Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2004 sept.-júlí

28.9.2004: Fyrsti bíllinn yfir Hafrahvammagljúfur á Kárahnjúkastíflu!

Impregilobíllinn kominn yfir gljúfrið á Kárahnjúkastíflu.   Mynd: Þorgrímur St. ÁrnasonÞau tímamót í virkjunarframkvæmdunum í gær að Kárahnjúkastífla fyllti Hafrahvammagljúfur nægilega mikið til að Impregilomenn gætu ekið bíl á af öðrum gljúfurbarminum yfir á hinn á hinu varanlega stíflumannvirki.

Lesa meira >>
 

27.9.2004: Þriðji borinn gangsettur en lítið gerðist hjá hinum tveimur

Risabor var formlega ræstur í aðgöngum 1 á Valþjófsstaðarfjalli í síðustu viku. Þar með hafa allar stórvirku borvélarnar þrjár verið teknar í gagnið á virkjunarsvæðinu.

Lesa meira >>
 

23.9.2004: Tugir hópferða um virkjunarsvæðið í september

Verkmenntaskóli Austurlands við Kárahnjúka 23. september 2004Hátt í fjórir tugir hópa fólks hafa farið um virkjunarsvæðið við Kárahnjúka núna í september, flestir með viðkomu á kynningu Landsvirkjunar í Végarði. Vetrartími tekur gildi á Kárahnjúkasýningunni um næstu mánaðarmót.

Lesa meira >>
 

20.9.2004: Kárahnjúkastífla orðin 70 metra há og komin upp að gljúfurbörmum,

Kárahnjúkastífla fyllir nú sjálft  Hafrahvammagljúfur og hefur náð um 70 metra hæð frá gljúfurbotni. Úthlið stíflunnar er orðin skýr og greinileg, bæði í gljúfrinu og á vesturbakkanum eins og glöggt má sjá á meðfylgjandi ljósmyndum sem teknar voru á vettvangi 18. september sl.

Lesa meira >>
 

15.9.2004: Slegið í gegn í fallgöngunum!

Bor í Valþjófsstaðarfjalli kom upp á yfirborðið í frárennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar um ellefuleytið í dag og lauk þar með við að bora lóðrétt fallgöng, 420 metra löng og 4 metrar í þvermál.

Lesa meira >>
 

15.9.2004: Arnarfellsmenn í kapphlaupi við Vetur konung

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells á Akureyri undirbúa af kappi jarðgangagerð vegna svokallaðrar Ufsarveitu Kárahnjúkavirkjunar. Markmiðið er að ,,komast ofan í jörðina” áður en vetur sest að á hálendinu eystra.

Lesa meira >>
 

13.9.2004: Bilun í borvél 2 setti strik í reikninginn

Afköst TBM 2 í viku 37 voru einungis tæplega 16 metrar vegna bilunar í færibandakerfinu, sem kostaði fjögurra daga hlé og einn dagur til viðbótar fór í bergstyrkingar.

Lesa meira >>
 

8.9.2004: Góður gangur hjá Suðurverki við stíflugerðina

Vinna Suðurverks við Desjarárstíflu og Sauðárdalsstíflu gengur vel og í heildina samkvæmt verkáætlunum. Þessir þættir virkjunarframkvæmdanna koma nú inn í vikulegt yfirlit Kárahnjúkasíðunnar í fyrsta sinn.

Lesa meira >>
 

3.9.2004: Heimsmet í gangaborun við Kárahnjúka í ágúst?
Risaborvél nr. 3 við Kárahnjúka boraði alls 1.195 metra í ágústmánuði sem er sérlega góður árangur og  kann að vera heimsmet ef miðað er við hliðstæð verkefni erlendis. Verið er að afla upplýsinga að utan til að staðfesta hvort þessi framgangur verks eigi sér einhverja hliðstæðu.  
Lesa meira >>
 

3.9.2004: Flutningsgeta hjáveituganga ofmetin en varnarstíflan stóðst raunina fullkomlega

Varnarstíflan hækkuð 4. ágúst 2004.  Mynd: Gunnar Þ. GuðmundssonHjáveitugöngin í stæði Kárahnjúkastíflu flytja 10-15% minna vatn en gert var ráð fyrir, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum athugunar á ástæðum þess að vatnsborð Jöklu hækkaði jafnmikið ofan varnarstíflunnar og raun bar vitni um í ágúst síðastliðnum.

Lesa meira >>
 

30.8.2004: Vettvangsskoðun við upphaf línuframkvæmda
Línuleiðin um Fljótsdalshrepp.

Undirbúningsframkvæmdir vegna lagningar Fljótsdalslína 3 og 4 eru hafnar við Reyðarfjörð. Hópur sveitarstjórnarmanna, landeigenda og fleiri sem hlut eiga máli hittist eystra til vettvangskönnunar.

Lesa meira >>
 

30.8.2004: 300 metrar á viku með risaborvél nr. 3

Borvélinni TBM3 miðaði vel í vikunni og skilaði 300 metrum í aðrennslisgöngum frá aðgöngum 3 í átt til Hálslóns. Í lok 35. viku hafði hún borað alls rúmlega 1.100 metra í ágústmánuði og stefnir í met þar.

Lesa meira >>
 

30.8.2004: Augnablikið fangað á mynd

Starfsmönnum Suðurverks miðar vel með svokallaðar hliðarstíflur Hálslóns beggja vegna stóru Káranjúkastíflunnar.

Lesa meira >>
 

25.8.2004: Framkvæmdir hefjast til undirbúnings háspennulínum til Fjarðaáls
Línuleiðin við Reyðarfjörð.

Starfsmenn Ístaks hf. byrja núna í vikunni að leggja slóða vegna væntanlegra háspennulína úr Fljótsdal til álvers Fjarðaáls við Reyðarfjörð. Fjarðabyggð hefur gefið út tilskilið framkvæmdaleyfi Landsvirkjun til handa og fyrst verður lagður vegslóði vegna línuleiðar frá Hrauni (þar sem álverið á að rísa) að Seljateigi við Reyðarfjörð.

Lesa meira >>
 

23.8.2004: Metvika í gangaboruninni

Nýtt met var slegið í gangaborun á framkvæmdasvæðinu í vikunni. Risaborarnir tveir skiluðu samtals 557,5 metrum. Gert er ráð fyrir að þriðji borinn verði tekinn í gagnið í aðgöngum 1 í annarri viku septembermánaðar.

Lesa meira >>
 

17.8.2004: 17 metra lofthæð í endilöngum stöðvarhúshellinum

Lokið var við að sprengja og hreinsa út næstefsta lagið í stöðvarhúshellinum í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal. Þar með eru 17 metrar til lofts í hellinum stafna á milli en lofthæðin á eftir að tvöfaldast áður en yfir lýkur.

Lesa meira >>
 

16.8.2004: Brúin við Kárahnjúka á ný opin almennri umferð

Almenn umferð hefur verið leyfð á ný yfir brúna yfir Jöklu á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka en búast má við tímabundum lokunum komi til frekari vatnavaxta í ánni. Vinna við távegg Kárahnjúkastíflunnar er nú komin aftur á fullan skrið.

Lesa meira >>
 

12.8.2004: Flóðið í Jöklu í rénun

Vatnsrennslið í Jöklu minnkaði mikið í nótt. Er talið að flóðið í ánni hafi nú náð hámarki og næstu daga muni vatnið sjatna jafnt og þétt í henni.

Lesa meira >>
 

12.8.2004: Risaborvél 3 byrjuð á sjálfum aðrennslisgöngunum

Risaborvélin TBM 3 náði þeim áfanga að kvöldi frídags verslunarmanna, 2. ágúst, að ljúka við aðgöng 3 og hefja borun sjálfra aðrennslisganga Kárahnjúkavirkunar í átt til Hálslóns.

Lesa meira >>
 

10.8.2004: Ný rennslisspá gerir ráð fyrir svipuðu flóði í Jöklu í þessari viku og var fyrir helgi

Rennslisspá sem Vatnaskil hafa gert fyrir Landsvirkjun bendir til að yfirvofandi flóð í Jöklu í vikunni verði svipað og í síðustu viku eða eilítið meira en vel innan þeirra viðmiðunarmarka sem varnarstíflan eigi að ráða við.

Lesa meira >>
 

9.8.2004: Varnarstíflan við Kárahnjúka hækkuð í 496 metra

Varnarstíflan í gljúfri Jöklu við Fremri-Kárahnjúk hefur verið hækkuð í 496 metra hæð yfir sjávarmáli, eða upp að barmi glúfursins, og á stíflan nú að standast meira rennsli en mælst hefur í Jöklu frá því rennslismælingar hófust fyrir 40 árum. Er varnarstíflan orðin 17 metrum hærri en upphaflega var ráðgert. Starfsmenn við Kárahnjúka eru þó áfram í viðbragðsstöðu og geta með stuttum fyrirvara hækkað varnarstílfuna enn frekar, ef þess gerist þörf.

Lesa meira >>
 

6.8.2004: Almenn umferð um vinnusvæðið við Kárahnjúka áfram takmörkuð

Þar sem spáð er áframhaldandi hlýindum næstu daga og jafnvel úrkomu á virkjunarsvæðinu er ljóst að hringleiðin um vinnusvæðið við Kárahnjúka verður ekki opnuð fyrir umferð ferðamanna í bráð.

Lesa meira >>
 

5.8.2004: Brúin yfir Jöklu við Kárahnjúka lokuð almennri umferð

Í kjölfar skemmda sem urðu á handriðum og gólfi brúarinnar yfir Jöklu við Kárahnjúka í gærkvöldi hefur verið ákveðið að loka henni fyrir almennri umferð næstu daga þar til annað verður tilkynnt.

Lesa meira >>
 

5.8.2004: Önnur risaborvélin komin á skrið í aðgöngum 2

Önnur risaborvélin af þremur við Kárahnjúka er komin á blað. Byrjað var að bora með henni í aðgöngum 2 hinn 26. júlí og nú er unnið allan sólarhringinn á tvískiptum vöktum.

Lesa meira >>
 

28.7.2004: Meistarakokkur í Fljótsdal

Smella á og stækka!Ótrúlegt en staðreynd engu að síður. Það er sælkeraupplifun að borða í búðum Landsvirkjunar vegna virkjunarframkvæmda í Fljótsdal! Þökk sé Þórólfi Sigjónssyni, matreiðslumanni, sem fer hreint ekki troðnar mötuneytisslóðir við matseldina.

Lesa meira >>
 

27.7.2004: Dregur úr vatnsrennsli í inntaksgöngum

Vatnsrennsli inn í aðalinntak úr Hálslóni hefur minnkað í fyrsta sinn í margar vikur. Inntaksgöngin eru orðin 360  metra löng.

Lesa meira >>
 

21.7.2004: Þurr göng nema í aðalinntaki Hálslóns

Smella til að stækka!Vatnsleka verður lítið vart í öllum þeim jarðgöngum sem búið er að bora og sprengja á virkjunarsvæðinu. Undantekningin er aðalinntak Hálslóns.

Lesa meira >>
 

19.7.2004: 14 km af jarðgöngum, yfir 60 km eftir!

Smella til að stækka!Starfsmenn Impregilo og Fosskrafts hafa alls borað og sprengt um 14 kílómetra löng jarðgöng á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka, þar af Impregilo 9 km og Fosskraft 5 km.

Lesa meira >>
 

19.7.2004: Fljótsdalslínur 3 og 4

Stöðvarhús og tengivirki Kárahnjúkavirkjunar koma til með að líta svona út í Fljótsdal.Landsvirkjun auglýsti um helgina útboð í tiltekna verkhluta vegna háspennulína úr Fljótsdal til Reyðarfjarðar. Fljótsdalslínur 3 og 4 verða lagðar næsta sumar og sumarið 2006 og munu flytja nýju álveri orku frá Kárahnjúkavirkjun.

Lesa meira >>
 

19.7.2004: Steypa í távegginn dygði í hundruð einbýlishúsa

Smella til að stækka!Starfsmenn Impregilo renna þessa dagana steypu í mót svokallaðs táveggs Kárahnjúkastíflu í botni Hafrahvammagljúfurs. Mannvirkið á sér enga hliðstæðu hérlendis hvernig sem á er litið.

Lesa meira >>
 

13.7.2004: 300 metrar eftir í frárennslisgöngunum í Fljótsdal

Smella og stækka!Góður gangur er í gerð frárennslisganga í Fljótsdal. Tæplega 300 metrar eru eftir af um 1.100 metra löngum göngum og unnið er samtímis beggja vegna í fjallinu.

Lesa meira >>
 

13.7.2004: 500 gestir í Végarði um helgina!

Metaðsókn var í gestastofu Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal um síðustu helgi. Þangað komu hvorki fleiri né færri en 500 manns laugardag og sunnudag til að kynna sér virkjunarframkvæmdirnar eystra!

Lesa meira >>
 

9.7.2004: Skrifað undir samning um Ufsarveitu

Í dag 9.7. skrifuðu Örn Marinósson aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Sigurbergur Konráðsson framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Arnarfells ehf. á Akureyri undir samning um að Arnarfell sjái um framkvæmdir við Ufsarveitu fyrir 1911 milljónir króna.

Lesa meira >>
 

5.7.2004: 936 metra löng göng boruð í júní

Risaborin í aðgöngum 3 skilaði 936 metrum í júnímánuði sem er afar góður árangur á alþjóðavísu í verkum af þessu tagi. Borinn er búinn með aðgöngin og nú er komið að því að bora sjálf aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar í átt til Hálslóns.

Lesa meira >>
 

1.7.2004: Risaborinn með tvo kílómetra að baki

Risaborinn í aðgöngum 3 í Glúmstaðadal er kominn tvo kílómetra áleiðis í sínu verki sem gengur skínandi vel.

Lesa meira >>
 

1.7.2004: Samið við Arnarfell um Ufsarveitu

Landsvirkjun hefur ákveðið að verktakafyrirtækið Arnarfell hf. á Akureyri annist framkvæmdir við Ufsarveitu, sem er í síðari verkhluta Kárahnjúkavirkjunar. Arnarfell fékk í dag afhent svokallað veitingabréf frá Landsvirkjun vegna verksins og skrifað verður formlega undir samning föstudaginn 9. júlí 2004.

Lesa meira >>