 |
|
 |
16.12.2003: Auglýst eftir fólki í 75 störf við Kárahnjúka |
| Impregilo vill ráða tugi manna til ýmissa starfa á virkjunarsvæðinu, svo sem iðnaðarmenn, byggingarverkamenn, bílstjóra og tækjamenn. |
| Lesa meira >>
|
|
|
23.12.2003: Framgangur í viku 51 |
Vinnu var fram haldið í viku 51 við jarðgangagerð á virkjunarsvæðinu en stóra fréttin þá dagana var koma borsins mikla frá Bandaríkjunum. |
| Lesa meira >>
|
|
|
20.12.2003: Borinn mikli kominn á sinn stað í Glúmstaðadal |
Vel gekk að flytja borinn mikla frá skipshlið á Reyðarfirði upp í Glúmstaðadal, þar sem tækið verður sett saman. Ferðin tók níu klukkustundir.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
19.12.2003: Jökla komin í hjáveitugöngin |
Jökulsá á Dal rennur nú um 835 metra löng hjáveitugöng fram hjá stæði Kárahnjúkastíflu. Sjálf stíflufyllingin er þegar hafin.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
19.12.2003: Suðurverk hf. með lægsta tilboð í tvær hliðarstíflur Kárahnjúkavirkjunar |
Suðurverk hf. í Hafnarfirði átti lægstu tilboð í gerð Desjarárstíflu og Sauðárdalsstíflu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Tilboðin voru opnuð hjá Landsvirkjun í dag. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.12.2003: Jól í faðmi ítalskrar fjölskyldu við Kárahnjúka |
Steingrímur Karlsson, kvikmyndagerðarmaður í Saga Film, hyggst dvelja í vinnubúðum Impregilo við Kárahnjúka um jólin og upplifa hátíðarstemninguna ásamt ítalskri fjölskyldu á svæðinu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
16.12.2003: Borinn mikli kemur og Jöklu veitt um um hjáveitugöngin 18. desember |
Tveir sögulegir áfangar verða í virkjunarframkvæmdunum á Austurlandi fimmtudaginn 18. desember. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.12.2003: Fyrsti hluti heimildarmyndar um Kárahnjúkavirkjun í Sjónvarpinu 16. desember |
Heimildarmynd um Káranjúkavirkjun verður sýnd í Sjónvarpinu annað kvöld, 16. desember. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.12.2003: Um meinta herferð á hendur Ómari Ragnarssyni |
| Ómar Ragnarson, fréttamaður Sjónvarpsins, staðfestir í bréfi til Friðriks Sophussonar að Landsvirkjun tengist á engan hátt þrýstingi sem Ómar talar um að hann hafi verið beittur vegna umfjöllunar um Kárahnjúkavirkjun. |
| Lesa meira >>
|
|
|
8.12.2003: Jökla í hjáveitugöngin 18. desember |
Stefnt er að því að veita Jöklu í hjáveitugöngin í stíflustæðinu við Fremri-Kárahnjúk fimmtudaginn 18. desember. |
| Lesa meira >>
|
|
|
8.12.2003: Sendiherra Íslands í Lundúnum, Landsvirkjun og Alcoa gagnrýna skrif The Guardian |
Grein um Kárahnjúkavirkjun og íslenskt samfélag í breska blaðinu The Guardian 29. nóvember sl. kallaði á hörð viðbrögð íslensku utanríkisþjónustunnar, Landsvirkjunar og Alcoa. |
| Lesa meira >>
|
|
|
6.12.2003: Nýr Végarður tekur á sig mynd |
Góður gangur er í framkvæmdum við viðbyggingu og endurbætur félagsheimilisins Végarðs í Fljótsdal, þar sem verður aðsetur sveitarstjórnarinnar og upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
6.12.2003: Dagur heilagrar Barböru við Kárahnjúka |
Sérkennilegur og einstakur helgifriður og hátíðleiki ríkti á vinnusvæðum við Kárahnjúka þegar heilagrar Barböru, verndardýrlings manna sem fást við jarðvinnu, sprengiefni og málmbræðslu, var minnst að katólskum sið.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
2.12.2003: Vinna hafin í tvennum göngum í Fljótsdal |
 Unnið var við að bora og sprengja jarðgöng á sex stöðum á virkjunarsvæðinu í síðustu viku. Jafnframt því er haldið áfram að fylla í Kárahnjúkastíflu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
1.12.2003: Heilagrar Barböru minnst á Kárahnjúkasvæðinu 4. desember |
Starfsmenn Impregilo við Kárahnjúka heiðra minningu verndardýrlingsins Barböru á fimmtudaginn kemur, 4. desember. Guðsþjónusta verður í jarðgöngum þar klukkan 11:30 og að henni lokinni verður hátíðlegur hádegisverður í matsal fyrirtækisins.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
25.11.2003: Greiðar leiðir norðan Vatnajökuls |
|
|
|
24.11.2003: Jöklu veitt í hjáveitugöngin fyrir jól |
Steypuvinna í hjáveitugöngum 2 er langt komin. Horfur eru á að það náist fyrir jól að stífla gljúfrið og veita Jöklu um göngin og framhjá stíflustæðinu við Kárahnjúka.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
21.11.2003: Þýskt fyrirtæki annast stálfóðrun fallganga Kárahnjúkavirkjunar |
Fulltrúar Landsvirkjunar og þýska fyrirtækisins DSD Stahlbau GmbH undirrituðu í dag samning um stálfóðrun fallganga Kárahnjúkavirkjunar. Samningsupphæðin er hátt í 2,3 milljarðar króna auk virðisaukaskatts.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
19.11.2003: Mikilvægt að erlenda verkafólkið við Kárahnjúka finni sig velkomið, segir biskup Íslands |
,,Okkur er mjög í mun að stuðla að því að erlendt verkafólk, sem hingað er komið til starfa á virkjunarsvæðinu, finni sig velkomið, að því líði vel og að við Íslendingar auðsýnum því þá virðingu sem því ber,” segir biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, um ferð sína og fleiri kirkjunnar manna um Kárahnjúkasvæðið á dögunum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
19.11.2003: Tímamótahúseining Moelven handa Landsvirkjun við Kárahnjúka |
Starfsmenn norska fyrirtækisins Moelven Industrier AS gerðu sér glaðan dag í tilefni af því að hafa framleitt húseiningu nr. 60.000. Þessi eining var send til Íslands og er hluti af vinnubúðum Landsvirkjunar á Kárahnjúkasvæðinu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
18.11.2003: Sjúkraflug að Kárahnjúkum |
Þyrla Langhelgisgæslunnar, TF-Líf, sótti í gær veikan mann að Kárahnjúkum og flutti til Akureyrar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
17.11.2003: Jarðgangagerð hafin í Glúmstaðadal |
Starfsmenn Impregilo hófust handa fyrir helgi við að bora og sprengja aðgöng 3 í Glúmstaðadal.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.11.2003: Biskup blessar búðirnar |
Biskupinn yfir Íslandi og prestar lúterskra og katólskra kynntu sér framkvæmdir á Kárahnjúkasvæðinu í frábæru veðri í gær og blessuðu mötuneyti Landsvirkjunar, Impregili og Fosskrafts.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
13.11.2003: Jökulsá í Fljótsdal brúuð neðan við Eyjabakkafoss |
Starfsmenn Eldafls ehf. vélsmiðju í Njarðvík hafa brúað Jökulsá í Fljótsdal neðan við Eyjabakkafoss. Verkinu lauk upp á dag samkvæmt samningi þar að lútandi.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
13.11.2003: Biskupar, prófastur og prestar lúterskra og katólskra að Kárahnjúkum |
Biskupinn yfir Íslandi, vígslubiskup Hólastiftis, prófastur og prestar af Austurlandi koma á Kárahnjúkasvæðið á morgun í fylgd Landsvirkjunarmanna. Með í för er prestur katólska safnaðarins á Akureyri.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
12.11.2003: 113 metrar bættust við í viku 45 |
| Unnið er að því að sprengja göng á milli hjáveituganga 1 og 2 í stæði Kárahnjúkastíflu. Verkið var hálfnað í lok viku 45. |
| Lesa meira >>
|
|
|
4.11.2003: 130 metrar bættust við jarðgöng í viku 44 |
Áfram var unnið í aðgöngum 1 á Teigsbjargi og aðgöngum 2 við Axará Í 44. viku og alls bættust við ríflega 130 metrar, þar af 66 metar í öðrum göngunum en tæpir 65 í hinum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.10.2003: Um 900 manns við störf á virkjunarsvæðinu |
Alls eru um 900 manns við störf á svæði Kárahnjúkavirkjunar nú um stundir, þar af um 850 á vegum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo á hálendinu og nær 50 á vegum Fosskrafts í Fljótsdal.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.10.2003: Fyrsti risaborinn kemur um miðjan desember |
Þrjár risaborvélar verða notaðar næstu árin til að heilbora um 50 kílómetra af tæplega 70 km jarðgöngum sem tengjast Kárahnjúkavirkjun. Hin fyrsta kemur til landsins um miðjan desember.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.10.2003: Fosskraft komið 4 metra inn í Valþjófsstaðarfjall |
Starfsmenn Fosskraf JV eru lagðir af stað inn í Valþjófsstaðarfjall í Fljótsdal og hafa sprengt fjóra metra af alls 950 metra löngum komugöngum að væntanlegri stöðvarhússhvelfingu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
27.10.2003: Jarðgöng lengdust um 95 metra í viku 43 |
Áfram var unnið 44. viku í aðgöngum 1 á Teigsbjargi og aðgöngum 2 við Axará. Alls bættust við 95 metrar, 51 metri í öðrum göngunum en 44 metrar í hinum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
27.10.2003: Jarðgangagerð hafin í Fljótsdal |
Starfsmenn Fosskrafts eru byrjaðir að sprengja aðkomugöng að stöðvarhússhvelfingu Kárahjúkavirkjunar í Fljótsdal. Gert er ráð fyrir að vinna samtímis í þrennum göngum þar í byrjun næsta árs.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
26.10.2003: Björgunarlið á virkjunarsvæðinu |
Skipulagt hefur verið björgunarlið á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka, skipað yfir 20 starfsmönnum Impregilo og undirverktaka. Liðinu er ætlað að bregðast við útkalli á nóttu sem degi vegna bruna, slyss, óveðurs, leitar að týndu fólki eða af öðrum ástæðum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
20.10.2003: 128 metrar bættust við í aðgöngum 1 og 2 |
| Unnið var í aðgöngum 1 og 2 í viku 42 en gerð aðganga 3 er ekki hafin ennþá. |
| Lesa meira >>
|
|
|
16.10.2003: Tilboð opnuð í vélaspenna, KAR-31 |
Tilboð hafa verið opnuð hjá Landsvirkjun í vélaspenna Kárahnjúkavirkjunar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
16.10.2003: Samningur um véla- og rafbúnað upp á 7,5 milljarða króna |
Landsvirkjun samdi í dag við VA TECH Escher Wyss GmbH í Þýskalandi um framleiðslu og uppsetningu véla- og rafbúnaðar fyrir Kárahnjúkavirkjun, sem er verkþáttur KAR-30.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.10.2003: Hjáveitugöngin komin |
Lokið er við að borga og sprengja tvenn hjáveitugöng fyrir Jöklu í stíflustæðinu við Fremri-Kárahnjúk. |
| Lesa meira >>
|
|
|
9.10.2003: Vetrartími tekur gildi á sýningu um Kárahnjúkavirkjun |
Sýning vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun er nú opin alla virka daga í upplýsingamiðstöð ferðamanna á Egilsstöðum kl. 10:00-12:00 og 13:00-16:00. |
| Lesa meira >>
|
|
|
8.10.2003: Hjáveitugöngum sem næst lokið |
Í lok 40. viku var lokið 98% af hjáveitugöngunum í stæði Kárahnjúkastíflu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
8.10.2003: Rífandi gangur framkvæmda í Végarði |
Góður gangur er í framkvæmdum við endurbætur og viðbyggingu félagsheimilisins Végarðs í Fljótsdal.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
8.10.2003: Hreinar klappir í hlíð Fremri-Kárahnjúks |
Verktakafyrirtækið Arnarfell á Akureyri hefur lokið í bili við að skafa jarðveg ofan af klöppum í hlíð Fremri-Kárahnjúks þar sem væntanleg stífla leggst að hnjúknum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
7.10.2003: Samningur um heilsugæslu á Kárahnjúkasvæðinu |
Einar Rafn Haraldsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA), Gianni Porta, verkefnisstjóri Impregilo S.p.A. og Guðmundur Pétursson, yfirverkefnisstjóri Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar, undirrituðu í dag samning um heilbrigðisþjónustu sem nær til starfsmanna allra verktaka á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
3.10.2003: Skálað fyrir lokum vegklæðingarverkefnis |
,,Sjaldan hafa jafnmargir átt jafnfáum jafnmikið að þakka!” sagði Óli Metúsalemsson, á Verkfræðistofu Austurlands, við starfsmenn Malarvinnslunnar hf. á Egilsstöðum þegar þeir luku við að leggja klæðningu á Fljótsdalsheiðar- og Kárahnjúkaveg í þessum áfanga.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |