Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2005 september-júlí

31.8.2005: Slippstöðvarmenn komnir í beygju síðari fallganganna

Slippstöðvarkrani neðan við fallgöng Kárahnjúkavirkjunar 30. ágúst 2005.Starfsmenn Slippstöðvarinnar ehf. á Akureyri hófu í gær að koma fyrstu beygjueiningunni á sinn stað í öðrum tveggja fallganga Kárahnjúkavirkjunar. Þeir höfðu áður lokið við að koma fyrir og steypa niður beygjustykkin í hinum fallgöngunum.

Lesa meira >>
 

27.9.2005: Hausthretið hægði á útiverkum

Hausthretið hægði nokkuð á sumum þeim verkþáttum virkjunarframkvæmdanna sem eru hvað viðkvæmastir fyrir kulda og snjó. Hins vegar er nú spáð betri tíð og hjólin ættu þá að geta snúist hraðar á nýjan leik.

Lesa meira >>
 

21.9.2005: Grunnskólaverkefni lögð í hornstein Kárahnjúkavirkjunar

Landsvirkjun býður nemendum í grunnskólum landsins að taka í vetur þátt í samkeppni um verkefni varðandi orkumál. Verðlaunatillögurnar verða settar í blýhólk og fulltrúar grunnskólanema aðstoða forseta Íslands síðan við að koma honum fyrir í hornsteini Kárahnjúkavirkjunar vorið 2006.

Lesa meira >>
 

20.9.2005: DSD segir formlega upp samningi við Slippstöðina

Þýska fyrirtækið DSD Stahlbau GmbH hefur formlega sagt upp samningi við Slippstöðina á Akureyri vegna vinnu við Kárahnjúkavirkjun. Slippstöðin, sem var undirverktaki DSD,  fékk á dögunum heimild til greiðslustöðvunar.

Lesa meira >>
 

20.9.2005: Góður gangur hjá Arnarfelli

Starfsmönnum verktakafyrirtækisins Arnarfells miðar vel við verkþættina sem varða svokallaða Ufsarveitu. Unnið er að gangagerð og inntaksskurð.

Lesa meira >>
 

13.9.2005: Staðhæfingar og staðreyndir um Kárahnjúkavirkjun

Friðrk Sophusson flytur erindi um Kárahnjúkavirkjun á ársfundi Vinnumálastofnunar árið 2004.Oftar en ekki er gripið til staðhæfinga sem ekki standast nánari skoðun, segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, í grein í Morgunblaðinu 12. september 2005. Hann rekur þar ýmsar fullyrðingar úr þjóðmálaumræðunni undanfarið varðandi Kárahnjúkavirkjun og bendir á staðreyndir málsins.

Lesa meira >>
 

13.9.2005: 11,5% steyptu vatnskápunnar komin á sinn stað

Lokið er við að steypa 10.650 fermetra af vatnskápunni á Kárahnjúkastíflu sem er ríflega þriðjungur þess sem á að framkvæma af þessum verkþætti fyrir áramót.

Lesa meira >>
 

6.9.2005: Metvika við stíflufyllinguna

Metafköst voru við fyllingu Kárahnjúkastíflu í síðustu viku. Alls bættust við 147.000 rúmmetrar í  stífluna og þar með eru komin í hana 67% fyllingarefnisins.

Lesa meira >>
 

2.9.2005: Erlendir gestir í Végarði meira en tvöfalt fleiri í ár en í fyrra

Alls hafa liðlega tíu þúsund gestir komið í Végarð í Fljótsdal í ár til að skoða sýningu Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun. Talan miðast við lok ágústmánaðar og er ívið hærri en á sama tíma í fyrra.

Lesa meira >>
 

31.8.2005: Þingnefnd í þæfingsfærð

Horft út um bílglugga á Fljótsdalsheiði 30. ágúst 2005!Iðnaðarnefnd Alþingis lenti í snemmbúnu hausthreti á við Kárahnjúka í gær þegar hún var á kynnisferð um virkjunarsvæðið. Alhvítt varð á skammri stundu og þæfingsfærð á kafla á Fljótsdalsheiðinni á heimleiðinni.

Lesa meira >>
 

29.8.2005: Rústirnar á Hálsi frá því fyrir 950

Rústir þriggja húsa á Hálsi við Kárahnjúka eru meira en þúsund ára gamlar. Þetta er staðfest með niðurstöðum rannsókna á öskulögum.

Lesa meira >>
 

26.8.2005: Pólverjar til Suðurverks

Sautján Pólverjar komu á dögunum til landsins til starfa hjá Suðurverki hf. við Kárahnjúka. Fyrirtækið auglýsti eftir mannskap hér heima viku eftir viku en hafði ekki árangur sem erfiði.

Lesa meira >>
 

23.8.2005: Nær 35% fyllingarefnis komin í Desjarárstíflu

Framkvæmdir við Desjarárstíflu hafa gengið vel í sumar og á næstu dögum taka starfsmenn Suðurverks hf. upp þráðinn frá síðastliðnum vetri og halda áfram að flytja fyllingarefni í Sauðárdalsstíflu. Þetta eru hliðarstíflur stóru Kárahnjúkastíflunnar og saman munu þær mynda Hálslón Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira >>
 

23.8.2005: 45 sekúndur að dúndra 40 rúmmetra fyllingarfarmi á trukkana!
Mynd: Þorgrímur St. Árnason

Vinna við að flytja fyllingarefni í Kárahnjúkastíflu gengur afar vel um þessar mundir. Mannvirkið hefur því tekið verulegum breytingum á fáum vikum og er komið á stórum kafla upp í 580 metra hæð yfir sjó.

Lesa meira >>
 

16.8.2005: Konur þjappa fyllingarefnið í stíflunni

Kínverskar konur stýra völturunum sem sjást á meðfylgjandi mynd af framkvæmdum við Kárahnjúkastíflu. Þær þjappa fyllingarefnið í lögum og þykja af afbrigðum nákvæmar og vandvirkar sem sést best á því að fyllingin stenst undantekningarlaust prófanir framkvæmdaeftirlitsins.

Lesa meira >>
 

16.8.2005: Arnarfellsmenn byrjaðir á hjáveitu Jökulsár í Fljótsdal

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells hófu á dögunum vinnu við hjáveitumannvirki Jökulsár í  Fljótsdal. Þeir munu grafa skurð og göng í stæði væntanlegrar Ufsarstíflu austan árinnar og þar kemur áin til með að renna á meðan sjálf stíflan rís.

Lesa meira >>
 

12.8.2005: Rústirnar á Hálsi frá því um 950

Gjóskulagarannsóknir hafa leitt í ljós að rústir, sem Páll Pálsson frá Aðalbóli fann á sínum tíma á Hálsi við Kárahnjúka, eru frá því um 950. Fornleifafræðingar hafa grafið upp rústirnar og rannsakað þær í sumar.

Lesa meira >>
 

12.8.2005: Dómsmálaráðherra í heimsókn

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, fór um Kárahnjúkasvæðið núna í vikunni og kynnti sér virkjunarframkvæmdirnar.

Lesa meira >>
 

9.8.2005: Steypuvinna í stöðvarhúsi samkvæmt áætlun

Lokið er við að steypa niður sográs og snigil  einnar af sex vélum í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar. Steypuvinnan þar gengur samkvæmt áætlun.

Lesa meira >>
 

9.8.2005: Er ,,Kárahnjúkavandinn" til?

Andstæðingar framkvæmda á Austurlandi segja að þær hafi neikvæð áhrif á stöðu útflutningsatvinnugreina á Íslandi og tala um ,,Kárahnjúkavanda" í því sambandi. Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjuna, fjallar um þessa fullyrðingu í eftirfarandi grein, sem birtist á heimasíðu Landsvirkjunar í ágúst 2005.

Lesa meira >>
 

27.7.2005: Vatn í Jöklu heldur að sjatna

Vatnið í Jökulsá á Dal (Jöklu) hefur frekar sjatnað en hitt síðasta sólarhringinn en mikið rennsli er samt enn í ánni og það kann að aukast á nýjan leik í hlýindunum á hálendinu dag eftir dag.

Lesa meira >>
 

26.7.2005: Bor 1 á blússi undir Fljótsdalsheiðinni

Borvél 1 gengur afar vel um þessar mundir og boraði 208 metra í síðustu viku, sem er vel yfir áætluðum meðalafköstum.

Lesa meira >>
 

26.7.2005: Skemmdarverk kærð, tjaldbúðaleyfi afturkallað

Lögregla á Austurlandi og embætti ríkislögreglustjóra höfðu síðastliðna nótt afskipti af hópi fólks sem hlekkjaði sig við vinnuvélar á Kárahnjúkasvæðinu og skemmdi eigur verktaka og annarra. Skemmdarverkin verða kærð. Leyfi fyrir tjaldbúðum í landi Valþjófsstaðar var í dag afturkallað og tjaldbúum gert að hverfa á braut.

Lesa meira >>
 

20.7.2005: Slys í aðrennslisgöngunum

Starfsmaður Impregilo slasaðist snemma í morgun á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka þegar hann varð fyrir flutningalest í aðrennslisgöngunum inn af aðgöngum 1.

Lesa meira >>
 

19.7.2005: Síðari hálfleikur hafinn við stíflufyllinguna

Alls eru nú komnar 4,5 milljónir rúmmetra af fyllingarefni í Kárahnjúkastíflu og verkið er þar með liðlega hálfnað.

Lesa meira >>
 

18.7.2005: Skríðandi steypumót sjá stíflunni fyrir kápu

Gríðarmiklar rafknúnar vindur draga skriðmótin upp stífluna. Vel gengur að leggja steypta klæðingu vatnsmegin á Kárahnjúkastíflu. Verkið hófst 23. júní og framgangur þess er eins og til var stofnað.

Lesa meira >>
 

15.7.2005: Metaðsókn í Végarð

Alls hafa um 4.300 gestir komið í Végarð í Fljótsdal  það sem af er sumri til að skoða Kárahnjúkasýninguna, fá upplýsingar um virkjunarframkvæmdirnar og fleira sem þar er aðgengilegt í máli og myndum.

Lesa meira >>
 

15.7.2005: Arnarfell bauð lægst í gröft og göng vegna Ufsarstíflu

Verktakafyrirtækið Arnarfell ehf. átti lægsta tilboð í gröft og gangagerð vegna botnrásar Ufsarstíflu, tæplega 96 milljónir króna eða 59% af kostnaðaráætlun. Tilboð voru opnuð hjá Landsvirkjun í dag.

Lesa meira >>
 

14.7.2005: Hálfnaðir að steypuklæða inntak Hálslóns

Starfsmenn Impregilo hafa lokið við að steypa fóðringu í helming kafla í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar næst vatnsinntakinu í Hálslóni. Fyrsti kílómetri aðrennslisganganna frá inntakinu var sprengdur og grafinn á hefðbundinn hátt og verður heilfóðraður með steypu sem lögð er með risavöxnu stálmóti.

Lesa meira >>
 

13.7.2005: Borvél 3 snúið við

Bormenn að störfum. Mynd: Denni/SAGAfilmBorvél 3 við Kárahnjúka á eftir að heilbora rúman kílómetra aðrennslisganga að Hálslóni en nú hefur verið ákveðið að láta gott heita á þeim stað, snúa vélinni við og bora í hina áttina. Hún hefur borað um 8 kílómetra frá upphafi verks vorið 2004.

Lesa meira >>
 

12.7.2005: Arnarfell samdi við björgunarsveit og gaf henni bíl

Kjartan Einarsson frá björgunarsveit Héraðs og Sigurbergur Konráðsson, framkvæmdastjóri Arnarfells, við sjúkrabifreiða sem sveitin fékk að gjöf.Verktakafyrirtækið Arnarfell frá Akureyri hefur samið við björgunarsveitina Hérað á Egilsstöðum um viðbúnað á vinnusvæði sínu eystra þar til framkvæmdum þar lýkur. Jafnframt gaf fyrirtækið björgunarsveitinni fullbúinn björgunarbíl í viðurkenningarskyni fyrir ómetanlegt starf sem björgunarsveitarmenn landsins vinna.

Lesa meira >>
 

8.7.2005: Héraðsverk bauð lægst í Hálsveg
Fimmtudaginn 7. júlí voru opnuð hjá Landsvirkjun tilboð í svokallaðan Hálsveg, sem er vinnuvegur sem mun liggja frá Sandfelli að Litlu Sauðá. Alls bárust tilboð frá 10 verktökum en lægst bjóðandi var Héraðsverk ehf. sem bauð tæpar 106 milljónir króna. 
Lesa meira >>
 

5.7.2005: Um helmingur efnis kominn í Kárahnjúkastíflu

Kárahnjúkastífla, aðalstífla Hálslóns, fær nú á sig meiri svip með degi hverjum.Um 87 þúsund rúmmetrar af fyllingarefni voru keyrðir í stífluna í síðustu viku og er nú um helmingur byggingarefnis nú kominn í þessa stærstu grjótstíflu í Evrópu.

Lesa meira >>