| Mánudagur 24. nóvember 2008 |

|
Samtekt búnaðar og tiltekt af ýmsu tagi setti svip á síðastliðna vinnuviku á svæði Jökulsár- og Hraunaveitna. Gert er ráð fyrir að ljúka störfum þarna um mánaðarmótin og ljúka því sem út af stendur sumarið 2009. Unnið var í vikunni við rafmagnsbúnað við inntak Jökulsárganga, Ufsarstíflu og úttak Kelduárganga.
Í Kelduárstíflu voru fluttir um þúsund rúmmetrar efnis í lok vikunnar stóð einungis út af að ná stíflukrónu og ölduvörn upp í rétta hæð á fáeinum stöðum.
Í Grjótárstíflu bættist við fyllingarefni og framkvæmdum við hana er sem næst lokið. Síðustu steypufærur ársins voru við bílastæði og vegg við austurenda yfirfallsins.
Mót voru fjarlægð, búnaður fjarlægður og tekil til við Kelduyfirfall. Lítilsháttar vinna þar bíður næsta árs.
Samtals voru um 80 starfsmenn á vegum verktakans Ístaks á svæðinu í vikunni og þeir hafa meðal annars unnið að því að flytja tæki og búnað af svæðinu og niður á Hvammseyri.
|
Verkþáttur - 2008 |
Framgangur, 47. vika |
Frá upphafi |
% |
Heildarumfang |
|
KAR 24 Grjótárgöng |
Gangagerð lokið |
1.665 m |
100 |
1.665 |
|
KAR 22 Ufsarstífla |
Fyllingarvinnu lokið |
530.000 m3 |
100 |
530.000 m3 |
|
KAR 23 Kelduárstífla |
3.000 m3 |
709.000 m3 |
99,6 |
712.000 m3 |
|
|
|
Kelduárstífla, fylling við stoðvegg og á myndinni til hægri er horf vestur eftir stíflunni. |
|