Hraunaveitu og Ufsarstíflu Kárahnjúkavirkjunar. Þessum verkum á öllum að ljúka á árinu 2008.

Lesa meira >>
 

30.11.2005: Misgengi á vegi bors 1

Bor 1 miðaði venju óvenju hægt í síðustu viku þegar hann fór í gegnum misgengissprungu á leið sinni. Hagstæðara berg er hins vegar framundan. Bor 2 gekk hins vegar bærilega og skilaði yfir 100 metrum, sem er meira en sést hefur á skrá frá honum lengi. Bergið á þeim slóðum fer stöðugt batnandi.

Lesa meira >>
 

23.11.2005: Arnarfell lýkur við 120 metra aðrennslisskurð

Aðrennslisskurður Arnarfells. Mynd: Þorbjörn Haraldsson.Starfsmenn Arnarfells luku í síðustu viku við að sprengja og grafa 120 metra langan aðrennslisskurð í hjáveitu Jökulsár í Fljótsdal (sjá myndir). Þeir byrjuðu jafnframt að sprengja 50 metra hjáveitugöng sem liggja munu undir stæði stíflu Ufsarlóns.

Lesa meira >>
 

18.11.2005: Georg Þór Pálsson ráðinn stöðvarstjóri Kárahnjúkavirkjunar

Georg Þór Pálsson, rafmagnstæknifræðingur, hefur verið ráðinn stöðvarstjóri Kárahnjúkavirkjunar. Hann vinnur nú sem aðstoðarstöðvarstjóri á Þjórsársvæði en hefur starfað hjá Landsvirkjun undanfarin fjögur ár. Á árunum 1994 - 1997 vann hann einnig hjá Landsvirkjun í Blöndustöð. Gert er ráð fyrir að Georg hefji störf fyrir austan í lok ágústmánaðar 2006.

Lesa meira >>
 

16.11.2005: Vetrarríki við Kárahnjúka

Vinna á framkvæmdasvæðinu við Kárahnjúka er að mestu leyti neðanjarðar um þessar mundir. Þannig verður það þar til linnir vetrarríki á hálendinu og sól hækkar á lofti að nýju.

Lesa meira >>
 

16.11.2005: 50 tonna stykki látið síga 400 metra niður lóðrétt göng

Tímamót urðu í virkjunarframkvæmdunum á mánudaginn var, 14. nóvember, þegar fyrsta einingin í stálfóðringu lóðréttra fallganga Kárahnjúkavirkjunar, liðlega 45 tonn að þyngd, var látin síga þar um 400 metra ásamt 6 tonna stýrivirki – alls yfir 50 tonn. Þetta er sennilega þyngsta stykki sem hefur verið híft eða látið síga úr svo mikilli hæð á Íslandi til þessa.

Lesa meira >>
 

14.11.2005: Byrjað að fóðra fallgöngin í dag

Fyrsti hluti stálfóðringar í önnur tveggja fallganga Kárahnjúkavirkjunar var látinn síga niður í dag, ofan á beygju sem búið var að steypa fasta neðst í þessum 400 metra lóðréttu göngum. Hver eining fóðringarinnar vegur 42 tonn og gert er ráð fyrir að koma einni slíkri fyrir á viku til að byrja með.

Lesa meira >>
 

8.11.2005: Balalaikatrío frá Rússlandi með tónleika við Kárahnjúka

Balalaikatríóið Rússneskir virtúósar styttir starfsmönnum við Kárahnjúka stundir með hljómleikum í matsal Impregilo í hádeginu í dag, þriðjudaginn 8. nóvember. Tríóið fer um landið þessa dagana í hljómleikaferð sem Landsvirkjun styrkir ásamt fleiri fyrirtækjum.

Lesa meira >>
 

8.11.2005: Tvöfalt met hjá bor 1

Risaborvél 1 gengur skínandi vel um þessar mundir. Hún borðaði 83,2 metra í byrjun vikunnar(mánudaginn 7. nóvember) og alls 292 metra í síðustu viku, meira en nokkru sinni áður á einni viku.

Lesa meira >>
 

31.10.2005: Flogið yfir Kárahnjúkastíflu

Svona leit Kárahnjúkastíflan út úr lofti um fyrri helgi þegar Sigurður Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, ritstjóri Austurgluggans, flaug þar yfir með myndavélina sína. Hann veitti Kárahnjúkasíðunni góðfústlegt leyfi til að birta myndirnar og þökk fyrir það.

Lesa meira >>
 

31.10.2005: Bor 2 kominn í fast berg á ný

Bor 2 er kominn á blað á ný eftir margra mánaða stopp í misgengissprungum við Þrælaháls. Borinn fór fyrst í gegnum steypuklumpinn sem til var orðinn framan við hann (bergmulningur  límdur saman með sementi) og er núna að vinna í föstu og stöðugu bergi.

Lesa meira >>
 

24.10.2005: Misgengin við Þrælaháls vonandi sigruð

Bor2 er kominn í gegnum steypuklumpinn í þriðja og síðasta misgenginu á rúmlega 40 metra kafla sem hann hefur verið meira og minna fastur á í hálft ár. Nú er verið að undirbúa að bora áfram í sjálfu berginu og ákveðið er að bora jafnóðum 25 metra langar rannsóknarholur fram fyrir borinn til að kanna jarðlögin.

Lesa meira >>
 

24.10.2005: Framkvæmdir við að fóðra fallgöngin að komast á skrið á ný

Starfsmenn þýska fyrirtækisins DSD Stahlbau GmbH komast senn á fullan skrið við að fóðra svokölluð fallgöng Kárahnjúkavirkjunar, tvenn 400 metra lóðrétt göng sem veita vatni úr Hálslóni úr aðrennslisgöngum að vélum Kárahnjúkavirkjunar. Verkið stöðvaðist í september eftir að Slippstöðin á Akureyri, þáverandi undirverktaki DSD, var lýst gjaldþrota.

Lesa meira >>
 

19.10.2005: Forsætisráðherra við Kárahnjúka

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra við Kárahnjúka. Myndir: Harald AlfreðssonHalldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, fór um virkjunarsvæðið í Fljótsdal og við Kárahnjúka á mánudaginn var og kynnti sér gang framkvæmda. Heimsóknin var að frumkvæði ráðherrans.

Lesa meira >>
 

19.10.2005: Byrjað að steypa botn í yfirfallsskurð Hálslóns

Framkvæmdir við að steypa yfirfallskurð Hálslóns hófust í síðustu viku við kuldalegar aðstæður eins og meðfylgjandi myndir sýna. Tjaldað var yfir vinnusvæðið í skurðinum og heitu lofti dælt inn í vinnurýmið til að halda hita á starfsmönnum og sjálfri steypunni.

Lesa meira >>
 

18.10.2005: Bor 2 loksins kominn í gegnum misgengið

Starfsmönnum Impregilo hefur tekist að koma risaborvél 2 í gegnum miklar og erfiðar misgengissprungur í berginu á um 170 metra dýpi í grennd við Þrælaháls. Borinn er því laus eftir að hafa verið stopp að mestu leyti í hálft ár eða frá því í byrjun maí.

Lesa meira >>
 

15.11.2005: Villandi fréttir og villandi umfjöllun World Wide Fund for Nature

Fregnir hafa borist af því gegnum fjölmiðla að náttúruverndarsamtökin World Wide Fund for Nature (WWF) telji Kárahnjúkavirkjun ,,meðal sex verstu virkjana heims með tilliti til náttúruspjalla og félagslegrar röskunar." Rök WWF fyrir slíkri útnefningu hljóta að skipta máli og undrun vekur því að enginn fjölmiðlamaður skuli hafa fyrir því að flytja þau inn í umræðuna, enn sem komið er að minnsta kosti. Þar er nefnilega að finna sitthvað sem enga skoðun stenst, svo ekki sé nú meira sagt. 

Lesa meira >>
 

10.10.2005: Framgangur verka í stöðvarhúsi og spennasal á góðu róli

Lokið er við að steypa niður þrjá snigla af sex í vélum Kárahnjúkavirkjunar og unnið að því að koma hinum þremur sniglunum fyrir í stöðvarhúsinu.  Þar við hliðina er langt kominn undirbúningur að því að setja niður spenna virkjunarinnar fljótlega á nýju ári.

Lesa meira >>
 

8.10.2005: Samkeppni um listaverk við Kárahnjúka og í Fljótsdal

Landsvirkjun ætlar að efna til samkeppni um útilistaverk í Fljótsdal í tengslum við aflstöð Kárahnjúkavirkjunar og setja það upp á árinu 2007. Fyrirtækið efnir einnig til samkeppni um umhverfislistaverk við Kárahnjúka á svæðinu þar sem verður Hálslón og tilheyrandi stíflur.

Lesa meira >>
 

5.10.2005: Kuldi og misgengi hægja á verki

Bor 1 gekk skínandi vel í síðustu viku og skilaði 243 metrum sem er með því mesta sem borvél hefur afkastað á einni viku frá því byrjað var að bora aðrennslisgöngin á virkunarsvæðinu. Bor 2 er áfram stopp í misgengi en vonir standa til að hann fari að snúast í síðari hluta október.

Lesa meira >>
 

4.10: Skóli, börn, blýhólkur og atvinnulíf

Ólafur Páll Jónsson, lektor heimspeki í Kennaraháskóla Íslands og Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, skrifast á um fyrirhugaða orkumálasamkeppni Landsvirkjunar í grunnskólum í greinum sem birtar eru á Netlu, veftímariti Rannsóknastofnunar Kennaraháskóla Íslands. Ólafur Páll gagnrýnir samkeppnina harðlega með rökum sem  Þorsteinn segir að hvorki standist né lýsi með réttmætum hætti framtaki Landsvirkjunar.

Lesa meira >>