Meginaðkoma að Kárahnjúkavirkjun verður eftir þjóðvegi inn með Lagarfljóti að austanverðu og á brú yfir leirur Jökulsár í Fljótsdal fyrir botni Fljótsins. Þar liggur leiðin annars vegar inn í Norðurdal að stöðvarhússsvæðinu og hins vegar upp með Bessastaðaá inn á Fljótsdalsheiði eftir Fljótsdalsheiðarvegi.