Miðlunarlón Kárahnjúkavirkjunar, Hálslón, yrði um 57 ferkílómetrar eða álíka að stærð, dýpi og lögun og Lagarfljót þegar lónið er fullt. Þá yrði vatnsborðið 625 m.y.a. og þekkist ekki svo mikil sveifla í neinu lóni hérlendis.
Tölvuteiknaðar yfirlitsmyndir með mannvirkjum
Hér eru tölvuteikningar Landsvirkjunar af Hálslóni settar inn á ljósmyndir Hreins Magnússonar. Kárahnjúkastífla verður allt að 190 metra há og 730 metra löng. Fullt lón verður 57 ferkílómetrar að stærð og áætlað er að það þurfi 8,4 milljónir rúmmetra af fyllingarefni í stífluna.
Í meðalári yrði vatnsborð í júní að meðaltali 580 metrar yfir sjó en það gæti farið niður í 550 metra yfir sjó í slökustu vatnsbúskaparárum. Svo mikil sveifla vatnsborðs þekkist ekki í neinu miðlunarlóni hérlendis. Í fyrirhuguðu lónstæði var langt og mjótt stöðuvatn þegar jökla leysti eftir síðasta jökulskeið því Kárahnjúkamóbergshryggurinn stíflaði farveginn þegar gaus á svæðinu fyrir 10-100 þúsund árum. Stöðuvatnið er talið hafa náð 15-20 km inn með Jökulsá á Dal og í því mynduðust hinir sérstæðu sethjallar sem nú blasa við sunnan Fremri-Kárahnjúka. Ef af virkjunjarframkvæmdum verður munu þeir fara undir vatn í Hálslóni og varðveitast þar. Hafa sérstakar rannsóknir farið fram á sethjöllunum sem varpað hafa nýju ljósi á jarðsögu svæðisins. Ef af virkjun verður eru frekari rannsóknir fyrirhugaðar.