 |
|
 |
Samningum lokið - yfirlýsing 13. desember 2002 |
Samninganefndir Alcoa, Landsvirkjunar, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, Fjarðabyggðar og hafnarsjóðs Fjarðabyggðar gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í lok samningafundar í Reykjavík í dag:
|
| Lesa meira >>
|
|
|
Yfirlýsing iðnaðarráðuneytis 19. júlí 2002 |
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, G. John Pizzey, aðstoðarforstjóri Alcoa Inc. og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu 19. júlí 2002 viljayfirlýsingu um framhald viðræðna um ,,mat og hugsanlega framkvæmd á stóriðjuverkefni sem tekur til byggingar álvers á Austurlandi.” |
| Lesa meira >>
|
|
|
Alcoa-yfirlýsing 19. júlí 2002 |
SAMEIGINLEG VILJAYFIRLÝSING milli RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS og LANDSVIRKJUNAR og ALCOA INC.
Í VILJAYFIRLÝSINGU þessari (Memorandum of Understanding, MOU), dagsettri 19. júlí 2002, eru sett fram grundvallaratriði milli ríkisstjórnar Íslands (ríkisstjórnarinnar), með skrifstofur að Arnarhváli, Lindargötu, 150 Reykjavík, en iðnaðar- og viðskiptaráðherra kemur fram fyrir hennar hönd, og Landsvirkjunar, sem er sjálfstætt fyrirtæki í eigu lýðveldisins Íslands, Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar, með skrifstofur að Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, og Alcoa Inc. (Alcoa), sem er hlutafélag stofnað í Pennsylvaníu, með póstfangið 201 Isabella Street, Pittsburgh, Pennsylvania, USA, varðandi mat og hugsanlega framkvæmd á stóriðjuverkefni sem tekur til byggingar álvers á Austurlandi. |
| Lesa meira >>
|
|
|
Alcoa-yfirlýsing 23. maí 2002 |
-áframhald könnunarviðræðna Fréttatilkynning
Fulltrúar Alcoa og Fjárfestingarstofunnar – orkusviðs hafa undirritað samkomulag um áframhald viðræðna um möguleika á byggingu álvers í Reyðarfirði.
Samkvæmt viðbótarsamkomulaginu er einnig til skoðunar að reisa 320.000 tonna álver í einum áfanga, sem yrði að fullu í eigu Alcoa. Orka kæmi frá virkjun við Kárahnjúka og veitu í Fljótsdal. Virkjunarframkvæmdir og rekstur orkumannvirkja verði í höndum Landsvirkjunar.
Alcoa mun áfram fara yfir matsskýrslur og úrskurði vegna umhverfisáhrifa álvers og orkumannvirkja til að tryggja að verkefnin standist umhverfisstefnu fyrirtækisins.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
Alcoa-yfirlýsing 19. apríl 2002 |
-samkomulag um könnunarviðræður  Fulltrúar Alcoa og Fjárfestingarstofunnar – orkusviðs, fyrir hönd iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins og Landsvirkjunar, undirrituðu í dag samkomulag um könnunarviðræður um möguleika á byggingu álvers í Reyðarfirði.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa samninginn á ensku: |
| Lesa meira >>
|
|
|
|
 |
|
 |