Jökulsá á Dal var stífluð við Fremri-Kárahnjúk og myndað miðlunarlón, Hálslón. Í Jökulsá í Fljótsdal verður myndað lítið lón með stíflu, Ufsarlón. Jarðgöng hafa verið boruð úr Hálslóni út á Teigsbjarg, ofan Fljótsdals. Á leiðinni tengjast þau öðrum göngum sem boruð verða úr Ufsarlóni. Vatnið fer um tvenn fallgöng að stöðvarhúsinu inni í fjallinu, rennur í gegnum sex aflvélar og áfram um göng og skurð út í farveg Jökulsár í Fljótsdal austur undan Valþjófsstað. Smellið á kortið til að stækka það!