Veftré    
Fara á forsíðu
 
Forsíða
Veftré
Leit

 Tengdar greinar
26.8.2008: Sumarvinnukrakkarnir sestir á skólabekk
25.8.2008: Jökulsárgöng að verða tilbúin
21.8.2008: Jökulsárgöng safna nú þegar vatni að hluta
20.8.2008: Leiðin um stíflurnar lokuð með öllu næstu 10 daga
18.8.2008: Kárahnjúkafoss
16.8.2008: Hálslón orðið fullt
13.8.2008: Fyllt í stíflur allan sólarhringinn
14.8.2008: Leiðin um stíflurnar opin til mánudagsins 18. ágúst!
14.8.2008: Gert ráð fyrir að Hálslón yfirfyllist í byrjun næstu viku
8.8.2008: Hálslón fyllist í lok næstu viku
30.7.2008: Steypt í kappi við lónið
30.7.2008: Íslenskir sigmenn og klifrarar tóku við af þeim austurrísku í gljúfrinu
29.7.2008: Á sjötta hundrað ferðamanna við Kárahnjúka um síðustu helgi!
28.7.2008: Ferðamenn áhugasamir um virkjunina
23.7.2008: Búðir Impregilo að hverfa
21.7.2008: Helgarferð um Hálslón
17.7.2008: Fyrsti steypuáfanginn í gljúfrinu neðan Kárahnjúkastíflu+
15.7.2008: Ökuleiðin um Kárahnjúkastíflu opnuð almenningi
14.7.2008: Fimm tugir á vegum Ístaks við Kárahnjúka
9.7.2008: Vígslugerð í Valþjófsstaðarkirkju

Kárahnjúkasýning í Végarði
 
Sjálfbærniverkefni á Austurlandi
 
Veður við Kárahnjúka
 
Fljótsdalsstöð
 
Fossar á áhrifasvæði virkjunarinnar
 
Myndasafn
 
Jökulsár- og Hraunaveitur
 

 Skráarsafn
 Stíflumyndir
 Stiflumyndir3-5agust

 13.11.2008: Rúmlega hundrað Ístaksmenn á svæðinu
Fimmtudagur 13. nóvember 2008 Prenta textann

Alls voru 114 starfsmenn frá Ístaki eftir á framkvæmdasvæði Jökulsár- og Hraunaveitu austan Snæfells í síðustu viku, eftir umtalsverða fækkun í hópnum um mánaðarmótin. Í lok vikunnar vantaði einungis eitt prósent upp á að allt fyllingarefni Kelduárstíflu væri komið á sinn stað (sjá teikningu til hægri).
 
 
Fyllingarefni var flutt sem fyrr í Kelduárstíflu dag og nótt og við bættust þar um 1.500 rúmmetrar. Þar með eru alls komnir 705.000 rúmmetrar í stífluna eða 99%. Erfitt er og þröngt að athafna sig með bílum og tækjum á stíflunni og því gengur verkið hægar en ella.
 
Í Kelduáryfirfalli var unnið við mótauppslátt og járnabindingar og þrjár færur steyptar. Sömuleiðis var steypt loftplata í loftholuhúsi inntaks Kelduárganga og steyptir veggir loftholuhúss við inntak Grjótárganga.
 
 
Verkþáttur - 2008
Framgangur, 45. vika 
 Frá upphafi
 %
Heildarumfang
 KAR 24 Grjótárgöng
 Gangagerð lokið
 1.665 m
 100
 1.665
 KAR 22 Ufsarstífla
 Fyllingarvinnu lokið
 530.000 m3
 100
 530.000 m3
 KAR 23 Kelduárstífla
 1.500 m3
 705.000 m3
 99
 712.000 m3
 
 
Inntak Jökulsárganga t.v. og til hægri er ,,loftunarhola" fyrir sömu göng.
 
 
Úttakshús Kelduárganga. Á mynd t.h. er vatn ofan Kelduárstíflu, upphafið að Kelduárlóni.
 
 
Kelduá við úttak Kelduárganga og t.h. eru framkvæmdir við Kelduárstíflu á lokaspretti.
 
 
Inntak Kelduárganga og t.h. er Kelduárstíflan, næstum því í endalegri mynd.
 

Efst til vinstri er Grjótárbotnrás úttaksmegin, þar fyrir neðan stoðveggur fyrir Grjótárstíflu og neðst járnavirki í grjótáryfirfalli.

Efst til hægri er Kelduáryfirfall, steypuvinna.
Þar fyrir neðan er úttak Grjótárganga og neðst Grjótárbotnrás inntaksmegin.