Veftré    
Fara á forsíðu
 Virkjunarsagan
Annáll: Austurlandsvirkjanir 1946-2008
Alcoa viðræður
Noral

 Tengdar greinar
Alcoa-yfirlýsing 23. maí 2002
Alcoa-yfirlýsing 19. apríl 2002
Alcoa-yfirlýsing 19. júlí 2002
Yfirlýsing iðnaðarráðuneytis 19. júlí 2002


 Samningum lokið - yfirlýsing 13. desember 2002
Föstudagur 13. desember 2002 Prenta textann

Samninganefndir Alcoa, Landsvirkjunar, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, Fjarðabyggðar og hafnarsjóðs Fjarðabyggðar gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í lok samningafundar í Reykjavík í dag:
,,Samninganefndir Alcoa og Landsvirkjunar luku í dag við gerð raforkusamnings vegna fyrirhugaðs 322.000 tonna álvers Alcoa við Reyðarfjörð.  Á sama tíma var lokið vinnu við samninga á milli Alcoa, ríkisins, Fjarðabyggðar og Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.

Lögfræðingar aðila munu yfirfara samningstexta og verða samningarnir áritaðir fyrir áramót.

Raforkusamningurinn verður lagður fyrir stjórnir fyrirtækjanna til staðfestingar.  Iðnaðarráðherra mun leggja fram heimildarfrumvarp vegna samninganna þegar Alþingi kemur saman að loknu jólaleyfi.  Jafnframt verða samningar sem Fjarðabyggð er aðili að teknir til afgreiðslu hjá bæjaryfirvöldum þar.

Álverinu er ætlað að hefja framleiðslu árið 2007."