 |
|
 |
2.9.2004: Tíu þúsund gestir í Végarði! |
Yfir tíu þúsund manns komu í Végarð í Fljótsdal í sumar til að kynna sér framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
29.9.2003: 130 tonna beltagrafa frá Kína að Kárahnjúkum |
Vinnuvélar á virkjunarsvæðinu eru margar hverjar stærri í sniðum en menn hafa séð fyrr hérlendis, til dæmis tvær beltagröfur sem hingað voru fluttar frá Kína.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
29.9.2003: Fáeinir metrar eftir í hjáveitugöngunum |
Alls bættust við rétt tæplega 200 metrar í viku 39 í jarðgöngunum á Kárahnjúkasvæðinu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
29.9.2003: Linnulaus straumur fólks í kynnisferðum |
Alls hafa 12 hópar gesta boðað komu sína til kynnisferðar um Kárahnjúkasvæðið í þessari viku, alls á fjórða hundrað manns! |
| Lesa meira >>
|
|
|
25.9.2003: Klæðningu vegar að ljúka |
Það stefnir í að það takist að ljúka við að leggja slitlag á Fljótdalsheiðar- og Kárahnjúkaveg í fyrri hluta næstu viku. |
| Lesa meira >>
|
|
|
21.8.2003: Kárahnjúkasýningin flutt til Egilsstaða eftir helgina |
Sýning til kynningar á Kárahnjúkavirkjun verður opin í síðasta sinn í Végarði í Fljótsdal í bili á núna á sunnudaginn, 24. ágúst. Hún verður opinuð að nýju á Egilsstöðum miðvikudaginn 27. ágúst. |
| Lesa meira >>
|
|
|
21.9.2003: Of djúpt í árinni tekið um rusl og drasl |
Fulltrúar Landsvirkjunar og framkvæmdaeftirlits fyrirtækisins við Kárahnjúkavirkjun hafa að gefnu tilefni kannað rækilega núna um helgina hvort standist fullyrðingar á opinberum vettvangi um að umbúðarusl fjúki um virkjunarsvæðið, miklu sorpi sé fleygt í Jökulsá, ástandið versni og að opinberir heilbrigðiseftirlitsmenn hafi farið sérstaklega á svæðið í fyrri viku til að kanna ástandið. |
| Lesa meira >>
|
|
|
18.9.2003: Arnarfellsmenn að ljúka við að skafa vanga Fremri-Kárahnjúks |
Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells á Akureyri eru langt komnir með að skafa jarðveg ofan af klöppum í hlíð Fremri-Kárahnjúks. Ætla má að verkinu ljúki eftir vikutíma eða þar um bil.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
16.9.2003: Njarðvíkingar brúa Jökulsá í Fljótsdal |
Brúarsmíði yfir Jökulsá í Fljótsdal neðan við Eyjabakkafoss er í fullum gangi og á verkinu að ljúka um miðjan nóvember nk. samkvæmt útboði.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.9.2003: Aðeins eftir að leggja slitlag á 12 km |
Lagning slitlags á Fljótdalsheiðar- og Kárahnjúkaveg gengur vel og fyrir helgina voru einungis um 12 km ,,óklæddir”, 8,5 km á heiðinni og 3,5 km í fjallinu. |
| Lesa meira >>
|
|
|
10.9.2003: Jarðgöngin lengdust samtals um 255 metra í viku 36 |
Alls höfðu verið boraðir og sprengdir um 1.870 metrar í fernum jarðgöngum á Kárahnjúkasvæðinu núna um mánaðarmótin.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
9.9.2003: Skrifað undir samninga við Fosskraft JV |
Fulltrúar Landsvirkjunar og Fosskrafts JV undirrituðu í dag samning upp á um 8,3 milljarða króna um gerð stöðvarhússhvelfingar Kárahnjúkarvirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
5.9.2003: Iðnaðarnefnd Alþingis á Kárahnjúkasvæðinu |
Iðnaðarnefnd Alþingis kynnti sér framkvæmdir á Kárahnjúkasvæðinu í gær í fylgd Sigurðar St. Arnalds, almannatengslafulltrúa Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
3.9.2003: Hjáveitugöng 1 lengdust um 127 metra á einni viku |
Alls höfðu verið boraðir og sprengdir 1.644 metrar í fernum jarðgöngum á Kárahnjúkasvæðinu núna um mánaðarmótin. |
| Lesa meira >>
|
|
|
30.8.2003: Slitlag komið á 36 km á Fljótsdalsheiðarvegi |
Starfsmenn Malarvinnslunnar á Egilsstöðum (undirverktakar Héraðsverks) höfðu fyrir helgina lagt slitlag á 36 kílómetra af alls 59 km á Fljótsdalsheiðarvegi.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.8.2003: Heildarkostnaður Kárahnjúkavirkjunar 107 milljarðar króna |
Áætlað er að Kárahnjúkavirkjun kosti tæplega 107 milljarða króna með virðisaukaskatti, 85,5 milljarða króna án vsk. Við þá uppbæð bætast svo tæplega 11 milljarðar króna vegna flutningsvirkja. |
| Lesa meira >>
|
|
|
28.8.2003: Samningur um brunavarnakerfi í vinnubúðum Impregilo |
Öryggismiðstöð Íslands hefur samið við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo um uppsetningu, þjónustu og vöktun á fullkomnu brunaviðvörunarkerfi í vinnubúðum Ítalanna við Kárahnjúka. |
| Lesa meira >>
|
|
|
25.8.2003: Verktakar valdir fljótlega vegna véla og rafbúnaðar og stálfóðrunar ganga |
Landsvirkjun ákveður í fyrri hluta septembermánaðar við hvaða verktaka samningaviðræður verða upp teknar vegna tveggja verkþátta Kárahnjúkavirkjunar, þ.e. véla og rafbúnaðar (KAR-30) og stálfóðrunar fallganga (KAR-36). |
| Lesa meira >>
|
|
|
22.8.2003: Aðgöngin á Teigsbjargi orðin yfir hálfur kílómetri að lengd |
Unnið er í fernum jarðgöngum í einu á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúkahnjúka og í september bætast fimmtu göngin við á verkefnaskrána. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.8.2003: Líkan af borvél í Végarði |
Gestir í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal geta nú virt fyrir sér líkan af risaborvél af þeirri gerð sem notuð verður við jarðgangagerð Kárahnjúkavirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
17.8.2003: Góður gangur við slitlagsverkið |
Starfsmenn Malarvinnslunnar hf. á Egilsstöðum voru fyrir helgi búnir að leggja klæðingu á Fljótsdalsheiðarveg inn fyrir Axarármunnaveg (aðgöng 1) úr efstu beygju í Bessastaðafjalli.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.8.2003: 650 starfsmenn á virkjunarsvæðinu |
Starfsmenn á launaskrá verktaka á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka eru alls um 650 talsins um þessar mundir, helmingurinn íslenskir en hinir af ýmsum þjóðernum.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
15.8.2003: Svefnrými fyrir 800 manns í búðum Impregilo fyrir lok september |
Verktakafyrirtækið Impregilo afhenti Landsvirkjun í dag nýja og nákvæmlega tímasetta aðgerðaáætlun um uppbyggingu vinnubúða á framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar. Samkvæmt henni verða komin svefnrými fyrir um 800 manns þar eystra í lok september. |
| Lesa meira >>
|
|
|
13.8.2003: Landsvirkjunarforstjórinn með stjórnarheimild til samninga |
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur fengið heimild stjórnar fyrirtækisins til að undirrita samninga vegna byggingar stöðvarhúss Kárahnjúkavirkjunar, KAR-15, og eftirlits með þeim framkvæmdum, KAR-66.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
12.8.2003: Tilboð í endurbyggingu Végarðs |
Eitt tilboð barst í viðbyggingu og endurbætur félagsheimilisins Végarðs í Fljótsdal þar sem er aðsetur Fljótsdalshrepps og upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
6.8.2003: Vinnuvélar í hlíðum Fremri-Kárahnjúks |
Þeir eru hreint ekki lofthræddir starfsmennirnir sem vinna við það í hlíðum Fremri-Kárahnjúks að hreinsa jarðveg af klöppum til undirbúnings Kárahnjúkastíflu.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
31.7.2003: Alcoamenn í heimsókn hjá gljúfurbúum |
Nokkrir yfirmenn Alcoa voru á ferð á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka á dögunum með Kelson, fjármálaforstjóra fyrirtækisins, í broddi fylkingar.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
30.7.2003: Útsýni og upplýsingaskilti á Sandfelli |
Ferðafólk við Kárahnjúka á kost á að horfa yfir hluta virkjunarsvæðisins á fyrirtaks útsýnisstað sem Landsvirkjun hefur látið útbúa á Sandfelli.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
29.7.2003: Göngin samtals orðin nær 800 metrar |
Gerð jarðganga á virkjunarsvæðinu gengur samkvæmt áætlun. Unnið er samtímis í tvennum hjáveitugöngum í stæði Kárahnjúkastíflu og í aðkomugöngum nr. 1 á Teigsbjargi á Fljótsdalsheiði. Um helgina höfðu bormenn lokið við að bora og sprengja alls 730 metra í göngunum eystra: |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.7.2003: Lögheimili í fjórum nýjum ,,þorpum” á Austurlandi |
Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo hefur fengið samþykki Þjóðskrár fyrir því að starfsmenn í vinnubúðum á Austurlandi verði skráðir með lögheimili þar, þ.e.a.s. þeir sem dvelja í hálft ár eða lengur. |
| Lesa meira >>
|
|
|
17.7.2003: 300 manns við störf á virkjunarsvæðinu |
Alls eru um 300 manns við vinnu á virkjunarsvæðinu norðan Vatnajökuls um þessar mundir á vegum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo og undirverktaka þess, einkum Arnarfells, Eyktar og Héraðsverks. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.7.2003: Risastór vinnutæki á land á Eskifirði vegna Kárahnjúkavirkjunar |
| Stærstu vinnutæki sinnar tegundar á Íslandi voru sett í land á Eskifirði í gær og verða notuð við framkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
15.7.2003: Á annað þúsund gesta í Végarði |
Yfir þúsund gestir hafa lagt leið sína í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal frá því hún var opnuð 28. júní sl. Um 130 manns mættu fyrsta daginn og síðan þá hefur verið stöðugur straumur fólks. |
| Lesa meira >>
|
|
|
14.7.2003: Hafist handa við stærsta samfellda slitlagsverkefnið á landinu |
Starfsmenn Malarvinnslunnar hf. á Egilsstöðum byrjuðu fyrir helgi að leggja klæðingu á Fljótsdalsheiðar- og Kárahnjúkaveg. Þetta er langstærsta verkefni sinnar tegurndar hér á landi, þ.e. aldrei hefur verið lagt slitlag á svo langan, samfelldan vegarkafla.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
10.7.2003: Héraðsverk með mörg járn í eldinum |
Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum hefst í næstu viku handa við að leggja nýjan veg frá Vaþjófsstað að væntanlegu stöðvarhúsi í Fljótsdal, 1,7 km. Þessu verki lýkur í sumar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
7.7.2003: Deiliskipulag vinnubúða við Kárahnjúka auglýst |
Sveitarstjóri Norður-Héraðs hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi vinnubúða við Kárahnjúka í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. |
| Lesa meira >>
|
|
|
6.7.2003: Unnið í þrennum jarðgöngum samtímis á virkjunarsvæðinu |
Starfsmenn verktakafyrirtækjanna Impregilo og Arnarfells vinna við gerð þrennra jarðganga samtímis á virkjunarstæðinu norðan Vatnajökuls, tvennum göngum við Fremri-Kárahnjúk og einum á Fljótsdalsheiði. Alls starfa um 200 manns þar eystra um þessar mundir. |
| Lesa meira >>
|
|
|
1.7.2003: Nýtt kort með ferðaleiðum á öræfum umhverfis Snæfell |
Landsvirkjun hefur gefið út kort með ferðaleiðum umhverfis Snæfell. Markmið með útgáfunni er að greiða leið ferðafólks um svæðið norðan Vatnajökuls og sýna um leið nánasta framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar. |
| Lesa meira >>
|
|
|
1.7.2003: Sýning um Kárahnjúkavirkjun í Végarði |
Landsvirkjun hefur opnað sýningu um Kárahnjúkavirkjun fyrir almenning í Végarði í Fljótsdal og tók þar með í notkun gestastofu fyrirtækisins í félagsheimili Fljótsdælinga.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |