 |
|
 |
Noral-yfirlýsing 29. júní 1999 |
A. Inngangur Viðræður hafa staðið yfir um NORAL VERKEFNIÐ - vatnsorkuver á austurlandi og álver í Reyðarfirði - um allnokkurn tíma milli Viðskipta- og iðnaðarráðuneytis, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, Landsvirkjunar og Hydro Aluminium AS í Noregi. Fulltúar þessara aðila - sem mynda samráðsnefnd - komu saman á Hallormsstað dagana 28. - 29. júní til þess að fara yfir þann árangur sem náðst hefði í viðræðunum. Í þessari yfirlýsingu er að finna niðurstöður þeirrar yfirferðar að því er varðar þá viðskiptahugmynd sem býr að baki NORAL VERKEFNINU og tíma- og vinnuáætlun fyrir næstu ellefu mánuði, svo og fyrirætlanir og skuldbindingar aðila í þessu tilliti eins og þær eru á þessum tíma. Meginmarkmiðið er að þoka undirbúningsvinnunni áfram á næstu mánuðum að því marki að unnt verði að taka endanlega ákvörðun um að ráðast í verkefnið fyrir 1. júní árið 2000. |
| Lesa meira >>
|
|
|
Noral-yfirlýsing 24. maí 2000 |
A. INNGANGUR.
Noral verkefnið ("verkefnið") hefur verið í vinnslu um nokkurra ára skeið, og tók það á sig formlega mynd hinn 29. júní 1999 á Hallormsstað með sameiginlegri yfirlýsingu viðskipta- og iðnaðarráðuneytisins, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, Landsvirkjunar og Hydro Aluminium as í Noregi. Í yfirlýsingunni var lýst þeirri viðskiptahugmynd sem liggur að baki Noral verkefninu, en hún felur í sér álver, nauðsynlegar stoðveitur og raforkukerfi sem ætlað er að sjá álverinu fyrir rafmagni, svo og undirbúning lóðar, gerð hafnar og uppbyggingu nauðsynlegra stoðveitna.
Aðilar að Hallormsstaðaryfirlýsingunni, ásamt Reyðaráli hf (sem er sérstakt fyrirtæki í helmingaeigu Hæfis hf og Hydro Aluminium as) og Hæfi hf (sem er sérstakt fyrirtæki í eigu hóps íslenskra fjárfesta) hafa ákveðið að endurskoða umfang og tímaáætlun verkefnisins. Þessi nýja yfirlýsing er gefin út til þess að staðfesta áhuga og skuldbindingu allra aðila til að leggja mat á hagkvæmni verkefnisins og þann ásetning þeirra að komast að endanlegri niðurstöðu um það hvort ráðast skuli í verkefnið fyrir 1. febrúar 2002. |
| Lesa meira >>
|
|
|
Yfirlýsing frá Noral-hópnum 22. mars 2002. |
| Noral verkefnið um byggingu álvers á Austurlandi og tilheyrandi orkumannvirkja hefur gengið vel og í samræmi við markmið sem sett voru um að ljúka undirbúningsvinnu fyrir endanlega ákvörðun eigi síðar en 1. september 2002. Undirbúningsvinnan hefur rennt frekari stoðum undir trúverðugleika verkefnisins og niðurstöður hagkvæmniathugana eru uppörvandi. |
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |