Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2004 des.-október

28.12.2004: Hægagangur í jólaviku

Jólahelgin stytti síðustu vinnuviku í annan endann og tölur um framgang verka eru í samræmi við það. Borvélarnar þrjár voru í gangi til jóla og unnið var í inntaksgöngum Hálslóns.

Lesa meira >>
 

21.12.2004: Glitský og jóladýrastemning við Kárahnjúka

Hreindýr voru í flokkum fast við Kárahnjúkaveg í vikunni og kipptu sér ekki upp við að Hrönn Hjálmarsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, staðnæmdist til að taka af þeim myndir þegar hún átti leið um Fljótsdalsheiði. Þau brostu meira að segja framan í myndavélina, sum hver að minnsta kosti.

Lesa meira >>
 

20.12.2004: Arnarfellsgöngin yfir 70 metrar

Göngin úr væntanlegu Ufsarlóni í Jökulsá í Fljótsdal voru orðin 71 metri að lengd í lok síðustu viku. Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells áttu í umtalsverðum erfiðleikum um hríð í mestu vetrarhörkunum, frostið fór í 18 stig þegar kaldast var.

Lesa meira >>
 

17.12.2004: Allir borarnir í gangi á milli jóla og nýárs

Starfsmenn verktaka á Kárahnjúkasvæðinu eru flestir á förum heim í hátíðafrí. Sumir eru reyndar þegar farnir en aðrir verða um kyrrt og halda áfram vinnu sinni nema sjálfa jóladagana og um áramótin.

Lesa meira >>
 

16.12.2004: Byrjað að steypa í stöðvarhúshellinum í Fljótsdal

Nú er lokið öllum greftri og bergstyrkingum í göngum og hellum í Fljótsdal og ákveðin kaflaskipti eru því í verkinu þegar vinna við steypu og stál tekur við á öllum stöðum þar í Valþjófsstaðarfjalli.

Lesa meira >>
 

6.12.2004: Lokið við að grafa göng og hella í Fljótsdal

Lokið er vinnu við að grafa jarðgöng, hella og skúta í Valþjófsstaðarfjall Fljótsdal, mörgum vikum á undan áætlun. Fosskraftsfólk fagnaði áfanganum um helgina.

Lesa meira >>
 

6.12.2004: 83 metrar á sólarhring – borvél 3 setti nýtt met

Boruðu göngin lengdust samtals um hátt í 620 metra í síðustu viku. Þetta telst býsna góður gangur í verkinu og meira að segja féll met.

Lesa meira >>
 

6.12.2004: Fuglum stafar ekki hætta af virkjuninni

Fuglum stafar hvorki hætta af virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka né Norðlingaöldu. Þetta er niðurstaða fastanefndar Bernarsamningsins um vernd villtra dýra, plantna og vistgerða í Evrópu.

Lesa meira >>
 

6.12.2004: Stíflan komin langt upp úr gljúfrinu

Framhlið stíflunnar, hlíð Fremri-Kárahnjúks í baksýn.Í Kárahnjúkastíflu er nú kominn vel ríflega fjórðungur fyllingarefnisins. Hér eru myndir frá því í lok nóvember af stíflunni veggja vegna og svo mynd frá því í vor til samanburðar.

Lesa meira >>
 

2.12.2004: Á bormannaslóð í Teigsbjargi

Einkennileg tilfinning er það nú að standa á brautarpalli, þrjá kílómetra inni í jarðgöngum í Fljótsdal, og bíða eftir að lestin bruni í hlað. En svona er Ísland í dag eða öllu heldur Austurland.

Lesa meira >>
 

30.11.2004: Fimmtungur heilboraðra ganga kominn

Risaborvélararnar þrjár höfðu heilborað samtals 9,2 kílómetra löng göng í lok síðustu viku. Það eru um 19% af heildarlengd ganganna sem boruð verða við Kárahnjúka en þau verða alls 48,3 kílómetrar.

Lesa meira >>
 

28.11.2004: Hnoðsteypa notuð í fyrsta sinn á Íslandi

Starfsmenn Impregilo hófu fyrir helgina að steypa innan við távegg Kárahnjúkastíflu og nota við verkið svokallaða RCC-steypu í fyrsta sinn á Íslandi; hnoðsteypu eins og fyrirbærið er nefnt á íslensku.

Lesa meira >>
 

24.11.2004: Borað í klettanef

Vinnuvélin á myndinni hér til hægri er að bora í klettanef sem skagar út í Hafrahvammagil þar sem verið er að fylla í Kárahnjúkastíflu. Nefið verður síðan sprengt og fjarlægt til að fyllingarefnið falli betur að gljúfurveggnum.

Lesa meira >>
 

23.11.2004: Veðráttan setur mark sitt á framganginn

Kuldakastið núna í nóvember setur strik í reikninginn í mörgum þáttum virkjunarframkvæmdanna. Frost og steypuvinna fara til dæmis afar illa saman, sem hægir á verkum hér og þar.

Lesa meira >>
 

17.11.2004: Arnarfell að hefja gerð ganga úr Ufsarlóni

Starfsmenn Arnarfells frá Akureyri byrja væntanlega núna í vikunni að sprengja fyrir göngum úr Ufsarlóni í Jökulsá í Fljótsdal sem tengjast munu stóru aðrennslisgöngunum úr Hálslóni.

Lesa meira >>
 

11.11.2004: Slippstöðin semur um að stálfóðra fallgöngin

Slippstöðin ehf. á Akureyri hefur samið við þýska fyrirtækið DSB Stahlbau GmbH um að að stálfóðra fallgöng Kárahnjúkavirkjunar í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal og setja niður tilheyrandi búnað í stöðvarhúsi virkjunarinnar. Í þetta fara um 4.400 tonn af stáli!

Lesa meira >>
 

9.11.2004: 600 metrar boraðir í fyrri viku

Borvélarnar þrjár skiluðu alls um 600 metra löngum göngum í viku 45 og komust því á ný á umtalsvert skrið eftir hægagang vegna bilana og vandamála í tæknibúnaði. Færibönd bors nr. tvö gengu samt enn ekki sem skyldi.

Lesa meira >>
 

2.11.2004: Fjórðungur fyllingarefnis kominn í Kárahnjúkastíflu

Það bættust tæplega 93.000 rúmmetrar af fyllingarefni við í Kárahnjúkastíflu í síðustu viku eða 15.500 rúmmetrar að meðaltali á sólahring. Þar með er kominn í stífluna ríflega fjórðungur fyllingarinnar eða nákvæmlega 26,2%.

Lesa meira >>
 

2.11.2004: Fyrstu ljósmyndirnar af gosinu í Grímsvötnum

Svona leit gosið í Grímsvötnum út frá Sauðafelli norðan Vatnajökuls um áttaleytið í morgun. Þetta er fyrsta myndin sem birtist af gosinu, að því best er vitað, tekin af Þorgrími St. Árnasyni, hjá framkvæmdaeftirliti Landsvirkjunar við Kárahnjúka, VIJV.

Lesa meira >>
 

26.10.2004: Óveðrið setti strik í reikninginn

Óveðrið á sunnan- og austanverðu landinu setur mark sitt á framgangstölur liðinnar viku en tæknileg vandræði koma þar líka við sögu.

Lesa meira >>
 

19.10.2004: Stórhríðarhvellur við Kárahnjúka

Vinnu var víðast hætt á virkjunarsvæðinu í fyrrinótt, aðfararnótt mánudags, þegar skall á óveður um austan- og sunnanvert landið.

Lesa meira >>
 

18.10.2004: Bergið of hart eða of laust í sér

Bergið á leiðum risaborvélanna var ekki hagstætt í síðustu viku, enda sýna tölur fremur hægan framgang þessa hluta framkvæmdanna.

Lesa meira >>
 

12.10.2004: Allir borarnir komnir í aðrennslisgöngin

Borarnir þrír við Kárahnjúka eru nú allir á ,,beinu brautinni” í verkum sínum á virkjunarsvæðinu. Þeir eru komnir inn úr aðgöngum á öllum stöðum og bora sjálf aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar sem vatn mun renna eftir úr Hálslóni að stöðvarhúsinu í Fljótsdal.

Lesa meira >>
 

12.10.2004: Fjölgar í Kárahnjúkaskóla

Á sama tíma og íslenska grunnskólakerfið er lamað vegna kennaraverkfalls er blómleg starfsemi í ítölskum grunnskóla norðan Vatnajökuls. Kárahnjúkaskóli er starfræktur í annað sinn og nemendum hefur fjölgað verulega frá í fyrra.

Lesa meira >>
 

7.10.2004: Árekstur lesta í aðgöngum 3

   
   
Þrír erlendir starfsmenn Impregilo meiddust síðastliðna nótt þegar flutningalestir lentu í árekstri inni í aðgöngum 3 á Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal.
Lesa meira >>
 

4.10.2004: Fyrsta vikan með þrjá bora í gangi í einu

Allir risaborarnir voru samtímis í notkun á virkjunarsvæðinu í síðustu viku, í fyrsta sinn frá því bor nr. 1 var tekinn í gagnið í september.

Lesa meira >>