Veftré    
Fara á forsíðu
 Virkjunin
Kárahnjúkavirkjun í tölum
Skipurit Landsvirkjunar vegna framkvæmdanna
Framkvæmdaáætlun til 2008
Helstu verktaka- og ráðgjafarfyrirtæki
Virkjunin og álver Alcoa
Framkvæmdir 2002
Umhverfisstefna Landsvirkjunar og virkjunarframkvæmdir
Veðrið við Kárahnjúka
Störf á Kárahnjúkasvæðinu
Samkeppni grunnskólanema
Fljótsdalsstöð
Starfsmenn í Fljótsdalsstöð
Starfsleyfi Fljótsdalsstöðvar


 Virkjunin og álver Alcoa

Framkvæmdalýsing í stórum dráttum

Jökulsá á Dal stífluð við Fremri-Kárahnjúk

  • 193 metra há grjótstífla með steyptri klæðningu á vatnshliðinni við syðri enda Hafrahvammagljúfra.
  • Beggja vegna koma hliðarstíflur: Sauðárdalsstífla og Desjarárstífla.
  • Stíflurnar mynda Hálslón; vatnsborð í 625 metra hæð yfir sjó þegar það er fullt og flatarmál 57 ferkílómetrar.

Lesa meira >>
 

Flutningslínur

Tvær 420 kV háspennulínur, hvor um sig 53 kílómetra löng, flytja raforkuna úr Fljótsdal til álversins í Reyðarfirði. Línurnar liggja samhliða þvert fyrir Múlann, út Fljótsdal að austanverðu og upp á Víðivallaháls, Hallormsstaðaháls og austur í Skriðdal. Þar ,,skilja leiðir” línanna um sinn til að auka flutningsöryggi. Önnur verður lögð um Hallsteinsdal en hin um Þórudal en þær koma saman í Áreyjardal í Reyðarfirði, þvera botn fjarðarins og liggja ofan þorpsins að álverinu á Hrauni.

 

Álver Alcoa hefur áhrif á virkjunarframkvæmdir

Áform um orkuöflun vegna stóriðju á Austurlandi breyttust nokkuð við það að samningar tókust við bandaríska fyrirtækið Alcoa um að reisa álver í Reyðarfirði. Ástæðan er sú að álver Alcoa verður minna en Reyðarál (í eigu Norsk Hydro og íslenskra fjárfesta) hugðist reisa: 295 þúsund tonna ársframleiðsla í stað 360-420 þúsund tonn. Kárahnjúkavirkjun mun því anna orkuþörf Alcoa-versins.  Ef álver Reyðaráls hefði hins vegar risið í fullri stærð hefði Kárahnjúkavirkjun ekki annað orkuþörf þess og þurft hefði að sækja viðbótarorku í Kröflu og Bjarnarflag.

Lesa meira >>
 

Framkvæmdatími

Alþingi samþykkti heimildarlög um Kárahnjúkavirkjun með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða snemma árs 2002 og iðnaðarráðherra gaf út virkjunarleyfi í september sama ára. Undirbúningur virkjunar hófst síðla árs 2002 með lagningu vega og fleiri framkvæmdum á svæðinu. Sveitarstjórnir Norður-Héraðs og Fljótsdalshrepps gáfu út framkvæmdaleyfi í febrúar 2003.  Sjálfar virkjunarframkvæmdirnar hófust svo fljótlega eftir að undirritaðir höfðu verið orkusölusamningar íslenska ríkisins, Alcoa, Landsvirkjunar og Fjarðabyggðar á Reyðarfirði 15. mars 2003.

Gert er ráð fyrir að byrjað verði að safna vatni í Hálslón í september 2006 og að Kárahnjúkavirkjun fari að framleiða orku fyrir álver Alcoa á Reyðarfirði í apríl 2007. Veitur af Múla og Hraunum verða síðustu þættir virkjunarframkvæmdanna og ætlunin er að ljúka þeim í apríl 2009.