 |
|
 |
Miðvikudagur 31. desember 2008
|
Kaflaskipti verða í sögu heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar núna um áramótin. Hún verður ekki uppfærð frekar, enda virkjunarframkvæmdum að mestu leyti lokið. Síðuna verður samt áfram að fnna á Vefnum og nýtist áfram sem heimild um gang framkvæmdanna en nýjar fréttir um Fljótsdalsvirkjun verður eftirleiðis að finna á heimasíðu Landsvirkjunar, landsvirkjun.is.
|
| Lesa meira >>
|
|
Þriðjudagur 23. desember 2008
|
Gert er ráð fyrir að hefjast handa eftir áramót við að grafa einskonar þró á botni Hafrahvammagljúfurs, undir enda rennunnar sem flytur vatn af yfirfalli Hálslóns niður í gljúfrið. Þessari framkvæmd verður flýtt vegna þess að lítill snjór er á svæðinu og því vel gerlegt að athafna sig við verkið.
|
| Lesa meira >>
|
|
Mánudagur 22. desember 2008
|
Starfsmenn á vegum Landsvirkjunar hafa tekið til hendinni á virkjunarsvæðinu undir lok framkvæmdatímans við að hreinsa til, fjarlægja rusl og koma röskuðu landi í eins gott horf og unnt er. Afar vel þykir hafa tekist til, eins og meðfylgjandi myndir gefa glöggt til kynna. Verkinu verður fram haldið sumarið 2009.
|
| Lesa meira >>
|
|
Föstudagur 19. desember 2008
|
Starfsmenn Íslandsgarða hafa í vetur unnið að frágangi lóðar við Fljótsdalsstöð og voru við það verk svo lengi sem unnt var. Þeir eru farnir af vettvangi en koma á ný með hækkandi sól til að ljúka verkinu.
|
| Lesa meira >>
|
|
Föstudagur 19. desember 2008
|
Nokkrar vinnubúðaeiningar Landsvirkjunar af virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka hafa verið fluttar suður að Búðarhálsi, á milli Sultartanga og Hrauneyjafoss. Þar er í gangi undirbúningur framkvæmda við vatnsaflsvirkjun.
|
| Lesa meira >>
|
|
Þriðjudagur 16. desember 2008
|
Starfsmenn Ístaks hf. keppast við að flytja grjótmulning til á botni Hafrahvammagljúfurs eftir að sprengd var bergfylla gegnt enda yfirfalls Hálslóns neðan við Kárahnjúkastíflu. Ef ekkert óvænt kemur upp lýkur verkinu fyrír jól.
|
| Lesa meira >>
|
|
|
 |
|
 |