Landsvirkjun leggur áherslu á að gætt sé öryggis og fylgst sé með heilsu starfsfólks við framkvæmdir á hennar vegum. Einnig að áhrif framkvæmdanna á umhverfið verði í lágmarki. Því skuli verktakar beita viðurkenndu stjórnunarkerfi fyrir öryggis- og umhverfismál við framkvæmdirnar og fylgja umhverfisstefnu Landsvirkjunar við virkjunarframkvæmdir.