| Ţriđjudagur 16. desember 2008 |

|
Grjótár- og Kelduárlón Hraunaveitna eru ađ myndast hćgt og sígandi ţessa dagana; hiđ síđarnefnda verđur um 7,5 ferkílómetrar ţegar ţađ er fullt og miđlunarrýmiđ um 60 gígalítrar. Sambćrilegar tölur fyrir Hálslón eru 57 ferkílómetrar og 2.100 gígalítrar.
Ţá eru öll veitumannvirki Jökulsár- og Hraunaveitu komin í gagniđ og um leiđ öll veitumannvirki Kárahnjúkavirkjunar, ţar sem fyrst skal nefna til sögu sex stíflur og 54 kílómetrar af sprengdum og heilboruđum ađrennslisgöngum. Til viđbótar koma ađgöng og vinnugöng eđa alls um 72 kílómetrar sem voru grafnir og borađir vegna virkjunarinnar.
Ístak hf. hefur lokiđ vinnu viđ Hraunaveitur og er fariđ međ mannskap sinn af vettvangi. Fjórir starfsmenn á vegum Landsvirkjunar eru ţar áfram viđ gćslustörf og sinna jafnframt skilum á verkbúi.
Grjótárbotnrás var lokađ 8. desember og ţá er miđađ viđ ađ Grjótárstífla og Kelduárstífla hafa veriđ teknar í notkun.
Öll ađrennslisgöng og tvenn veitugöng á Hraunaveitusvćđi (Kelduárgöng og Grjótárgöng) eru komin í fulla notkun ásamt tilheyrandi lokubúnađi. Áđur höfđu Jökulsárgöng veriđ tekin í notkun, 16. október.
Ufsarlón hefur stađiđ fullt frá ţví 16. september. Ţađ fór ađ myndast eftir ađ lokum var rennt fyrir botnrás Ufsarstíflu 11. september viđ athöfn á vettvangi.
Ekki náđist ađ ljúka öllum verkum á svćđi Jökulsár- og Hraunaveitu áđur en vetrargaddurinn tók völd á hálendinu og verđur ţráđur tekinn upp ađ nýju međ vorinu til frágangsvinnu og tiltektar. Međal annars stendur út af ađ setja síđustu rúmmetra fyllingarefnis í Kelduárstíflu og ljúka viđ ölduvörn ţar, ganga frá stífluendum og stíflutoppi.
Dćmi um önnur verkefni nćsta sumars eru frágangur viđ rafmagnsbúnađ viđ inntak Jökulsárganga og Ufsarstíflu, smávćgileg steypuvnna í yfirfalli Grjótárstíflu, uppsetning handriđa og öryggiskeđja viđ inntak Kelduárganga, bílastćđi viđ inntak Jökulsárganga og fleira.
|
Verkţáttur - 2008 |
Framgangur, árslok 2008 |
Frá upphafi |
% |
Heildarumfang |
|
KAR 24 Grjótárgöng |
Gangagerđ lokiđ |
1.665 m |
100 |
1.665 |
|
KAR 22 Ufsarstífla |
Fyllingarvinnu lokiđ |
530.000 m3 |
100 |
530.000 m3 |
|
KAR 23 Kelduárstífla |
500 m3 |
710.000 m3 |
99 |
714.500 m3 |
|