Veftré    
Fara á forsíðu
 Teikningar og myndir
Kárahnjúkavirkjun-yfirlitskort
Tölvugerðar ljósmyndir
Myndasafn
Afstöðu- og sniðmyndir
Hálslón
Ein hæsta stífla Evrópu
Gljúfur og göng
Þjóðgarður og útivist
Jökulsárveita


 Þjóðgarður og útivist

Bætt aðgengi ferðamanna að hálendinu

Vegir Landsvirkjunar hafa opnað hálendi Íslands fyrir ferðamönnum á undanförnum áratugum og er það stefna fyrirtækisins að efla útivistarmöguleika á virkjunarsvæðum og opna dyr orkuvera sinna fyrir ferðamönnum. Ferðamenn eru velkomnir á framkvæmdarsvæði Kárahnjúkavirkjunar enda sýnir reynslan að slíkt eykur skilning almennings á náttúrufegurð og dregur úr tortryggni gagnvart framkvæmdum. Til að bæta aðgengi ferðamanna hefur Landsvirkjun lagt Náttúruvernd ríkisins lið við landvörslu og haft forgöngu um vegabætur og fleira. Þá vill Landsvirkjun sætta sjónarmið virkjunarsinna og fylgismanna þjóðgarðs norðan Vatnajökuls enda gæti Kárahnjúkavirkjun orðið forsenda þess að gera hugmyndir um öflugan þjóðgarð að veruleika. Þannig gætu farið saman útivist, ferðamennska og skynsamleg nýting sjálfbærra orkulinda landsins.