Veftré    
Fara á forsíðu
 Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir
2008 desember-október
2008 september-júlí
2008 júní - apríl
2008 mars-janúar
2007 desember-október
2007 september-júlí
2007 júní-apríl
2007 mars-janúar
2006 desember-október
2006 september-júlí
2006 júní-apríl
2006 mars-janúar
2005 des.-október
2005 september-júlí
2005 júní-apríl
2005 mars-janúar
2004 des.-október
2004 sept.-júlí
2004 júní-apríl
2004 mars-janúar
2003 okt.-des.
2003 júlí-sept.
2003 apríl-júní
2003 janúar-mars
2002 allt árið
2001 allt árið
2000 allt árið
Greinar
Framkvæmdafréttir Landsvirkjunar
Gangsetning 30. nóvember 2007

 2003 janúar-mars

30.3.2003: Engin áhrif virkjunaráforma í breskri ferðaþjónustu

Stephen A. Brown, nýráðinn svæðisstjóri Flugleiða í Bretlandi og á Írlandi, verður ekki var neinna áhrifa af virkjunaráformum á Íslandi á ferðamarkaði þar ytra og telur að breskir ferðamenn muni ekki „gera sér grillu út af þessu“.

Lesa meira >>
 

24.3.2003: „Þurfum að komast úr úrskurðarfarvegi í samráðsferli“

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að helst megi líkja undirbúningi framkvæmda á borð við Kárahnjúkavirkjun við „málflutning í dómsmáli“. Nauðsynlegt sé breyta lögum um mat á umhverfisáhrifum „til að komast úr úrskurðarfarvegi í samráðsferli.“

Lesa meira >>
 

19.3.2003: Þrívíddarmyndir af Kárahnjúkastíflu

Stöð tvö sýndi á dögunum þrívíddarmyndir af Kárahnjúkastíflu sem vöktu verðskuldaða athygli. Myndirnar gerði Þorsteinn Jóhannesson fyrir Landsvirkjun.

Lesa meira >>
 

18.3.2003: Samningar við Impregilo undirritaðir
Gianni Porta, verkefnisstjóri Impregilo og Friðrik Sophusson skrifa undir.

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar og Gianni Porta, verkefnisstjóri Impregilo, undirrituðu í dag samninga um byggingu Kárahnjúkavirkjunar og aðrennslisganga virkjunarinnar.

Lesa meira >>
 

16.3.2003: Þjóðhátíðarstemmning á Reyðarfirði

Sannkölluð þjóðhátíðarstemmning var ríkjandi í íþróttahúsinu á Reyðarfirði á laugardaginn, 15. mars, þegar skrifað var undir samninga um stóriðju á Austurlandi.

Lesa meira >>
 

6.3.2003: Bormenn hafa sprengt 450 metra í aðkomugöngunum

Karl Þráinsson, framkvæmdastjóri jarðvinnusviðs ÍAVStarfsmenn Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) hafa sprengt nær 450 metra af alls 720 metra löngum aðkomugöngum við Fremri-Kárahnjúk.

Lesa meira >>
 

6.3.2003: Óskað eftir tilboðum sjö umsækjenda vegna Kárahnjúkakvikmyndar
Nefnd á vegum Landsvirkjunar hefur óskað eftir því við sjö umsækjendur um kvikmyndagerð vegna Kárahnjúkavirkjunar að gera nánari grein fyrir hugmyndum sínum.
Lesa meira >>
 

5.3.2003: Lög um álver við Reyðarfjörð samþykkt á Alþingi
Alþingi lögfesti í dag frumvarp um heimild til iðnaðarráðherra til að semja um byggingu og rekstur álvers við Reyðarfjörð.
Lesa meira >>
 

1.3.2003: Andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar reyna að hindra fjármögnun verkefnisins

Alþjóðleg umhverfisverndarsamtök reyna að koma í veg fyrir að alþjóðlegar fjármálastofnanir láni fjármuni til framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag, 1. mars.

Lesa meira >>
 

27.2.2003: Jökla stíflaðist og ,,lón“ myndaðist

Gljúfrin þornuðu neðan ,,stíflunnar"Jökulsá á Dal stíflaðist  þegar bergfylla hrundi niður í botn Hafrahvammagljúfurs í gær. Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells voru að sprengja fyrir sneiðingi niður í gljúfrið í lónsstæði Kárahnjúkavirkjunar að opi fyrirhugaðra hjárennslisganga. 

Lesa meira >>
 

25.2.2003: Rykbindiefni ekki notað við Hálslón
Landsvirkjun ætlar ekki að nota rykbindiefni til að hefta sand- og leirfok við Hálslón og hefur aldrei ákveðið að beita slíkum mótvægisaðgerðum á lónssvæðinu, eins og skilja mátti í mynd Ómars Ragnarssonar í Sjónvarpinu sl. sunnudagskvöld (og í viðtalsbroti úr þeirri mynd sem sýnt var í Sjónvarpsfréttum sama kvöld).
Lesa meira >>
 

19.2.2003: Slys við Kárahnjúka

Starfsmaður við jarðgangagerðina við Kárahnjúka slasaðist um þrjúleytið síðastliðna nótt þegar grjót hrundi á hann úr um 4 metra hæð. 

Lesa meira >>
 

17.2.2003: Impregilo opnar skrifstofu á Íslandi

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem átti lægsta boð í gerð Kárahnjúkastíflu og jarðaganga, hefur nú opnað skrifstofu hér á landi til að sinna verkefninu.

Lesa meira >>
 

13.2.2003: Vrkjunarsvæðið á gervitunglamynd
Smelltu á myndina!Ljósmynd, sem tekin var í gervitungli til norðurs og austurs yfir Vatnajökli , sýnir glögglega hvernig landið liggur á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar.
Lesa meira >>
 

12.2.2003: Gat á hamravegg Hafrahvammagljúfurs
Smelltu á myndina!Bormenn við Kárahnjúka luku í morgun við að sprengja útskot úr aðkomugöngunum við Kárahnjúka og myndaðist þá gat ofan við á miðju á hamravegg gljúfursins.
Lesa meira >>
 

11.2.2003: Efnahagslegur stöðugleiki mögulegur þrátt fyrir stóriðjuframkvæmdir
Seðlabanki Íslands telur unnt að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og halda verðbólgu nálægt markmiði bankans þótt ráðist verði í Kárahnjúkavirkjun og byggingu álvers við Reyðarfjörð.
Lesa meira >>
 

7.2.2003: Samningar við Impregilo í sjónmáli
Í dag verður lögð fyrir stjórn Landsvirkjunar tillaga um að samþykkja samning við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo um gerð stíflu og aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar.
Lesa meira >>
 

7.2.2003: Landsvirkjun samþykkir samninga við Impregilo
Stjórn Landsvirkjunar samþykkti í dag heimild til handa forstjóra Landsvirkjunar að gefa út svokallað veitingabréf fyrir ítalska verktakafyrirtækið Impregilo vegna byggingar Kárahnjúkastíflu og aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar.
Lesa meira >>
 

3.2.2003: Framkvæmdaleyfi við Kárahnjúka í höfn

Afhenda framkvæmdaleyfi fyrir Kárahnjúka

Oddvitar Norður-Héraðs og Fljótdalshrepps afhentu stjórnendum Landsvirkjunar í gærkvöld formlegt framkvæmdaleyfi vegna Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira >>
 

31.1.2003: Heimildarmynd um Kárahnjúkavirkjun

Landsvirkjun óskar eftir kvikmyndagerðarmanni eða fyrirtæki til að gera mynd um byggingu Kárahnjúkavirkjunar þar sem sjálfstæð og skapandi efnistök yrðu í fyrirrúmi og litið yrði til framkvæmdarinnar í víðu samhengi.

Lesa meira >>
Blaðaauglýsing um heimildarmyndina
 

31.1.2003: Aurburður á fáeinum dögum í Skeiðarárhlaupi álíka og á heilu ári í Hálslón
Gera má ráð fyrir að aurburður í Skeiðarárhlaupinu 1996 hafi á fáeinum dögum verið álíka og kemur til með að berast inn í væntanlegt Hálslón Kárahnjúkavirkjunar á 100 árum.
Lesa meira >>
Grein Björns Jóhanns í heild sinni
 

31.1.2003: Göngin orðin 210 metra löng
Aðkomugöng á vesturbakka Jökulsárs á Dal eru orðin 210 metra löng. Göngin verða alls um 720 metrar og áætlað er að þau verði tilbúin í apríl nk.
Lesa meira >>
 

25.1.2003: Ein hagkvæmasta virkjunin í ljósi orkukostnaðar
Kárahnjúkavirkjun var metin í svokallaðri rammaáætlun meðal alhagkvæmustu kostanna með tilliti til orkukostnaðar en umhverfisáhrif virkjunarinnar voru talin í hærri kantinum meðal þeirra 15 virkjunarkosta sem kannaðir voru.
Lesa meira >>
 

25.1.2003: 3.200 ársverk í Kárahnjúkavirkjun

Landsvirkjun gerir ráð fyrir að bjóða út verk fyrir 22-24 milljarða króna vegna Kárahnjúkavirkjunar á árinu 2003. Þar af eru byggingarframkvæmdir fyrir 7-8 milljarða króna og véla- og rafbúnaður fyrir 15-16 milljarða króna.

Lesa meira >>
 

17.1.2003: Flóknar viðræður, engir fyrirvarar

Viðræður Landsvirkjunar og ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo Spa. um verksamninga á Austurlandi eru í fullum gangi og stefnt að því að leiða þær til lykta á næstu vikum.

Lesa meira >>
 

17.1.2003: Fullyrðingar Breska fuglaverndarfélagsins standast ekki

Umhverfisráðuneytið segir að ekki standist sú fullyrðing Lloyd Austin, framkvæmdastjóra Konunglega breska fuglaverndarfélagsins í Skotlandi, að Kárahnjúkavirkjun muni hafa áhrif á eina af hverjum 7 heiðagæsum sem koma til Skotlands standist ekki. Austin var hér á landi í vikunni og fjallaði í fjölmiðlaviðtölum um meint áhrif Kárahnjúkavirkjunar á heiðagæsina.

Lesa meira >>
 

17.1.2003: Reykjavíkurborg samþykkir að ábyrgjast lánin
Reykjavíkurborg ákvað í gær að ábyrgjast lán vegna Kárahnjúkavirkjunar. Málið hafði verið tekið fyrir í tvígang á vettvangi borgarráðs og fór síðan fyrir borgarstjórn þar sem meirihluti Reykjavíkurlistans klofnaði.
Lesa meira >>
 

13.1.2003: Tveir af hverjum þremur fylgjandi álveri og virkjun

64,4% þeirra, sem tóku afstöðu í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, lýsa sig fylgjandi Kárahnjúkavirkjun og álveri við Reyðarfjörð eða nær tveir af hverjum þremur. Meginlínurnar eru mjög svipaðar í fyrri könnunum um stóriðjuframkvæmdirnar eystra.

Lesa meira >>
 

10.1.2003: 5% hagvöxtur á Íslandi á árunum 2005 og 2006

Efnahagsskrifstofa fjármálaráðuneytisins telur að árlegur hagvöxtur á Íslandi geti orðið um 5% á árunum 2005 og 2006, þegar framkvæmdir vegna stóriðju á Austurlandi verða í hámarki og enn meiri ef Norðurál yrði stækkað á sama tíma.

Lesa meira >>
Greinargerð um þjóðlagsleg áhrif stóriðju
 

10.1.2003: Stjórn Alcoa samþykkir álver við Reyðarfjörð

Stjórn bandaríska álframleiðandans Alcoa samþykkti í dag að að ráðast í byggingu 322.000 tonna álvers við Reyðarfjörð. Álverið mun bera heitið Fjarðaál og er það hluti af einni umfangsmestu fjárfestingu sem ráðist hefur verið í á Íslandi.

Lesa meira >>
 

10.1.2003: Landsvirkjun samþykkir samning við Alcoa

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á fundi sínum í dag rafmagnssamning Landsvirkjunar og Fjarðaáls sf. (Alcoa).  Jafnframt fól stjórnin stjórnarformanni og forstjóra að undirrita sameiginlega rafmagnssamninginn.n  Stjórn Alcoa situr á fundi í Bandaríkjunum vegna sama máls og væntanlegar eru fréttir þaðan fyrir kvöldið.

Lesa meira >>
 

10.1.2003: Rangfærslum Náttúruverndarsamtaka Íslands svarað

Náttúruverndarsamtök Íslands halda því fram á heimasíðu sinni að misræmi sé í tölum Alcoa um orkunotkun álvers við Reyðarfjörð annars vegar á heimasíðu fyrirtækisins (um 13.000 KWst fyrir tonn af áli í álverum byggðum með nýjustu tækni) og hins vegar í skýrslu sem lögð var fyrir Skipulagsstofnun (14.600 KWst fyrir tonnið).

Lesa meira >>
 

7.1.2003: Heimildarfrumvarp vegna álversins lagt fram á Alþingi eftir helgi

Ríkisstjórn samþykkti í morgun tillögu Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um að leggja fyrir þingflokka stjórnarflokkanna og síðan Alþingi frumvarp til laga um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði. Frumvarpið verður lagt fram þriðjudaginn 21. janúar  þegar þing kemur saman að loknu jólaleyfi.

Lesa meira >>
 

7.1.2003: Yfirgnæfandi líkur á að Kárahnjúkavirkjun sé arðsöm

Arðsemismat Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar er vel rök stutt og faglega unnið. Yfirgnæfandi líkur eru á að að verkefnið sé arðbært. Þetta eru meginniðurstöður þriggja manna nefndar sem eigendur Landsvirkjunar skipuðu til að fjalla um arðsemi og fjárhagslega áhættu Kárahnjúkavirkjunar og sölu raforku til Fjarðaáls sf. (Alcoa).

Lesa meira >>
Greinargerðin í heild sinni
 

4.1.2003: Sannleiksást og sænskur gorgeir

Andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar freistast stundum til þess að fara nokkuð langt út af vegi sannleikans í málflutningi sínum eins og dæmin sanna hérlendis og erlendis. Svakalegt sýnishorn af þessu tagi má sjá í Gautaborgarpóstinum í Svíþjóð 29. desember sl.

Lesa meira >>
Gautaborgarpósturinn 29. 12. 2002
 

3.1.2003: Stefnt að því að undirrita samninga um næstu mánaðarmót

Samningar um orkukaup Alcoa af Landsvirkjun verða að óbreyttu undirritaðir í lok janúar eða í byrjun febrúar og hefur reyndar aldrei staðið til að gera það fyrr. Stjórnarformaður og forstjóri Landsvirkjunar ítrekuðu þetta í fjölmiðlaviðtölum í dag í tilefni ummæla borgarstjórans í Reykjavík.

Lesa meira >>
 

3.1.2003: Bormenn til starfa eftir þrettándann
Vinna við jarðgangagerðina við Kárahnjúka hefur legið niðri frá því fyrir jól en þráðurinn verður tekinn upp að nýju í næstu viku þegar bormenn snúa til baka úr leyfi um hátíðarnar.
Lesa meira >>