Jökulsár- og Hraunaveitur eru síđari hluti framkvćmda viđ Kárahnjúkavirkjun og gert ráđ fyrir ađ ljúka ţeim á árinu 2009. Ćtla má ađ vatn af ţessu svćđi austan Snćfells nýtist til ađ framleiđa ađ jafnađi um fjórđung raforku frá Fljótsdalsstöđ.
Jökulsár- og Hraunaveitur sjá stöđinni einkum fyrir vatni fyrri hluta sumars, á međan safnađ er vetrarforđa í Hálslón, en gert er jafnframt ráđ fyrir ađ veiturnar komi sér vel í hlýindaköflum á veturna og til ađ bćta vatnsbúskap Kárahnjúkavirkjunar ţau árin ţegar kalt er í veđri og yfirleitt lítiđ vatn í ám.
Veiturnar austan Snćfells eru nauđsynlegar til ađ tryggja rekstraröryggi Fljótsdalsstöđvar hvernig svo sem viđrar til vatnsbúskapar á hálendinu.
Meginţćttir Jökulsár- og Hraunaveitna eru lón og göng til ađ beina vatni úr Jökulsá í Fljótsdal, Kelduá, Grjótá, og Innri-Sauđá inn í stóru ađrennslisgöngin á milli Hálslóns og Fljótsdalsstöđvar. Ţar er helst ađ nefna
Ufsarlón, eins ferkílómetra inntakslón sem varđ til međ ţví ađ stífla Jökulsá í Fljótsdal um 2 km neđan viđ Eyjabakkafoss, og 13,5 km löng göng sem tengja lóniđ viđ stóru ađrennslisgöngin. Ţegar Ufsarlón er fullt er vatnsborđ ţess í 625 hćđ yfir sjávarmáli, nákvćmlega jafnhátt og vatnsborđ Hálslóns.
Kelduárlón, átta ferkílómetra miđlunarlón sem verđur til međ ţví ađ stífla Kelduá og 1.8 km göng milli Kelduárlóns og Ufsarlóns.
Grjótárlón og tćplega 1.7 km göng milli Grjótárlóns og Kelduárlóns.
Innri-Sauđárlón og veituskurđir milli Sauđárvatns og Innri-Sauđár og milli Innri-Sauđár og Grjótár.
Yfirlitskort. Hringur dreginn um Jökulsár- og Hraunaveitur. Hálslón til vinstri og Lagarfljót efst til hćgri á myndinni. Bláa punktalínan táknar ađrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar.