Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2004 mars-janúar

12.1.2004: Utanríkisráðherrahjónin við Kárahnjúka

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, og Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona hans, fóru um Kárahnjúkasvæðið fyrir helgina ásamt vinafólki, Sævari Sigurgeirssyni og Unni Magnúsdóttir. Þau voru öll afar hrifin af því sem fyrir augu bar.

Lesa meira >>
 

12.1.04: Unnið í þrennum göngum í Fljótsdal

Vinna við frárennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal hófst 5. janúar og þannig eru nú framkvæmdir þar samtímis í gangi við þrenn göng: aðkomugöng, kapalgöng og frárennslisgöng.

Lesa meira >>
 

12.1.2004: Jólin kvödd í Laugarási

Starfsmenn í aðalbúðum Kárahnjúkavirkjunar við Laugarás kvöddu jólin með myndarlegri brennu.

Lesa meira >>
 

13.1.04: Þorrablót Fljótsdælinga í nýjum Végarði

Framkvæmdir eru vel á veg komnar við stækkun og breytingar í Végarði, félagsheimilinu í Fljótsdal.

Lesa meira >>
 

19.1.2004: Vinna við fallgöng getur hafist í marsmánuði

Gert er ráð fyrir að vinna við fyrri fallgöng Kárahnjúkavirkjunar geti hafist núna í mars. Þetta má sjá í nýrri framkvæmdaáætlun sem birt er hér á heimasíðunni í dag.

Lesa meira >>
Framkvæmdaáætlun,janúar 2004
 

19.1.2004: Eldvarnaæfingar í mötuneytum og skóla við Kárahnjúka

Starfsmenn í eldhúsum og mötuneytum við Kárahnjúkavirkjun fræðast í vikunni um viðbrögð vegna bruna og þjálfa sig til að nota slökkvitæki og eldvarnarteppi.

Lesa meira >>
 

17.1.2004: Líklegt að helmingur vinnuafls á framkvæmdatímanum verði íslenskur

Ætla má að annar hver starfsmaður við framkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjun og tengd flutningsvirki verði Íslendingur þegar litið er á verkið í heild sinni. Þetta kemur fram á heimasíðu Landsvirkjunar og tilefnið er ummæli hagfræðings Alþýðusambands Íslands í Útvarpsfréttum 15. janúar sl.

Lesa meira >>
 

19.1.2004: Aðkomugöngin í Fljótsdal orðin hátt í 400 metrar
Rífandi gangur er í gerð aðkomuganga í Fljótsdal og þau eru orðin hátt í 400 metra löng.
Lesa meira >>
 

22.1.2004: Sementsmenn á hálum ís

Stjórnendur Sementsverksmiðjunnar, Norcem og HC Trading fóru um Kárahnjúkasvæðið í skínandi björtu og fínu veðri í gær áður en leiðin lá til Reyðarfjarðar að taka í notkun sementsturna. Fljúgandi hálka á Kárahnjúkavegi setti mark sitt á hálendisferðina.

Lesa meira >>
 

22.1.2004: Samtök launafólk vilja íslenskt sjónvarp á skjáinn á Kárahnjúkasvæðinu

Nokkur heildarsamtök launafólk krefjast þess að séð verði til þess að útsendingar íslensks sjónvarps náist á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka.

Lesa meira >>
 

23.1.2004: Hæstiréttur hafnaði ógildingarkröfu með afgerandi hætti

Hæstiréttur staðfesti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem þrír einstaklingar og Náttúruverndarsamtök Íslands höfðuðu gegn íslenska ríkinu og Landsvirkjun þar sem þess var krafist að úrskurður umhverfisráðherra um Kárahnjúkavirkjun frá 20. desember 2001 yrði dæmdur ómerkur.

Lesa meira >>
Dómur Hæstaréttar 22. janúar 2004
 

27.1.2004: Framgangur í 4. viku 2004
Þrenn göng í Fljótsdal eru orðin samtals um 900 metra löng. Bormenn eru senn hálfnaðir með aðkomugöngin en frárennslisgöngin eru styst á veg komin.
Lesa meira >>
 

29.1.2004: Sjónvarpsútsendingar RÚV nást á öllu virkjunarsvæðinu

Sólstafir í skýjum yfir Kárahnjúkum. Mynd: Andrew HaresÍslenskt starfsfólk í Laugaási, aðalbúðum við Kárahnjúka, horfði í fyrsta sinn á Sjónvarp RÚV í gær eftir að lítill endurvarpi var settur upp á Sandfelli.

Lesa meira >>
 

4.2.2004: Framgangur í viku 5

Jarðgöng á virkjunarsvæðinu lengjast flest um tugi metra í hverri viku þrátt fyrir vetrarríkið eystra.

Lesa meira >>
 

6.2.2004: Sólarhringsþjónusta í heilsugæslustöðinni í Laugaási

Heilsugæslustöð Kárahnjúkavirkjunar veitir framvegis þjónustu allan sólarhringinn.

Lesa meira >>
 

9.2.2004: Stórhríðin setur strik í reikninginn
Þess sjást glögg merki í framgangsskýrslu fyrir viku 6 að erfið vetrarveður geysa þessa dagana norðan Vatnajökuls.
Lesa meira >>
 

6.2.2004: Yfir 50 á ítölskunámskeiði

Á sjötta tug manna sitja sækja ókeypis námskeið í ítölsku sem boðið er upp á í  Kárahnjúkaskóla.

Lesa meira >>
 

10.2.2004: Viðbúnaður samkvæmt áætlun en óveðrið skall á fyrr en spáð var

Viðbúnaðaráætlun á virkjunarsvæðinu var virkjuð í óveðrinu fyrir og um helgina en bylurinn skall á fyrr en spáð var. Menn læra af þeirri reynslu.

Lesa meira >>
 

17.2.2004: Fosskraft flýtir verkáætlun við gangagerð í Fljótsdal

Aðkomugöngin í Fljótsdal, febrúar 2004.   Mynd: HrönnFosskraft JV, verktakinn við jarðgangagerð í Fljótsdal, gerir nú ráð fyrir að ljúka gangagerðinni að mestu fyrir lok þessa árs í stað fyrri hluta árs 2005. Þetta er samkvæmt nýrri verkáætlun.

Lesa meira >>
 

19.2.2004: Snjóbíll á vegum Landsvirkjunar við Kárahnjúka

Snjóbíll frá Landsvirkjun hefur bæst í tækjaflotann á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka.

Lesa meira >>
 

23.2.2004: Ofsögur af hreindýrum á Kárahnjúkavegi

Mynd: Náttúrustofa Austurlands/Skarphéðinn ÞórissonLátið hefur verið að því liggja í fréttaflutningi fjölmiðla að Kárahnjúkavegur komi oftar en ekki við sögu þegar ekið er á hreindýr á Austurlandi. Það eru hreinar ofsögur eins og dæmin sanna.

Lesa meira >>
 

23.2.2004: Fylling Kárahnjúkastíflu hafin í sjálfu Hafrahvammagljúfri

 Hreinsun jarðvegs í botni Hafrahvammagljúfra.  Mynd: Kristján Kristinsson  Tíu þúsund rúmmetrum af fyllingarefni í Kárahnjúkastíflu var komið fyrir á botni Hafrahvammagljúfra í síðustu viku. Stíflufylling í sjálfru gljúfrinu hófst að morgni sunnudags 15. febrúar og markaði upphaf nýs áfanga framkvæmdanna.

Lesa meira >>
 

24.2.2004: 2,4 milljarða króna verksamningur við Suðurverk

Dofri Eysteinsson, Guðmundur Ólafsson og Friðrik Sophusson skála fyrir góðum samningi.Fulltrúar Landsvirkjunar og Suðurverks hf. í Hafnarfirði undirrituðu í dag samning um gerð Sauðárdalsstíflu (KAR-12) og Desjarárstíflu (KAR-13) vegna Kárahnjúkavirkjunar. Samningurinn hljóðar upp á ríflega 2,4 milljarða króna með virðisaukaskatti.

Lesa meira >>
 

27.2.2004: Gunnþórunn oddviti fær lykla að nýjum Végarði

Oddvitinn þakkar Völvusteinsmönnum fyrir gott iðnverk í Végarði.  Myndir: Hrönn HjálmarsdóttirFljótsdælingar blóta þorra í ár í nýjum og breyttum Végarði, félagsheimili sem hefur verið tekið svo rækilega í gegn í vetur að þar er fátt sem minnir á fyrri tíð, nema þá helst góður húsandi.

Lesa meira >>
 

29.2.2004: Auglýsing frá Dressmann?

,,Er þetta auglýsing frá Dressmann?” varð starfsmanni Landsvirkjunar að orði þegar hann leit á meðfylgjandi mynd. Nei, það er ekki svo. Þarna er stjórnarformaður fyrirtækisins á botni Hafrahvammagljúfurs ásamt föruneyti!

Lesa meira >>
 

29.2.2004: Dómsmálaráðherra með föruneyti við Kárahnjúka

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að breytingin á Austurlandi vegna virkjunarframkvæmdanna sé meiri en hann hafi gert sér grein fyrir. Hann kom að Kárahnjúkum á fimmtudaginn var, 26. febrúar.

Lesa meira >>
 

1.3.2004: Varnarstíflan langt komin

Hreinsun í stæði Kárahnjúkastíflu.  Myndir: Hrönn Hjálmarsdóttir.Svokölluð varnarstífla í Hafrahvammagljúfri er vel á veg komin. Eftir er að setja í hana innan við 10% af fyllingarefninu sem upphaflega var gert ráð fyrir að stífluna færi.

Lesa meira >>
 

1.3.2004: Leikur að kenna, leikur að læra!

Barnakennsla á daginn og ítölskukennsla á kvöldin. Þannig er lífið nú um stundir hjá Francescu Francesconi, kennara við Kárahnjúkaskóla.

Lesa meira >>
 

3.3.2004: Alcoamenn við Kárahnjúka

Þrír starfsmenn bandaríska álfyrirtækisins Alcoa fóru um virkjunarsvæðið í gær til að kynna sér gang framkvæmda. Þeim þótti mikið til um það koma sem fyrir augu og eyru bar í ferðinni.

Lesa meira >>
 

3.3.2004: Notkun handslökkvitækja kennd á öllum vinnusvæðum Impregilo

Öryggis- og umhverfisdeild Impregilo er um þessar mundir að kenna og þjálfa starfsfólk fyrirtækisins á virkjunarsvæðinu að nota handslökkvitæki. Í janúar var brunaæfing á svæðinu þarf sem björgunarliðar æfðu sig meðal annars í reykköfun.

Lesa meira >>
 

4.3.2004: Stefnt að því að gangsetja fyrsta risaborinn við Kárahnjúka í lok mars

Starfsmenn Impregilo vinna sleitulaust að því að setja saman risaborvélina sem flutt var til landsins frá Cleveland í Bandaríkjunum skömmu fyrir jól. Gert er ráð fyrir að borinn verði gangsettur í lok þessa mánaðar.

Lesa meira >>
 

10.3.2004: 72.000 rúmmetrar af fyllingu í Kárahnjúkastíflu á viku

Unnið á gljúfurbotninum í febrúar 2004. Mynd: Hrönn Hjálmarsdóttir.Um 72.000 rúmmetrar af fyllingarefni bættust við í Kárahnjúkastíflu í síðustu viku, gott betur en tvöfalt meira en í vikunni þar á undan.

Lesa meira >>
 

15.3.2004: Banaslys við Kárahnjúka í nótt

Íslenskur starfsmaður undirverktaka Impregilo við Kárahnjúka lést síðastliðna nótt eftir að á hann féll brjót úr bergi Hafrahvammafljúgurs þar sem hann var við störf.

Lesa meira >>
 

15.3.2004: 11.000 rúmmetrar á dag í stíflufyllingu

Risagrafa athafnar sig í efnisnámu við Kárahnjúka. Mynd: HrönnUm 68.000 rúmmetrar af fyllingarefni fluttir í Kárahnjúkastíflu í 11. viku, að jafnaði 11.000 rúmmetrar á hverjum vinnudegi.

Lesa meira >>
 

18.3.2004: Frekari öryggisráðstafanir áður en vinna hefst á ný í gljúfrinu

Smella til að stækka!       Mynd: Hrönn Hjálmarsdóttir.Verktakafyrirtækið Impregilo vinnur að tillögum að frekari öryggisráðstöfunum í og við Hafrahvammagljúfur. Vinna hefst ekki á ný í gljúfrinu fyrr en verktakinn, framkvæmdaeftirlit Landsvirkjunar og Vinnueftirlit ríkisins telja að öryggi starfsmanna þar hafi verið tryggt á fullnægjandi hátt.

Lesa meira >>
 

22.3.2004: Sérstakar aðstæður endurspeglast í framgangstölum

Upplýsingar um framgang framkvæmda við Kárahnjúka í 12. viku bera þess glögg merki að vinna í Hafrahvammagljúfri var stöðvuð tímabundið vegna hins hörmulega slyss þar 15. mars.

Lesa meira >>
 

22.3.2004: Borinn mikli þokaðist af stað í dag!

Starfsmenn Impregilo hafa nánast lokið við að setja saman fremsta hluta fyrstu borvélarinnar af þremur sem notaðar verða við jarðgangagerð vegna Kárahnjúkavirkjunar. Næstu daga verður vélinni mjakað inn í aðgöng 3 í Glúmstaðadal.

Lesa meira >>
 

23.3.2004: Borinn kominn að gangamunnanum

Smellið á myndina!Borvélin mikla mjakaðist í dag hægt en örugglega eftir teinum úr samsetningarskemmunni við aðgöng 3 að sjálfum gangamunnanum. 20 metra ferðalag var að baki um hádegisbil og þá voru eftir 370 metrar inn að stafni ganganna þar sem borkrónan fer að hamast á berginu seinni partinn í apríl. 

Lesa meira >>
 

23.3.2004: Beltagrafa valt niður á gljúfurbarminn

Maður slapp naumlega þegar hann stökk út úr beltagröfu sem rann af stað og valt niður hlíð Fremri-Kárahnjúks í gærkvöld. Grafan stöðvaðist á gljúfurbarminum og er talin ónýt.

Lesa meira >>
 

30.3.2004: Gangamót 1.000 metra inni í fjalli í Fljótsdal

Aðkomugöngin í Fljótsdal eru orðin nær einn kílómetri og hafa náð fullri lengd eða því sem næst. Komið var að gangamótum fyrir helgina og menn taka nú stefnuna á þann stað í fjallinu þar sem byrjað verður að sprengja hellahvelfingar fyrir stöðvarhús og annan búnað virkjunarinnar.

Lesa meira >>
 

31.3.2004: Önnur risaborvélin til Reyðarfjarðar 2. apríl

Fyrsti borinn stingur sér í aðgöng 3 í Glúmstaðadal. Mynd: Denni/SAGA filmAnnar risaborinn af þremur, sem nota á til að bora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar, er væntanlegur frá Bandaríkjunum til Reyðarfjarðar um hádegisbil föstudaginn 2. apríl.

Lesa meira >>