| Laugardagur 23. júní 2007 |

|
Fljótsdalsstöð Teigshúsum, 701 Egilsstaðir
Sími: 470 2500 Fax: 470 2510
Stöðvarstjóri:
Georg Þór Pálsson
Starfsmenn Fljótsdalsstöðvar eru alls 11: stöðvarstjóri, viðhaldsstjóri og níu stöðvarverðir. Þeir ganga vaktir allan sólarhringinn, árið um kring, sinna viðhaldi og eftirliti með rafbúnaði og grípa inn í atburðarásina ef eitthvað bregður út af í samvinnu við stjórnstöð Landsnets í Reykjavík.

Stöðvarhúsið er jafnan lokað almenningi. Boðið verður samt upp á skoðunarferðir í hópum með leiðsögumanni tvisvar til þrisvar á dag á sumrin. Áhugamenn um slíkt hafi samband við umsjónarmenn upplýsingamiðstöðvar Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal.

Framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar er sömuleiðis lokað almenningi. Ferðafólki er vísað í Végarð eða á útsýnisstaði í Fljótsdal (gegnt stöðvarhúsinu), í Norðurdal, sunnan við Fremri-Kárahnjúk og við Laugarfell. Ef aðstæður leyfa er reynt að fara með „sérstaka“ gesti/hópa á afmarka staði á vinnusvæðunum.

Gestastofa Fljótsdalsstöðvar/Kárahnjúkavirkjunar er í Végarði í Fljótsdal.
Orkuvinnsla í Fljótsdalsstöð hófst 2. apríl 2007 og þann dag fóru starfsmenn Landsvirkjunar sömuleiðis að hafa fasta viðveru allan sólarhringinn í Fljótsdal. Þetta telst með öðrum orðum vera eiginlegt upphaf starfsemi í stöðinni og fyrir lá þá þegar formlegt starfsleyfi frá Heilbrigðisnefnd Austurlands, gefið út 27. mars 2007.
|