 |
|
 |
 |
Fljótsdalslínur 3 & 4
|  |
| Miðvikudagur 9. júní 2004 |

|
Raforka frá Kárahnjúkavirkjun verður flutt að álveri Fjarðaáls við Reyðarfjörð með tveimur línum, Fljótsdalslínum 3 og 4, sem byggðar eru fyrir 420 kV (kílóvolt) en verða reknar á 220 kV. Þær verða lagðar samsíða að mestu um þrjú sveitarfélög: Fljótsdalshrepp, Austur-Hérað og Fjarðabyggð.
- Fljótsdalslína 3 verður 49,5 km löng með 159 möstrum, Fljótsdalslína 4 verður 53 km löng með 166 möstrum. Hæð mastra verður á bilinu 20-37 metrar með 26 metra langri þverslá.
- Jarðvinna og undirbúningur á vettvangi hefst sumarið 2004 en framkvæmdir verða aðallega 2005 og 2006.
- Loftmynd af öllu áhrifasvæði framkvæmdanna er hér.
- Loftmynd af línuleið um Fljótsdal er hér.
- Loftmynd af línuleið um Austur-Hérað er hér.
- Loftmynd af línuleið um Fjarðabyggð er hér.
- Starfsmenn við línulagnir verða um 90 þegar framkvæmdir standa sem hæst.
- Framkvæmdakostnaður við sjálfar línulagnirnar er áætlaður um 4,4 milljarðar króna á verðlagi í byrjun árs 2004. Þar við bætast um 3 milljarðar króna vegna tengivirkis í Fljótsdal og 1,2 milljarðar vegna tengingar við byggðalínur og styrkingu á hinu almenna raforkuflutningskerfi á Austurlandi. Flutningsvirki vegna Fjarðaáls koma þar með til með að kosta alls tæpa 9 milljarða króna.
- Framkvæmdirnar eru á vegum Landsnets.
- Skipulagsstofnun samþykkti mat á umhverfisáhrifum fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4 með fimm skilyrðum. Úrskurður hans var kærður til umhverfisráðherra sem staðfesti úrskurðinn með einu viðbótarskilyrði. Verkefnið hefur verið hannað og undirbúið í samræmi við þessi skilyrði ráðherra.
- Sérstakt svæðisskipulag fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4 var staðfest af umhverfisráðherra 2001.
Línurnar í máli og myndum
(Númer í svigum vísa til tilheyrandi mynda neðar í skjalinu!)
Fljótsdalslínur 3 og 4 liggja samsíða frá tengivirki í Norðurdal (1) innan Valþjófsstaðar í Fljótsdal, til austurs ofan við bæinn Langhús (2) að Kelduá. Þaðan til norðausturs um hólmana neðan Víðivalla (3) og áfram á ská og upp Víðivallaháls (4 og 5) norður fyrir Brandsöxl. Þar er sveigt austur yfir hálsinn og yfir Gilsárgljúfur að Kröflulínu 2 sunnan Skjögrastaða.
Fljótsdalslínur 3 og 4 liggja samsíða - og samsíða Kröflulínu 2 (6) - áfram frá Gilsá upp Hallormsstaðarháls (7) að horni við Geirólfsstaðabungu. Síðan kemur sveigur á línuleiðina og hún liggur þvert yfir Skriðdal að aðveitustöð við Hryggstekk (8). Hér skiljast leiðir í öryggisskyni (9).
- Fljótsdalslína 3 liggur upp Hallsteinsdal (10) og yfir Hallsteinsvarp (11) til Reyðarfjarðar.
- Fljótsdalslína 4 liggur fyrst til suðurs (10), samsíða Teigarhornslínu 1 að horni á móts við Arnhólsstaði. Þar er beygt til austurs inn Þórudal (12), upp Brúðardal og yfir Þórdalsheiði til Reyðarfjarðar.
Fljótsdalslínur 3 og 4 koma báðar niður í botni Áreyjadals (13) og liggja samsíða niður dalinn (14) og áfram á láglendinu (15) sunnan Sléttuár austur fyrir Stuðlaá. Þar kemur sveigja á línuleiðina til norðausturs og upp hlíðina ofan við Seljateigshjáleigu og Seljateig (16). Línurnar liggja áfram til austnorðvesturs og austurs (17), ofan við raflínu milli Stuðla og Eskifjarðar, og út fyrir Teigargerði. Fljótsdalslínurnar fara þar yfir Eskifjarðarlínuna og enda í tengivirki álversins (18) neðan þjóðvegar við Hraun. Smellið á myndirnar til að stækka þær!
 |
 |
| Væntanlegt tengivirki í Norðurdal. |
Langhús til vinstri, gegnt tengivirkinu. |
 |
 |
| Horft yfir hólmana neðan Víðivalla. |
Upp Víðivallaháls. |
 |
 |
| Upp Víðivallaháls. |
Upp Víðivallaháls. |
 |
 |
| Hallormsstaðarháls. |
Hallormsstaðarháls. |
 |
 |
| Aðveitustöð við Hryggstekk. |
Í Skriðdal. |
 |
 |
| Leiðir línanna skiljast við Hryggstekk. |
Niður Hallsteinsdal. |
 |
 |
| Hallsteinsvarp. |
Í Þórudal. |
 |
 |
| Horft inn í botn Áreyjadals. |
Áreyjadalur. |
 |
 |
| Láglendi sunnan Sléttuár. Horft út Reyðarfjörð. |
Línuleiðin ofan Seljateigs og Seljateigshjáleigu. |
 |
 |
| Línuleiðin ofan bæjarins við Reyðarfjörð. |
Við Reyðarfjörð. |
 |
|
| Álverið í landi Hrauns: áfangastaður raforkunnar! |
|
|
|
 |