 |
|
 |
31.3.2005: Hægur framgangur boranna |
Hægt gekk að bora á Kárahnjúkasvæðinu í 12. viku eins og meðfylgjandi tölur bera með sér. Borarnir þrír skiluðu samtals aðeins 70 metrum, aðallega vegna þéttingar og styrkingar bergs. |
| Lesa meira >>
|
|
|
23.3.2005: Sýningin í Végarði opnuð á ný 20. apríl |
Sýningin um Kárahnjúkavirkjun í Végarði í Fljótsdal verður ekki opnuð á nýjan leik fyrr en 20. apríl. Rétt er að vekja athygli á að sýningin verður EKKI opin um páskana. |
| Lesa meira >>
|
|
|
23.3.2005: Fosskraft sf. byggir hlaðhúsið í Fljótsdal |
Landsvirkjun hefur ákveðið að taka tilboði Fosskrafts sf. í hlaðhús Kárahnjúkavirkjunar, þjónustubyggingar sem rísa mun í Fljótsdal. Fosskraft átti lægsta tilboð í verkið, um 349 milljónir króna að meðtöldum virðisaukaskatti, sem er um 70% af kostnaðaráætlun.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
21.3.2005: Tvær sográsir komnar í bólin sín |
Tvær sográsir af sex eru komnar á sína staði í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal eins og sést á meðfylgjandi mynd. Stykkin voru flutt inn í fjallið um miðjan febrúar, hvort um sig vegur á tíunda tonn. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.3.2005: Óhagstætt berg á leið boranna |
Laust berg og vatnsrennsli töfðu fyrir þeim tveimur borvélum sem voru hreyfðar í síðustu viku. Innan við 90 metrar bættust við heilboruðu aðrennslisgöngin.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
11.3.2005: Störf á virkjunarsvæðinu |
Nokkuð er um að fólk í atvinnuleit á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka hafi samband við Landsvirkjun af því tilefni. Það er hins vegar ekki við Landsvirkjun að eiga heldur svara verktakarnir sjálfir sem svara slíkum erindum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
8.3.2005: Arnarfellsgöngin yfir 400 metrar |
Frárennslisgöng úr Ufsarlóni eru orðin 410 metrar. Starfsmenn Arnarfells lengdu göngin um 40 metra í síðustu viku og þeim miðar vel við verkið.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
4.3.2005: Bófahasar inni í fjalli í Fljótsdal |
Afar dularfullir náungar snigluðust um göng og rangala stöðvarhússins í Fljótsdal fyrr í vikunni og skimuðu eftir hámenntuðum bófa sem gekk laus og ógnaði öllu mannkyni með skelfilegum áformum sínum. Aðstandendur Stundarinnar okkar í Sjónvarpinu voru á ferð að taka upp sakamálaþátt handa börnum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
1.3.2005: Sográsin komin á sinn stað |
Fyrsta sográsin af sex er kominn á ,,básinn” sinn í stöðvarhúshvelfingunni í Valþjófsstaðarfjalli eins og sést á meðfylgjandi mynd. Búið er að stilla af þetta ríflega 9 tonna stykki og síðan verður það steypt niður.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
1.3.2005: Fimmfaldur munur á lægsta og hæsta tilboði |
Fornleifastofnun Íslands átti lægsta tilboð í uppgröft á rústum á Hálsi í væntanlegu lónsstæði við Kárahnjúka, tæplega 11,5 milljónir króna. Hæsta tilboðið var meira en fimmfalt hærra eða tæplega 58,5 milljónir króna.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
24.2.2005: Brúarásskóli fékk heimsókn frá Kárahnjúkum |
Nemendur og kennarar Kárahnjúkaskóla heimsóttu í gær granna sína í grunnskólanum að Brúarási og áttu afar ánægjulega dagstund við leik og störf. Þetta er upphafið að frekari samskiptum og heimsóknum skólanna.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
22.2.2005: Bergþétting tafði enn för borvélar 3 |
Borvélum 1 og 3 miðaði hægt í fyrri viku, aðallega vegna þess að bergið er erfitt viðureignar og mikill tími fer í að þétta það. Rífandi gangur er hins vegar í borvél 2 og hún skilaði 185 af alls ríflega 270 metrum sem bættust við aðrennslisgöngin. |
| Lesa meira >>
|
|
|
18.2.2005: Göng Arnarfells orðin 330 metra löng |
Aðrennslisgöngin frá væntanlegu Ufsarlóni eru orðin um 330 metra löng. Verktakanum miðar vel og bergið telst hagstætt á gangaleiðinni.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
17.2.2005: Í grunni tengivirkishússins í Fljótsdal |
Starfsmenn Keflavíkurverktaka eru byrjaðir á grunni væntanlegs tengivirkishúss Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal, við op strengjaganganna inn að spennasalnum í Valþjófsstaðarfjalli.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.2.2005: Tímamót í Fljótsdal: sográsir fluttar á sinn stað |
Tvær sográsir Kárahnjúkavirkjunar voru fluttar inn í stöðvarhússalinn í morgun. Þessi kaflaskipti í virkjunarframkvæmdunum eru upp á dag í samræmi við tímaáætlun.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.2.2005: Gert klárt fyrir komu fyrstu sográsarinnar í stöðvarhússalnum |
Verkefni vikunnar í stöðvarhússalnum í Fljótsdal var meðal annars að undirbúa að fyrsta sográsin af sex yrðu flutt á sinn stað.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
10.2.2005: Átta milljarða króna viðskipti Impregilo við íslensk fyrirtæki |
Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo keypti vörur og þjónustu af íslenskum fyrirtækjum fyrir rúmlega 8,3 milljarða króna frá upphafi framkvæmda við Kárahnjúka til ársloka 2004. Þetta kemur fram í yfirliti sem fyrirtækið sendi fjölmiðlum í dag. |
| Lesa meira >>
|
|
|
9.2.2005: Áhætta og öryggiskröfur á virkjunarsvæðinu |
Verktakar á Kárahnjúkasvæðinu verða að leggja áhættumat hvers verkþáttar fyrir framkvæmdaeftirlit Landsvirkjunar til samþykktar og allir efna þeir til öryggisnámskeiða fyrir starfsfólk sitt. Forvarnastarf er mikið og öflugt en eðli máls samkvæmt er aldrei hægt að tryggja fullkomið öryggi á vinnustöðum þar sem aðstæðar eru jafn erfiðar og raun ber vitni um.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
7.2.2005: Heilboruðu göngin yfir 13 kílómetrar |
Borvélarnar þrjár við Kárahnjúka hafa nú skilað 13,1 kílómetra, sem jafngildir 27% af heildarlengd heilboraðra aðrennslisganga virkjunarinnar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
1.2.2005: Veður leyfði efnisflutning í stífluna en í smáum stíl |
Skyndileg hlýindi urðu til þess að unnt var að byrja á nýjan leik að flytja fyllingarefni í Kárahnjúkastíflu í síðustu viku eftir nokkurra vikna hlé. Einungis bættust samt við 3.000 rúmmetrar en ætla má að meiri skriður komist á verkið núna í febrúar ef viðrar til þess á annað borð.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
25.1.2005: Reykjasel úr Hrafnkelssögu Freysgoða? |
Landsvirkjun auglýsir nú eftir tilboðum í rannsóknir á rúst sem Páll Pálsson frá Aðalbóli fann haustið 2003 á Hálsi sunnan Kárahnjúka. Hann telur þetta kunna að vera Reykjasel sem kemur við sögu í Hrafnkelssögu Freysgoða. |
| Lesa meira >>
|
|
|
24.1.2005: Fjórðungi lokið af heilboruðum göngum |
Borvélarnar þrjár hafa nú lokið liðlega fjórðungi þess verks sem þeim er ætlað á virkjunarsvæðinu, 12,3 af alls 48,3 kílómetrum eða 26%. Góður gangur var á tveimur borum en sá þriðji beið eftir að bergið yrði nægilega þétt til að hægt væri að bora áfram. |
| Lesa meira >>
|
|
|
18.1.2005: Bormet í einum göngum, vatn í öðrum |
Risaborvél nr. 2 er á mikilli siglingu um þessar mundir og bætir eigið met viku eftir viku. Í fyrstu viku ársins boraði hún 250 metra en í síðustu viku yfir 270 metra, sem telst skínandi góður árangur.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
11.1.2005: Fosskraft átti lægsta tilboð í hlaðhúsið í Fljótsdal |
Fosskraft sf. bauð lægst í smíði svonefnds hlaðhúss við munna aðkomuganga Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal, 349 milljónir króna, sem er um 71% af kostnaðaráætlun verksins. Tilboð voru opnuð hjá Landsvirkjun í gær.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
11.1.2005: Hálfur kílómetri boraður, met hjá borvél 2 |
Borvinnan gekk vel í síðustu viku þegar á heildina er litið en framgangur vélanna þriggja var mismikill. |
| Lesa meira >>
|
|
|
4.1.2005: Virkjunarsamningur að sjálfsögðu í gildi |
Virkjunarsamningurinn svokallaði um kaup og kjör er að sjálfsögðu í gildi og ekkert bendir til annars en hann sé virtur af verktökum við Kárahnjúkavirkjun. Þetta var efnislegt svar Sigurðar Arnalds, talsmanns framkvæmdarinnar, í samtali við Stöð tvö í tilefni af fullyrðingum Jóhanns G. Bergþórssonar, verkfræðings. |
| Lesa meira >>
|
|
|
4.1.2005: 220 metrar boraðir milli jóla og nýárs |
Framgangsskýrsla jólavikunnar er einföld og skýr. Borvélarnar þrjár voru í gangi og unnið var í aðalinntaki Hálslóns. Að öðru leyti hvíldi jólafriður yfir framkvæmdasvæðinu og enginn var til dæmis við störf í Fljótsdal. |
| Lesa meira >>
|
|
|
3.1.2005: Logandi snjór á gamlárskvöld! |
Gleðilegt nýtt ár, ágætu gestir Kárahnjúkasíðunnar, og bestu þakkir fyrir samskiptin á liðnu ári. Að sjálfsögðu var árið 2004 kvatt á hefðbundna íslenska vísu við Kárahnjúka með flugeldum og brennu en það reyndist ekki alveg einfalt!
|
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |